Megavika Kamillu
Nei, ekki alveg kannski. Sumarið er komið í Kaupmannahöfn. Það er ljúft. Er samt búin að átta mig á því að ég er vetrarmanneskja í klæðnaði. Er minna kúl í svona efnislitlum sumarfatnaði.
Ég fór á fría tónleika með Peaches í gærkvöldi. Svitalyktareyðirin Axe sponseraði þessa tónleika og The Living Daylights (US) og Gaffaman (
SVE) voru líka að spila. Það var hægt að fá miða í nokkrum búðum í Kbh. Þetta voru mjög fínir tónleikar með Peaches en stemmningin til að byrja með var kannski ekki alveg fullkomin. Það er nefnilega allt öðruvísi þegar fólk fer á fría tónleika en þegar það þarf að borga. Kannski var bara ekki nógu mikið af eitilhörðum Peaches aðdáendum þarna. Hún var m.a.s. frekar pirruð í byrjun; "You don't even know my fucking songs!" En þetta blessaðist og í endann var þetta alveg magnað. Og svitinn, ó svitinn!
Annars hefur líf mitt verið í tiltölulega föstum skorðum. Fyrir utan það að ég hef verið að hitta Fransmanninn af og til. Spennó, ekki satt?
Jæja, Milla litla kveður vegna þess að það er svo gott veður. Haha. I'm a poet and I didn't even know it!
29.5.2005
23.5.2005
Júróvisjón... álíka skemmtilegt og Júragarðurinn!
Já, þrátt fyrir einstaklega góðan félagsskap, öl og gajol skot tókst Júróvisjón að drepa partýið sem ég var í. Ég fór heim til Önnu Völlu, vinkonu Önnu, en Anna og Freyr voru stödd í Kbh um helgina. Atriðin voru fín, brjálæðisleg trommusóló og nakið hold virtust vera in þetta árið. En þegar stigagjöfin byrjaði, 38 lönd og Ísland ekki einu sinni með í keppninni í ár. Vá, þá byrjaði partýið að deyja. Eftir 20 lönd var það í dauðakippunum og svei mér þá ef tveir partýgestanna sofnuðu ekki bara! Við vorum ekki lengi að skella almennilegri tónlist á þegar keppni lauk og náðum að bjarga partýinu með endurlífgunaraðferðum. Skelltum okkur síðan á Laundromat og drukkum mojito, chardonnay og kampavín. Ég fór nú samt snemma heim og fór í sleik við koddann minn um þrjú leytið.
Sumarið virðist vera að skríða inn en það er búin að vera um 20 stiga hiti undanfarna daga. Mjög gott.
Jæja, andleysi hrjáir blibbgetu mína... en ég elska ykkar óskaplega mikið og kommentínóin ykkar gætum skipt sköpum. Come on, come on, come on! (Norska lagið var auðvitað langbest!)

18.5.2005
Hvítasunnuhelgin endalausa...
Í dag er miðvikudagur og mér hefur liðið eins og það sé sunnudagur síðustu þrjá daga. Hvítasunnan fór vel af stað með Katrínu, sálufélaga mínum og sambýliskonu. Við ákváðum að hafa okkar eigin innflutningshátíð sem einkenndist af góðum mat og drykk (hið eiginlega innflutningspartý verður síðan ekki fyrr en 18. júní. Takið daginn frá!)
Á föstudaginn héldum við besta grillpartý sem ég hef nokkurn tímann farið í. Í partýinu voru: Kamilla og Katrín. Já, það þarf víst ekki meira til. Við grilluðum dýrindis hambó, spiluðum síðan yatzy, drukkum hvítvín og kjöftuðum fram á nótt.
Á laugardeginum bættist ein snót í hópinn, nefnilega hún Trine. Við hittumst hér í höllinni, fengum okkur bjór og skunduðum niður á Vesterbro þar sem gestir Riesen og Ideal Bar fengu að njóta nærveru okkar. Gott kvöld.
Sunnudagurinn var mjög erfiður til að byrja með. Ég svaf mestallan daginn en var búin að lofa Ullu að fara með henni í hjólasendlapartý á Nörrebro. Ég tók mig saman í andlitinu og með herkjum hjólaði ég heim til Ullu. Partýið var síðan ótrúlega skemmtilegt, tónleikar og allt saman. Band sem heitir Lake Placid og gvöð menn góður hvað söngkonan var mögnuð. Verð að finna eitthvað með þeim. Haldiði síðan að ég hafi ekki bara hitt sætan Fransmann til að toppa kvöldið. Ekki slæmt!
Hér sjáið þið myndir frá grillpartýi aldarinnar og laugardagskvöldinu.
Ástarkveðja,
Milla

11.5.2005
Lífsins gangur
Halló. Hér gengur lífið sinn vanagang. Ég vinn, ég sef, ég drekk bjór af og til. Hjólið mitt er enn stolið og þjófum gefið! Eva Stína, vinkona Katrínar, var svo góð að lána mér hjólið sitt vegna þess að hún er með lítið ljós í mallanum og getur ekki hjólað lengur. Ég fæ að hafa hjólið fram í byrjun júní og þá eru góð ráð dýr.
Ég held áfram að sjarma vinnufélaga mína með skipulagsgáfum og einstakri smekkvísi. Þeir bara dýrka mig og dá. Samt vantar mig aðeins meiri vinnu þannig að ég ætla að skrá mig á vikar skrifstofu og reyna að fá afleysingar af og til. Svo megið þið, kæru lesendur, líka bara gefa mér peninga. Ég hefði ekkert á móti því, skal ég ykkur segja.
Við Katrín erum að koma okkur fyrir smátt og smátt hér í höllinni. Okkur vantar reyndar sófa og svo virkar sjónvarpsloftnetið ekki. Það er að drepa mig lifandi. Annars skemmti ég mér bara við að horfa á nýju fínu þvottavélina hennar Katrínar þvo. Það er gaman. Hún er með tæknilegum skjá og alles.
Ég er búin að fá herbergi í Árósum. Við Diljá ætlum að leigja saman eitt herbergi. Hún verður frekar lítið í Árósum í vetur þannig að þetta er hentugt og hagstætt fyrirkomulag. Reyndar byrjum við að leigja herbergið í byrjun júní þannig að ef þið vitið um stúlku sem vantar herbergi í miðbæ Árósa endilega látið mig vita.
Ég er farin að heyra raddir. Fötin í vinnunni eru alltaf að segja við mig: Kauptu mig Kamilla. Mig vantar svo gott heimili og hlýjan líkama til að hanga á. Svo færðu líka 40% afslátt þannig að þetta er nánast gefins. Kauptu mig! Kauptu mig!
Ég er að vinna í að hunsa þessar raddir. Ábendingar vel þegnar (Sérstaklega frá þér, mamma mín;-)).
Jæja Despo Houswives eru að fara að byrja. Það er sjónvarp inni í eldhúsi. Það hangir bara svo hátt uppi í loftinu að það getur verið erfitt að halda haus í heilan þátt.
Ást og friður,
Milla Vanilla

2.5.2005
Ég er svo gráðug!!
Klukkan er að verða tvö eftir miðnætti en ég get ekki slitið mig frá tölvunni. Ég sit nefnilega og dánlóda tónlist af netinu. Og Gvöð menn góóður hvað ég er æst! Við erum að tala um að ég er búin að hamstra á Iron & Wine, Bright Eyes, The Shins, Sufjan Stevens og fleiru góðgæti. Ohhh, það er svo gaman að eignast nýja tónlist. Nú fer ég bara að óttast að elsku iPodinn minn fyllist. Hvað þá? Hvað þá?!
Ég fékk mesta hálsríg sögunnar um helgina. Var eins og Robo-Cop (Ég á það stundum til. Helvítis háls!) alla helgina og meikaði ekki neitt. Fór reyndar í eitthvað opnunarpartý með Katrínu um helgina en þurfti að fara snemma heim sökum eymsla í hálsi. Ég er líka búin að átta mig á því af hverju ég lendi ekki á sjéns. Ég er náttblind og nærsýn! Hræðilegt combó! Sé ekki neinn sem gefur mér auga þannig að allir gordjöss mennirnir sem bara vona að ég líti örlítið í áttina til þeirra eiga sko ekki von á góðu, greyin! Svo bætti ekki úr skák að allar hreyfingar mínar um helgina (að öllu öðru leyti var ég auðvitað sjúkleg!;-)) einkenndust af sársaukasvip og ef ég þurfti að líta örlítið til hliðar þurfti allur búkurinn að fylgja með. Einstaklega aðlaðandi!
Jæja, þetta gengur ekki! Ég verð að fara að sofa í hausinn á mér.
Hey, eitt enn. Ef þið vitið um eitthvað megaflott fyrir mig að hlusta á, endilega setjið það í kommentínó. Hannes Óli, ertu þarna?;-)

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)