27.5.2004

Hot stöff

Ég vil byrja á að segja að ég vil ekki heyra neinar oh-það-var-svo-geggjað-á-Pixies sögur!

Svo vil ég segja ykkur frá nýjum tenglum hér í kálinu til hliðar.

Bjarni: Bjarni Þór er frændi Kamillu litlu og enn fremur bróðir Ásdísar Rögnu grasamógúls sem ég elska afar heitt. Hann er drengur góður.

Oddur Ingi: Oddi Inga kynntist ég fyrir mörgum árum í Leikfélagi Keflavíkur. Þá var hann bara smápolli en ég gelgja í 9. bekk (eða var ég í 10. bekk?). Núna er hann fullvaxinn hljómsveitargaur sem breiðir út boðskap rokksins á sinni eigin fínu blibbsíðu.

Kata Bessa: Kata er kjarnakvendi sem ég kynntist þökk sé Þórhildi. Hún býr í höfuðstað Norðurlands en hyggur á flutninga í minnstu höfuðborg Evrópu innan skamms. Hún er prjónari af lífi og sál og sá nýlega ljósið í Debenhams í Smáralind. Bjóðum hana hjartanlega velkomna í kálið.

Heiða Birna og co.: Heiða Birna og Berglind, vinkona hennar, eru sjúklega sætar pæjur. Heiða Birna er líka kærastan hans Hafþórs, bestar vinar Inga Þórs, þannig að hún er auðvitað alveg kálið.

Sörfað á börum borgarinnar: Brynja Dögg er mætt með nýtt og ferskt blibb. Hana þekkja allir:-)

Getraun dagsins. Hvaða lag? Hvaða band?

If God passed a mic to me to speak
I'd say stay in bed, world

Engin ummæli: