29.8.2005
Ég er með hnút og fiðrildi í maganum á sama tíma. Eftir tæpan hálftíma mun ég hitta alla bekkjarfélaga mína og fara svo í fjögurra daga ferð með þeim til Norður-Jótlands. Ég er pínku lítil í mér núna, vil falla í kramið og allt svoleiðis. Sendið mér strauma og svo blibba ég um ferðina þegar ég kem heim.
27.8.2005
Haltrandi miðbæjarrotta
Sæl á ný. Þetta er Kamilla litla sem blibbar frá Árósum í þetta skiptið. Búin að búa hér síðan á föstudag. Við Sigrún og Steen lögðum í hann frá Dronning Olgas Vej seinni part dags á föstudaginn. Það kom þó smá babb í bátinn og sökina eiga öll nýju fötin mín. Ég datt nefnilega niður stigann heima með kassa í höndunum fullan af fötum. Afraksturinn er tognaður ökkli og hölt Kamilla. Ég setti bara ökklann á ís á leiðinni til Árósa og fór reyndar á slysó um kvöldið þar sem ég fékk teygjubindi og dóp.
Helgin var annars yndisleg. Við gerðum sushi á föstudaginn sem var auðvitað æði og fórum síðan á Súkkulaðiverksmiðjuna fram á nótt. Missti blibbgleðina rétt í þessu þannig að ég nenni ekki að blibba meira.
Takk fyrir mig elskurnar. Me love you long time!
Og þið sem skiljið ekkert í þessu með frönskukennslu og frönskukennara... Lærið að lesa á milli línanna;-)

24.8.2005
Smá update
Halló elskurnar. Veit ég er búin að vera einstaklega léleg að blibba sem þýðir bara eitt: Það er nóg að gera hjá Millu litlu!
Tek Héðinn minn til fyrirmyndar og geri svona smá stikkorðablibb.
Síðan ég blibbaði síðast hef ég...
-Fengið yndislegan bróður minn í heimsókn. Hann kom m.a.s. með Malt og Appelsín.
-Farið á vaxmyndasafnið og orðið mjög hrædd...
-Farið í dýragarðinn og orðið sorgmædd.
-Reynt að vera dugleg að læra frönsku vegna þess að ég er að fara að flytja á morgun.
-Sagt bless við vini mína. Alltaf erfitt.
Jæja, ég verð að fara að pakka. Hef nefnilega þrefaldað magn mitt af fötum á aðeins fjórum mánuðum. Áfram Kamilla!
16.8.2005

Ókei. Ég vissi nú alltaf að ég væri með gúmmíandlit en þetta slær öllu við. Hanna María var svo góð að senda mér þessa mynd sem var tekin þegar hún kom í heimsókn til Kbh í júlí. Myndasmiðurinn er Bogi Jón. Hann hefur greinilega ýtt á takkann á hárréttu augnabliki:-/ Er ég ekki sæt?
Læt samt eina fylgja með þar sem ég lít ekki út eins og... já, hverju líkist ég á þessari mynd???
13.8.2005
Það er komið að skuldadögum þrátt fyrir að ég sé andlegur jafnoki Gandhi. En það kom nú að skuldadögum hjá Gandhi líka og hann átti það ekki skilið, elsku kallinn. Ekki ég heldur. Ég er s.s. komin með flensu. Er búin að vera að reyna að sparka í rassinn á sjálfri mér að fara út í búð síðasta eina og hálfa tímann. Þið hugsið kannski: Þetta er bara leti, ekki flensa. En nei, kæru vinir og vandamenn, djammið (orsök alls ills og afkvæmi djöfulsins... já, ég verð búin að skipta um skoðun þegar ég hressist. I know myself) hefur loksins gert út af við mig. Fór að vinna í dag og það var götufestival. Vei! Gaman að vera sljó og þvöl þegar Studiestræde er fullt af fólki. Ég harkaði þetta af mér, fór heim og svaf þar til yndislegustu foreldrar í heimi (mínir auðvitað!) hringdu frá Longview, Washington, til að heyra í stelpunni sinni. Og ég sem ætlaði ekki einu sinni að svara símanum! Ég var svo glöð að heyra í þeim og sagði þeim held ég tuttugu sinnum hvað ég elska þau mikið. Ég brosi meira að segja núna við að hugsa til þeirra. Og vitiði hvað?! Ingi Þór Ingibergsson, snillingur og ástkær bróðir minn, er að koma í heimsókn í næstu viku. Gæti lífið verið betra? Æ, já, smá, ef ég væri ekki veik.
Alla vega, núna er heilinn að fara að bræða úr sér og ég ætla að halda áfram að reyna að "will myself" út í búð.
Jú, eitt enn. Er búin að eiga frábæran tíma með Ragnheiði og Ragga, fyndnasta fólki í heimi, en þau eru hér í Kbh. Við erum búin að borða víetnamskan mat, ítalskan ís og drekka Sovétkóla og danskan bjór. Einstaklega fjölþjóðlegt mataræði á okkur. Þið eruð yndi!
P.s. Gandhi og Saddam fengu sér bjór í gær. Kannski að Gandhi reyni síðan að heimsækja Clinton í vetrarfríinu sínu...

12.8.2005
9.8.2005
Ég er ekki nítján lengur... bara í anda
Vá! Svæakaleg helgin sem leið. Ég er enn að jafna mig.
Herlegheitin byrjuðu á fimmtudaginn þegar þær stöllur Hildur og Andrea Sif heiðruðu mig með nærveru sinni. Þær mættu niður í Wasteland, í dömufríi í Kbh. Ég skellti mér með þeim í dinner og svo fylgdu ófáir bjórar í kjölfarið. Við hittum Erlu, frænku Hildar og fórum á æðislegan kokteilabar á Rantzausgade. Staðurinn var tómur þannig að það var nánast eins og við sætum í heimahúsi. Með einkaþjón! Frábært kvöld. Takk fyrir, stelpur!!! Fleiri svona dömufrí, finnst mér.
Föstudagurinn byrjaði með hausverk sem virtist aldrei ætla að fara. Þar til ég fékk mér afréttara. Haha. Á dagskránni voru tvö afmælispartý, hjá Önnu Völlu og svo Clint. Afmælið hans Clint var haldið í B&W hallen sem er staðsettur á útnára veraldar, nánar tiltekið Refshalevej 213. Leigubílstjórinn villtist meira að segja á leiðinni. Vei! Þetta er s.s. gömul verksmiðja en minnti helst að innan á norskt bjálkahús (Ekki það að ég hafi nokkurn tímann komið til Noregs, hvað þá í norskt bjálkahús. En svona ímynda ég mér þau...). Í þessu partýi voru allra þjóða kvikindi, góð músík og TRAMPÓLÍN. Og gvöð menn góður hvað ég átti afturhvarf til barnæskunnar. Það var varla hægt að slíta mig af trampólíninu. Fólk hefur haldið mig akróbatsnilling (!) eða einfaldlega klikkhaus... sem er nærri lagi. Þrátt fyrir frábært kvöld er ég enn að jafna mig af harðsperrum þó svo að ég hafi eytt bróðurpartinum af gærdeginum í spa treatment í Frederiksberg Svömmehal! Já, það er erfitt að vera trampólínsjúk.
Laugardagurinn var einstaklega erfiður sérstaklega vegna þess að, eins og áður hefur komið fram, ég er ekki nítján lengur og kroppurinn þolir illa svona sukk. En ég harkaði þetta af mér og fór á grískan veitingastað með Katrínu, Jens, mömmu Katrínar og kærasta hennar. Svo hittum við Sigrúnu og Steen á Saxon's og svei mér þá ef ég var ekki síðasta manneskja til að fara heim, ásamt Sigrúnu! Harkan sex, I tell you!
Þetta voru rónafréttir í dag. Þær verða næst fluttar eftir aðra slíka dýfu...
P.s. Ég er ung, vitlaus og einhleyp. Er það ekki góð og gild afsökun fyrir allt ofantalið?

1.8.2005
Slagveður í Vestmannaeyjum
Það er nánast alltaf sama sagan þegar greyið þjóðhátíðarfarar ætla að reyna að koma sér heim eftir megasukk í fimm daga eða svo. Brjálað veður og alla samgöngur liggja niðri. Why bother, segi ég nú bara. Reyndar hef ég aldrei komið til Vestmannaeyja en það á víst að vera voða voða gaman. Komið með betra line-up og þá skal ég mæta. Það þarf meira en loforð um gott fyllerí til að fá mig, lúxusmanneskjuna og letidýrið, til að sofa í tjaldi og þá sérstaklega þegar allra veðra er von. Síðast þegar ég svaf í tjaldi var það á Hróarskeldu 2003 og þá í heilar fimm nætur! Jahá! En þar hafði ég eðalmúsík, sér klósett og sturtu og back-stage bar. Ekkert slor, skal ég ykkur segja.
Annars var mín verslunarmannahelgi frekar í rólegri kantinum. Fór að sofa kl. 11 á föstudagskvöldið og vann á laugardaginn. Ég og Sigrún Dögg áttum þó ofurgott laugardagskvöld. Bjuggum til sushi og Maru; eat your heart out! Við erum natural born sushimakers, hvorki meira né minna. Það er skemmst frá því að segja að við átum auðvitað á okkur gat (skemmtilegt orðatiltæki, alltaf fundist það.) og drukkum hvítvín með. Æðislegt, í einu orði sagt. Núna verður það bara sushi í hvert mál hjá mér, hahaha! Svo fórum við niður á Vesterbro á Boutique Lize og hittum svo Hólmar á Ideal Bar. Svo var það bara snemma í háttinn eða um þrjú leytið...
Til mömmu og pabba. Þið voruð ekkert smá heppin með flugið. Business class. Vá, lúxus. Tékkarðu á vinnumeilinu þínu úti, mamma? Var bara að spá ef ég þyrfti að ná sambandi við ykkur. Ég er búin að kaupa gjöfina handa Helgu, voða fínt. Elska ykkur og bið að heilsa öllum!
Jæja, peace out brothas and sistas.
P.S. Steig greinilega of sterkan rigningardans þarna síðast. Það hefur rignt í tvær fokkans vikur!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)