0
ummæli
26.2.2003
Nú er að duga eða drepast
Á morgun, fimmtudag, er seinni kjördagur í Háskóla Íslands. Ég hvet alla, sem réttinn hafa til þess, að kjósa vegna þess að hvert atkvæði telur. Setjum X við V og komum stúdentaráði aftur í öruggar hendur! Svo sé ég ykkur bara á Sólon á KosningaRöskvunni annað kvöld frá klukkan níu og við getum fagnað sigri saman. Síðast munaði bara fjórum atkvæðum, látum það ekki henda aftur.

24.2.2003
Bara að láta vita að ég ennþá á lífi. Röskva á mig bara núna. Var einmitt langt fram á kvöld að bera út Röskvublaðið í Kópavogi í gær. Helgin sem leið var megasukk að venju. Fór á svitaball Röskvu á föstudaginn. Dansaði reyndar ekki einn einasta dans heldur sat og kjaftaði við allt skemmtilega fólkið;-) Á laugardagskvöldið fór ég út að borða með familíunni á Ruby Tuesdays (loksins rættist hálskirtladraumurinn) og það var rosa gaman. Ég trúi bara varla að elskulegur yngri bróðir minn sé að fara til útlanda en svona er þetta víst, fólk þarf að mennta sig. Eftir dinner fór ég síðan í afmæli til Daggar, fjölmiðlafræðipæju. Það var svona fegurðardrottningaþema og ég var ungfrú Afganistan. Við föndruðum kórónur og borða, settum á okkur fínt naglalakk og drukkum jarðaberjafreyðivín. Einkar skemmtilegt og vel heppnað kvöld.
17.2.2003
Ætli maður verði ekki að setja smá púkk í Eurovision umræðuna. Það er tvennt sem sameinar landann, annars vegar Eurovison og hins vegar áramótaskaupið. Conversation starterar eins og "sástu Eurovision?" eru mjög algengir. Hver kannast ekki við svoleiðis samræður við náungann? Alla vega... Hvað varðar úrslitin finnst mér eitt (reyndar nokkuð margt) súrt. Það þarf alltaf allt að vera svo mainstream. Það þorir enginn að taka sjens þegar kemur að Eurovision. Reyndar finnst mér að lög sem fara í Eurovision eigi alltaf að vera mátulega hallærisleg svo að þau passi nú inn í heildarumgjörð keppninnar sem er alltaf frekar lummó. Við skulum bara vona að hún fröken Haukdal standi sig í lummukeppninni og komi okkur ofarlega en vinni samt ekki. Hvar ættum við svo sem að halda keppnina ef við myndum vinna? Í Laugardalshöllinni? Ég held nú síður. Það yrði reyndar svolítið fyndið ef sigur Íslendinga í Eurovision yrði til þess að langþráð tónleikahöll yrði loks byggð. Þá segi ég nú bara, áfram Birgitta!!!!
Ég er búin að vera algjör letiblibbari undanfarið. Sorry! Þannig er nefnilega mál með vexti að ég er komin á fullt í stúdentapólitíkina. Hlaut að koma á því, ekki satt? Anyways... Ég skipa 7. sæti Röskvu til háskólafundar og ég hvet alla samnemendur mína í HÍ að tékka á okkur og okkar málefnum og nýta atkvæðisrétt sinn sama hvað. Þið getið skoðað Röskvu betur á heimasíðunni. Svo er auðvitað hið árlega svitaball Röskvu á föstudaginn á Vídalín. Þar munu Tvö dónaleg haust spila fyrir sveittum dansi langt fram á nótt. Sé ykkur þar! Choo choo...
Ég er rétt að byrja að fatta það núna að elskulegur litli bróðir minn er að fara af landi brott í enda mánaðarins. Málið er bara að hann er ekkert svo lítill lengur og hann er að fara út í nám, nánar tiltekið til Manchester að læra hljóðupptöku og stúdíóvinnslu og svoleiðis. Það var auðvitað ekki við öðru að búast af drengnum enda er hann undra talent á þessu sviði.
Ég fór á Eurovision í Háskólabíó á laugardaginn. Ég ætlaði reyndar varla að meika það vegna gífurlegrar þynnku en reif mig upp fyrir fjölmiðlapíurnar mínar. Svo var bara svona svaka gaman. Bloody marvee, alveg hreint...

12.2.2003
Röskva á afmæli í dag! Hún er orðin 15 ára, þessi gelgja. Var einmitt að koma úr afmælisboði í Odda. Það var skúffukaka og mjólk á boðstólnum. Mjög ljúffengt. Ég gaf Röskvu reyndar ekkert í afmælisgjöf. Jú, svei mér þá, ég gaf henni allan minn stuðning í komandi kosningum... Það er nokkuð góð gjöf. Svo er afmælispartý á Sólon í kvöld klukkan 9.
Ég fékk mjög skrýtinn mat henni Hilmu Reykjavíkurmóður í gær. Ég ætla ekki að segja meira en að hann hafi verið skrýtinn... Hilma er reyndar alveg meistarakokkur en í gær brást henni bogalistin. Það endaði með því að við sátum við borðstofuborðið og borðuðum ókryddað hakk... Hilma fór í símann og ég lék mér við matinn og sagði við Jón Björn: „Ég held ég geti ekki borðað þetta.“ Reyndar var Hilma alveg sammála okkur um gæði matsins þannig að hann endaði bara í tunnunni. Love you, Hilmínus fýlupúkolíus, smooch!

10.2.2003
Ég er stödd í einhvers konar aldurslimbói. Ég var nefnilega að átta mig á því að ég hugsa alltaf um mig sem 21 árs... Þetta er eins og þegar maður hittir ættingja eftir nokkurn tíma og þau segja rosalega ertu orðin stór en í rauninni hefur maður ekkert stækkað heldur bara fullorðnast. Fólk geymir einhverja mynd af manni í hausnum á sér og í mörgum tilfellum er maður 12 ára á þeirri mynd. Þess vegna er ekkert skrýtið að þeim hálfpartinn bregði þegar þau hitta síðan 12 ára barnið aftur og það er orðið 23 ára. Það er bara verst að ég hugsa eins og þessir ættingjar sem maður hefur ekki hitt í of langan tíma. Málið er bara að ég hugsa þetta um sjálfa mig. Ætli sjálfið mitt sé staðnað á 21. aldursári? Ætli þetta sé ómeðvituð hræðsla við að eldast? Ætli ég sé bara svona gleymin??
Bílskúrssalan var ekki eins mikið hitt og ég hafði búist við. Við seldum þó eitthvað en ég verð nú að segja að það hafi ekki verið rífandi sala. Ég held bara að Keflvíkingar og nærsveitungar hafi ekki verið tilbúnir í þennan pakka...

6.2.2003
Ég fékk símtal um daginn frá jafnöldru minni í Keflavík. Hún hafði frétt að ég ásamt nokkrum öðrum væri byrjuð að skippuleggja fermingarafmælið okkar. Hún spurði mig skelkuð hvort við værum nokkum komin langt í skipulagningu vegna þess að hún og einhverjir aðrir eru búnir að panta sal og mat og alles. Sem betur fer vorum við ekki komin neitt áfram í skipulagningu þannig að fermingarafmælin verða ekki tvö...vonandi eru ekki fleiri byrjaðir að skipuleggja:-/ Anyways, húllumhæið verður víst í Stapanum laugardaginn 15. mars. Það er eins gott að allur pakkinn mæti þannig að við náum að fylla Stapann sem er nú enginn smásmíði... Það er eitt sem ég get gert en ég þarf hjálp fermingarsystkina minna og það er að skipuleggja skemmtiatriði. Það er auðvitað nauðsynlegt til að gera kvöldið skemmtó. Það eru víst bréf á leiðinni í pósti til allra með upplýsingum um verð og skráningu og svoleiðis.
Ég er stödd í Keflavík city, var í klippingu. Ég er að reyna að redda mér fari heim en það gengur ekki allt of vel en ég geri allt til að sleppa við rútuna. Einu sinni fór ég með rútunni frá Rvk. og ég hélt að bílstjórinn ætlaði að drepa okkur öll, hann keyrði svo hratt. Svo þegar hann tók af stað á ljósum og svoleiðis setti hann allt í botn þannig að maður rann næstum niður á gólf. Ég var orðin svo brjáluð að ég ætlaði að láta hann heyra það þegar ég færi út. Svo stoppaði hann, ég stóð upp og í stað þess að segja ÞÚ ÆTTIR EKKI AÐ VERA MEÐ MEIRAPRÓF, FÍFLIÐ ÞITT!!!!, sagði ég bara pent takk fyrir og labbaði út. Algjör gunga, ég vissi hreinlega ekki að þessi gunga byggi innra með. Halló, gunga, ég vil ekki hafa þig! Ég vil fá hugrökku kelluna aftur...
Ég keypti mér nýja ryksugu í gær vegna þess að ég hélt að mín væri ónýt og svo er hún ekki ónýt. Ætli maður fái endurgreitt þegar maður skilar vörum í Elkó??
Ég keypti mér nýja ryksugu í gær vegna þess að ég hélt að mín væri ónýt og svo er hún ekki ónýt. Ætli maður fái endurgreitt þegar maður skilar vörum í Elkó??
4.2.2003
Sit heima og hlusta á Elvis Presley á Rás 2 og er að reyna að byrja á verkefni um verðbólgu. Það er alltaf erfiðast að byrja á leiðinlegum verkefnum...
Ég ætla að minna á bílskúrssöluna sem verður á laugardaginn (8. feb.) í Kjarrmóa 9 í Njarðvík. Salan verður frá svona eitt til sex, býst ég við. Endilega, allir að kíkja. Þið gætuð gert þrusugóð kaup:-)
Ég nenni ekki einu sinni að segja frá helginni minni vegna þess að ég er róni í afneitun, svo einfalt er það. Bara of mikið djamm og stefnir allt í það sama næstu helgi... Reyndar var mjög gaman en ég er samt á bömmer og þarf að gera leiðindaverkefni. Hundfúlt!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)