Yo!
Hver af Íslandinu góða er á Hróarskeldu??? Nenniði að setja nöfn og símanúmer þeirra sem eru á svæðinu í kommentínó? Please. Fer að öllum líkindum á laugardaginn og langar þá að reyna að hitta eitthvað af þessu góða fólki. Takk beibís!
P.s. Var að kynnast nýju bandi, Rogue Wave. Platan þeirra heitir Out of the Shadow. It's the bomb yo!
Pís át.
30.6.2005
28.6.2005

Here I is... ahemm
Hello, good readers of this blibb. I've decided to write in English from now on. Eða ekki. Afsakið ókurteisina í mér að hafa ekkert blibbað í háa herrans tíð. Þannig er nefnilega mál með vexti að ég er mjög svo upptekin við vinnu, sólböð, sukk og svínarí...
Af mér er sko allt best að frétta. Fölur kroppurinn er tekinn til við að breyta um lit. Úr hvítu í rautt... ég finn það á mér að hann verður brúnn næst. Wasteland er mitt annað heimili þessa dagana og ekkert nema gott um það að segja. Fékk m.a.s. launahækkun í fyrradag. Maður stígur hratt og örugglega upp metorðastigann í tískubransanum. Haha.
Hróarskelda nálgast. Síðhærðir pílagrímar með mikla ást á tónlist bera þess merki. Þeir versla líka soldið af regnjökkum í Wasteland. Vonum samt að það rigni ekki á greyin. Svo eru einhverjar líkur á að ég skelli mér í sjálfa mekku á laugardeginum. Clint (eða Lint eins og stendur utan á sumum umslögum sem hann fær í pósti. Ahahahaha!) getur nebbla kannski smyglað mér inn á svæðið í trukkinum sínum en Wasteland verður með lítið útibú á svæðinu. Við sjáum til, við sjáum til...
Ég setti inn nokkrar myndir frá liðinni helgi. Þær eru nú mestmegnis af mér, Katrínu og Trine. Merkilegt hvað maður verður hégómafullur eftir eins og tíu glös af mojito. Helgin var sem sagt Sankt Hans þar sem við Ulla fórum í pikknikk á Íslandsbryggju og svo Frisk Fest sem minn kæri kollegi Fergus hélt. Það var nú gaman.
Þetta verður stutt og laggott í dag, enda hausinn farinn að síga og Milla litla hefur aldrei átt gott með að tjá sig þegar hún er þreytt. Þá fer allt í sló mó og svoleiðis.
Svo kannski ein getraun í lokin en svarið við síðustu getraun var Young hearts run free með Candi Station. Eða var það getraunin þar á undan...? Æ, man ekki.
Just sendin chunky rhythms right down ya block
We be to rap what key be to lock
23.6.2005
17.6.2005
Gleðilegan 17. júní!!!
Hæ elskurnar. Var að ryksuga herbergið mitt. Það tók um tvær mínútur. Skemmtilegt!
Partý á morgun hjá Millu og QueenK. Allir velkomnir. Þið, heima, getið þið ekki bara rænt flugvél og komið til mín í eina kvöldstund??? Ha hmmm...
Alla vega. Ég var að horfa á Napoleon Dynamite. Dansatriðið í lokin var the bomb!!! Endaði sjálf dansandi eftir myndina.
Jæja, elskurnar, eigið góða helgi.
Hér kemur getraun. Hvaða lag? Hvaða flytjandi?
My mind must be free, to learn all I can about me, oooh
I'm gonna love me, for the rest of my days

14.6.2005
Sjóarasukk í dulargervi dömuboðs...
Katrín, sambýliskona mín og hefðarfrú, hélt veglegt dömuboð á sunnudaginn. Gestir voru yours truly, Jens, Sigrún, Steen og Bjöggi. Á boðstólnum voru dýrindis kökur og kaffi og voru málefni líðandi stundar skeggrædd af uppábúnum ungmeyjum og kurteisum herrum. Reyndar endaði dömuboðið ekki eins prúðlega og það byrjaði. Jú, jú, það endaði með bjór, pizzu, skítafýlu og hver er maðurinn leikjum. Mega góður sunnudagur, eins og þeir gerast bestir.
Hér er nokkrar myndir.
Sólin skín. Ég vinn og hef það gott.
Getraunin. Hvaða lag? Hvaða flytjandi? Svarið við síðustu getraun var lagið Saint Simon með !!! (Chk chk chk). Erfitt, ég veit. Tékkið á þessu bandi ef þið hafið tækifæri.
Poetry is no place for a heart that's a whore
Mig grunar að Þórir sé sá eini sem getur þetta... en við sjáum til.

9.6.2005
Í dag varð Milla þráðlaus
Jú, jú, iBook yndið heldur áfram að færa mér hamingju. Þannig er mál með vexti að hér á Dronning Olgas Vej er þráðlaus nettenging og í dag flutti ég mig yfir á það. Og vitiði hvað? Ég er að blibba inni í eldhúsi. Er að spá í að rölta inn í herbergi núna. Og vitiði hvað? Núna er ég að blibba inni í herbergi. Haha.
Slæmar fréttir koma þó. iPodinn minn er fullur. Ég vissi að myndi koma að þessum degi en óraði ekki fyrir því hversu erfiður hann yrði mér. Nú verð ég bara að velja vel inn á hann. Búin að henda út músík sem ég hlusta hvort eð er lítið sem ekkert á. Þannig að... good times, good times.
Ég átti yndislegan sólarhring með henni Diljá minni, tilvonandi sambýliskonu og sálufélaga. Var m.a.s. rétt í þessu að koma heim eftir að hafa fylgt henni á lestarstöðina en hún flýgur heim til Íslands á eftir. Við höfðum það svo gott saman og auðvitað fór ég með hana niður í Wasteland þar sem hún fann nokkra gullmola. Síðan var það bara labb, H&M, matur, Þórir og meira labb. Góður dagur. Takk Diljá mín!
Ég trúi því ekki að það sé föstudagur á morgun. Það eru endalausir föstudagar hjá mér. Tíminn líður svo fljótt að áður en ég veit af verð ég flutt til Árósa og byrjuð í Kaospiloterne. Og er það mikið tilhlökkunarefni, skal ég ykkur segja!
Svona í lokin ætla ég að koma með smá tónlistargetraun. Saknið þið hennar ekki? Alla vega, ég veit ekki hvort margir kannist við þetta en textinn er góður. Live and learn! Hvaða lag? Hvaða flytjandi?
I learned a lot from smoking pot
Or maybe not
I can't remember what I forgot

6.6.2005
iBook í stíl við iPod...
Haldiði að ég sé ekki bara að blogga í nýju iBook tölvunni minni. Jú, jú, ég hef séð ljósið og skipt yfir. Hún er hvít og falleg og með 14" skjá. Ekkert slor, skal ég ykkur segja!
Helgin var ósköp mis eitthvað. Í fyrsta lagi rigndi SVO mikið og svo fór ég í eitt glataðasta lokapartý ever. Á hverju ári er svokölluð Distortion hátíð haldin í Kaupmannahöfn. Þá er alls konar skemmtilegt að gerast um alla borgina. Við Ulla hugsuðum okkur gott til glóðarinnar enda skemmtun við okkur konunglega á Distortion árið 2003. En í ár fór eitthvað úrskeiðis. Við keyptum okkur miða á 150 kr sem er ansi blóðugt og hugðust skemmta okkur vel umkringdar fögrum mönnum og dýrindis kampavíni. Það fór nú aðeins öðruvísi en við höfðum planað. Það rigndi á okkur á leiðinni þangað þannig að maskarinn var ekki alveg þar sem hann átti að vera. Partýið var haldið í Turbinehallen sem er gamalt leikhús, held ég. Og þetta var nú meira prumpið! Ömurleg tónlist og bara ekkert að gerast. Það endaði með því að við fórum bara um kl. 2. Glatað! 150 kall í vaskinn. En það kemur partý eftir þetta partý, ekki satt?
Jæja, ég ætla að halda áfram að fikta í tölvunni minni. Bless, bless, elskurnar!

2.6.2005
Molar
Það rignir óheyrilega mikið í Kaupmannahöfn núna.
Mark Felt var "Deep Throat." Merkilegt.
Ég ætlaði á Mylo tónleika í kvöld en þeim var aflýst:-(
Þess vegna ætla ég að glápa á imbann í kvöld.
Ég elska fjölskylduna mína. Þau eru svo gott fólk.
Ég elska líka sjálfa mig. En vona að ég sé ekki sjálfselsk.
Ég var að hakka í mig kókosbollu. Hún var samt ekkert spes.
Ást og friður,
Milla af Vanilluríki

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)