Á gjörgæslu
Reyklaust sjálf mitt liggur á gjörgæslu þessa dagana. Útlitið er tvísýnt. Ég lýsi hér með eftir innri aga mínum sem virðist hafa horfið sporlaust og einnig minni mínu sem virðist gloppóttara sem aldrei fyrr. Hvort það stafi af minnkandi magni heilafruma með aldrinum skal látið ósagt. Finnandi hafi samband í síma 863 3499. Vegleg fundarlaun í boði.
Þrátt fyrir ofangreindar krísur er ég þó stoltur íbúðareigandi. Það má ég nú eiga, ekki satt?
Getraunin. Hvaða flytjandi og enn fremur hvaða lag?
Það er alger...
24.11.2004
20.11.2004
19.11.2004
Einlæg með eindæmum
Ég fór á fráhábæra útgáfutónleika með Mugison í gærkveldi. Man oh man hvað þessi maður er hæfileikaríkur tónlistarmaður og frábær á sviði. Nasa(ret) var troðið og frábær stemning. Ég verð síðan að minnast á hjálparkokka Mugison, kærustuna hans, Rúnu, og Pétur. Jafn einlægan hóp af Íslendingum hef sjaldan séð á sviði og mér finnst að performarar Íslands ættu allir að taka sér þau til fyrirmyndar. Það er einhvern veginn svo miklu skemmtilegra að horfa á listamenn opna sig á sviðinu í stað að berjast við að halda kúlinu. Alveg hreint magnað stöff hjá Mugison. Keypti mér síðan nýja diskinn að tónleikunum loknum á einungis 1500 krónur og sé mest eftir því að hafa ekki keypt gamla diskinn líka.
Eftir tvo flöskubjóra var Kamilla kettlingur alveg í essinu sínu. Kjaftaði Þóri og Sigurd í kaf og var mega motormouth eins og ég á stundum til. Gugga var heppin en hún fór strax heim eftir tónleikana, ég hefði betur átt að gera það sama. Nei, nei, ég er svo skemmtileg og hef frá svo mörgu skemmtilegu að segja... vona ég;-)
Getraunin er pínku erfið núna, held ég. Held meira að segja að Marta geti ekki googlað í þetta skiptið;-) Þess vegna fylgir smá vísbending. Hljómsveit þessi er ný af nálinni en virðist það ekki við fyrstu hlustun. Já, þetta er fín vísbending. Tek það fram að þetta er ekki hljómsveitin Kamilla. Híhíhí.
I would like just one glass of water
And I would like to dance with you daughter
Jæja, kids. Partý hjá Þóri mínum í kvöld. Sjáumst á baharnum. Yee ha! Hey, og ég er að fara að skrifa undir kaupsamninginn á eftir þannig að þið verðið öll að bjóða mér í glas, íbúðarglas! Peace out!

17.11.2004
Búa til stærstu pylsu í heimi!
Já, það er margt skrýtið í kýrhausnum. Þessa frétt rakst ég á í Fréttablaðinu í dag en SS og Myllan ætla að reyna að slá heimsmetið í gerð stærstu pylsu og pylsubrauðs í heimi. Tilefnið er auðvitað 50 ára afmælisútgáfa Heimsmetabókar Guinness. Það er aldeilis að fólk nennir að sóa tíma sínum. Það hefur einmitt verið sannkallað Guinness þema síðustu tvo dag hjá mér. Sóaði eigin dýrmæta tíma í að horfa á einn leiðinlegasta þátt á þessu jarðríki, nemlig Guinness World Records. Í þáttinn voru komnir tveir ungir Bandaríkjamenn (líklega ættaðir úr einu af mörgum hjólhýsahverfum í miðríkjunum...) sem settu einmitt met í að kasta og grípa sem flesta fiska með einni hönd á 30 sekúndum. Mig minnir að þeir hafi náð 16 stykkjum. Einstakt afrek. Einstakt! Þetta minnir mig enn fremur á risa trektina sem er í Keflavík. Get samt ekki alveg trúað því að hún sé sú stærsta í heiminum en það er aldrei að vita. Er Keflavík kannski að verða eins smábæir í USA sem státa sig af hinum ýmsu hlutum í hinum ýmsu stærðarhlutföllum. Visit NowhereVille USA and see the largest diaper in the world. Don't miss this once-in-a-lifetime chance!
Getraunin í dag, my peeps, er þessi:
Well we know where we’re goin’
But we don’t know where we’ve been
Hver flytur og hvað heitir lagið?

15.11.2004
Trommuferillinn er rétt að byrja
Það er bræla. Og ekki orð um það meir.
Ég hef ákveðið að einbeita mér meira að tónlistarsköpun (!) og hélt því á laugardaginn í víking til Keflavíkur þar sem hið glæsta Stúdíó Lubbi Peace stendur. Þar átti ég upptökusessjón með elskulegum bróður mínum þar sem ég var á trommum. Ég verð nú að segja að trommuleikur minn er ekki upp á marga fiska (eiginlega bara mjög fáa) en undur upptökutækninnar voru stutt undan. Eina sem ég þurfti að gera var að lemja misfast á trommurnar, svo raðar Ingi Þór bara hljóðunum saman í næsta lagi sem hann semur. Þannig að tæknilega séð er ég nýji trommari Digital Joe. Finnst ykkur þetta ekki spennó? Ingi Þór ætlar einmitt að kenna mér á trommur á næstunni og markmiðið er að geta spilað eitt lag um áramót. Það finnst mér reyndar vera ansi háleitt markmið þar sem ég skil hreinlega ekki hvernig trommarar geta framkvæmt svo margar hreyfingar í einu. Hægri fótur á bassatrommu að gera eitt og svo báðar hendur að gera mismunandi hluti. Vá, mig svimar næstum.
Ég fór á Battle of the bands í gærkvöldi. Æla var að keppa en komst ekki áfram. Það er mér óskiljanlegt!
Jæja. Enginn gat síðustu getraun. Grunar að margir geti þessa. Hvaða lag? Hvaða flytjandi?
Keep you doped with religion and sex and TV

12.11.2004
Martini og yatzy
Illa sofin hitti ég elskuna mína hann Þóri í gærkvöldi. Við drukkum martini og spiluðum yatzy. Vorum að byrja að spila þegar við áttuðum okkur á því að við værum búin að gleyma leikreglunum. Þjónustuver Landsbankans kom til hjálpar. Ég er ömurlega léleg í yatzy (ef það er þá hægt) og var eiginlega orðin full í þokkabót. Þórir rúllaði mér upp og síðan ekki söguna meir. Við hlustuðum auðvitað á Interpol saman enda hársbreidd frá því að stofna íslenskan aðdáendaklúbb (Ætlar þú að vera formaður, Þórir?). Þórir hefur verið mér sérlegur ráðunautur í laxveiðimálum og hluti gærkvöldsins fór í að hnýta flugur og ræða veiðitækni. Nú er bara að sjá hvort fiskeríið haldi áfram (Vá, djöfull er ég góð í þessu fiski lingói!). Síðan fór ég full í strætó (Þegar ég segi full er ég aðeins að ýkja, you know my style!).
Í dag er föstudagur, finnst eins og vikan sé alltaf að styttast. Það er alltaf föstudagur. En það er líka bara fínt!
Getraunin. Hvað lag? Hvaða flytjandi?
And the future's on the bound
Hell don't know my fury

9.11.2004
Svoooooo þreytt
Mörgum takmörkum var náð um helgina en fyrir vikið verð ég Kamilla svefngengill fram á miðvikudag í fyrsta lagi. Hugsa um það eitt að sofa þessa stundina og samt er kominn þriðjudagur:-/
-Við Þórir styrktum enn vináttu- og tónlistarböndin og áttuðum okkur á því að það eina sem þurfum til að vera glöð er músík og hvort annað. En fallegt.
-Mamma og pabbi skrifuðu undir kauptilboð einkadótturinnar. Styttist í þetta allt saman!
-Eldaði fyrir mig og pabba og setti gamla manninn í ullarsokka. Hlustuðum síðan á Elliott Smith og Interpol og bonduðum.
-Veiddi 20 punda lax í Kaffibarsánni-Vestra. Ákvað að sleppa honum ekki enda glæsilegur og mjög eigulegur fiskur.
-Fékk tölvupóst frá long lost friend í henni stóru Ameríku. Jább, Francesca, æskuvinkona mín, leitaði mig uppi. Mjög skemmtileg tilviljun vegna þess að ég hugsaði til hennar um helgina í fyrsta skiptið í mörg ár.
-Reddaði húsnæðismálunum en hún Þórhildur blaðamaður og B.A. í bókmenntafræði ætlar að leigja með mér. Hún hyggur á miklar framfarir í hreinlætismálum og tónlistarsmekk með hjálp frá yours truly;-)
-Byrjaði jólagjafainnkaupin. Always one step ahead.
-Bætti enn einum sjónvarpsþættinum á listann yfir þá sem ég verð hooked á. Dead like me.
Sæjitt, Francesca er komin á msn. Nú ætla ég að segja henni stuttu útgáfuna af lífi mínu síðustu 13 árin.
ZZZZZZZZzzzzzzzzz....
Hey, já. Ein getraun. Hvaða lag? Hvaða flytjandi?
Drink up one more time,
And I'll make you mine.

1.11.2004
Mánudagur til slæðu
Howdy! Mánudagur kominn, oh hvað er gaman að vera strætóandi á svona blíðviðrisdögum. Ble.
Helgin var fín. Fór í hattapartý hjá LHÍ með Ragnheiði og Ragga á föstudaginn. Það var mjög gaman. Við Ragnheiður vorum með fína stelpuhatta úr Tiger sem voru aðeins of litlir fyrir okkar stóru hausu og Raggi var með sólhatt... í töfluformi. Híhíhí. Endaði í megasukki á Kaffibarnum að venju.
Fyrripartur laugardagsins er í móðu þar sem ég þjáðist af þynnku á háu stigi. Um kvöldmatarleytið dreif ég mig í sturtu þar sem ég átti að vera mætt í Borgarleikhúsið að dreifa leikhúsmiðum til um 50 sjálfboðaliða Rauða krossins. Það gekk vel og svo hófst leikritið. Geitin. Fjallar um mann sem verður ástfanginn af geit. Leikritið var reyndar fínt og vel leikið (sérstaklega af Eggerti Þorleifssyni, gerir þetta af áreynslulausri snilld annað en sumir (lestist, flestir) íslenskir leikarar.) en ég var allan tímann að hugsa um menningarsjokkið sem margir sjálfboðaliðanna voru að fá en meðalaldur í hópnum þetta kvöldið var líklega um 70 ár. Alltaf þegar ég heyrði orðið geitarriðill (sem var ansi oft) hugsaði ég með mér: ó, nei, nú fær einhver hjartaáfall. Það endaði með því að nokkrir löbbuðu út í hléi og ég andaði léttar eftir hlé þar sem meðalaldur hafði lækkað. Eftir leikritið fórum við Þórir (en ég var svo góð að bjóða þessari elsku með mér.) heim til hans og héldum áfram að mygla úr þynnku. Stoppuðum fyrir utan Kaffibarinn og veltum því fyrir okkur hvort við ættum að hætta okkur inn, eins viðkvæm og við vorum. Það endaði með því að við stauluðumst heim og kýldum koddann en þó með það á bak við eyrað að við gætum nú verið að missa af eitthverju (Guð, hvenær kemst ég eiginlega yfir þá tilfinningu?! It will be the death of me!) Komst síðan að því daginn eftir að ég hefði betur átt að vera á Kaffibarnum. En það kemur víst helgi eftir þessa helgi, ekki satt?
Ég festi kaup á nýja Interpol disknum í gær og djöfull er hann góður!!!!!!!!! Er einmitt að hlusta á hann núna. Diskurinn er ólíkur þeim fyrri, Turn on the bright lights, en mér finnst alltaf gott þegar bönd eru í sífelldri endursköpun. Ég sá einmitt Interpol á Hróarskeldu í fyrra og man, oh, man hvað þeir voru frábærir. Mjög þétt tónleikaband. Mæli með þeim!!!
Getraunin. Hvað lag? Hvaða flytjandi?
The glove compartment is inaccurately named,
And everybody knows it.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)