30.3.2005


Hubba hubba! Ég barasta verð að kíkja við!! Posted by Hello

Það er nú aldeilis!! Posted by Hello

Beibí beibí! Posted by Hello

ú la la Posted by Hello
Halló, elskurnar!
Ég verð með fata- og flóamarkað heima hjá mér á Hringbraut 43 (107 Rvk. Stendur Kamilla á bjöllunni) núna á laugardaginn frá kl. 12-17. Heill hellingur af einstaklega fallegum fötum, skóm og húsbúnaði. Svo flyt ég út til Danmerkur 11. apríl þannig að þetta er kjörið tækifæri til að koma og smella á mig kveðjukossi.
Hér er síðan smá brot af því sem ég verð með til sölu. Endilega látið alla sem þið þekkið vita af þessu.
Ástarkveðja,
Kamillla
 Posted by Hello

23.3.2005

Myndir

Var að setja inn slatta af myndum. Reyndar meira en hálfs árs gamlar en what the hey. Amsterdam og fleira gotterí.

Gleðilega páska!

17.3.2005

Ég + strætó. Sönn ást...

Ég er búin að átta mig á strætóbílstjórum. Þar sem ég er mikil stætóáhugakona og reyni að upplifa strætóferð minnst tvisvar á dag hef ég haft nægan tíma til að velta fyrir mér hátterni þeirra karla (og örfárra kvenna) er keyra strætó.
-Þeir reyna markvisst að keyra niður allt sem á vegi þeirra verður.
-Þeir gefa engum séns og svína eins og þeir fái borgað fyrir það (sem þeir fá reyndar...).
-Þeir reyna hvað þeir geta að bremsa harkalega og virða hvorki umferðarljós né stöðvunarskyldur.

Svo í morgun á leið til vinnu varð mér það ljóst að þessir strætóbílstjórar bera nú virðingu fyrir einhverju. Nefnilega, öðrum strætóbílstjórum. Þeir gefa þeim alltaf séns og ganga jafnvel svo langt að stoppa í miðju hringtorgi til að hleypa öðrum strætó inn í það (þetta gerðist í morgun). Svo vinka þeir hver öðrum statt og stöðugt. Þetta var úttekt á venjum strætóbílstjóra í boði Kamillu Ingibergsdóttur, áhugakonu um almenningssamgöngur.

Það eru bara 25 dagar í brottför til DK. Viljið þið trúa þessu? Það get ég varla. Og eins og sannri skipulagsfrík sæmir hef ég útbúið tékklista sem ég mun samviskusamlega fara eftir enda nóg að gera til 11. apríl.

Ástarsamband mitt við iPodinn minn, sem ég hef nefnt Kamillu enda stór partur af sjálfri mér, blómstrar sem aldrei fyrr. Við eyðum nánast öllum stundum saman og hamingjan er að ná hámarki. Við erum að hugsa um sumarbrúðkaup. Líst ykkur ekki vel á það?

Getraunin. Hvaða lag? Hvaða flytjandi?

Don't hang on
Nothing lasts forever but the earth and sky

11.3.2005

The hills are alive with the sound of music

Ég er að upplifa allt annan veruleika með tilkomu elskhuga míns. Nú er m.a.s. orðið gaman að fara í strætó! Lúxuslíf, I tell ya.

Úrslitin í Idol í kvöld og ég að pissa í mig af spennu. Hildur Vala er mín kona (nú lemur Brynja mig:-/). Ég kaus hana líka síðast... og Davíð Smára reyndar líka. Við Kata vorum í stökustu vandræðum, sáum fram á að þurfa að horfa á Idolið ruglað (sem er ekkert tiltökumál hjá okkur nema að talið var líka ruglað!!!) þannig að ég hringdi grenjandi í Hafdísi og hún aumkaði sig yfir okkur og bauð okkur til sín. Hún var að vinna til átta þannig að við Kata biðum fyrir utan heima hjá henni þegar hún kom heim. Algjörir aular. Það eru allar líkur á svipuðu vandamáli í kvöld vegna þess að nú eru Brynja og Hafdís ekki með Stöð 2 lengur en það er seinni tíma hausverkur. Nú liggur leið mín heim á við. Ég ætla að gera mig sæta og fara með Brynju í kokteil fyrir UJ í Landsbankanum.

Megi mín kona vinna! Haha.

Peace out.

Hey, já, langt síðan ég var með getraun síðast.

Hvaða lag? Hvaða flytjandi?

Communication is the problem to the answer
You've got her number and your hand is on the phone

Elska þetta lag. Ætla að hlusta á það frá Hamraborginni að strætóskýlinu.

Góða helgi!

8.3.2005


Hann er kominn! I have taken a lover. Ég hef þurft að sinna honum í allan dag enda 3628 lög sem hann ætlar að geyma fyrir mig, þessi elska, og hefur m.a.s. pláss fyrir meira. Nú get ég alltaf verið með músík í eyrunum. Þannig að... ég mun aldrei heyra í ykkur;-)  Posted by Hello

1.3.2005

Taskan er fundin!!

En drullusokkurinn hirti símann, peningana og strætókortið mitt. Ég er ótrúlega ánægð en pínu svekkt yfir dótinu sem ég fæ ekki aftur. Þannig að ef þið sjáið drullusokk í strætó með Samsung síma hringið þá í mig;-) Haha. Jæja, ég ætla að fara og strjúka dótinu mínu...