Það er sérdeilis maus að kaupa sér íbúð
Vá, heilinn minn er að bræða úr sér. Ég er búin að heyra svo mörg ný orð sem ég skil ekkert í. Ég hef aldrei þurft að biðja fólk um að endurtaka sig eins oft. Ég þarf greinilega að vaða eld og brennistein til að eignast íbúðina góðu á Hringbraut 43. Sem betur fer hef ég gott fólk til að aðstoða mig, annars væri ég löngu hætt við og byggi í pappakassa við Hringbraut. Þetta virðist samt allt ætla að smella hjá mér.
Ég er meira að segja alvarlega farin að íhuga kommentínóið hennar Rósu Maríu hér fyrir neðan. Hún spurði hvort ég ætli ekki að halda innflutningspartý. Þar sem það eru þrjú ár síðan ég flutti inn í íbúðina fannst mér það skrýtin hugmynd en svo hef ég nú aldrei búið í íbúðinni og ÁTT hana líka. Þannig að ég held ég haldi smá partý þegar norski sambýlingur minn flytur út...
Getraun dagsins er viðeigandi að sumu leyti. Hvaða lag? Hvaða flytjandi?
In my dreams I have a plan
If I got me a wealthy man
I wouldn't have to work at all,
I'd fool around and have a ball...
28.10.2004
24.10.2004
Ég er búin að borða yfir mig af sörum. Ég er þunn. Ekki gott combo...
Það var samt gaman í gær. Einstaklega gaman! Gott úrskriftarpartý hjá Þórhildi, Hannesi Melkorku og Friðgeiri. Dansaði frá mér allt vit á Kaffibarnum, talaði við dvergvaxinn New York búa og fagran Þjóðverja. Eyddi líka líka nokkrum orðum í yndin mín Þóri, Ölmu og Kötu;-) Ég var klædd eins og diskókúla en mjög flott diskókúla, með þeim flottari reyndar.
En nú Króníkan!!!

21.10.2004
Íþróttaunnandi. Ég...???
Ég hef nú aldrei verið mikið fyrir íþróttir. Því til stuðnings:
Þegar ég heyri .... hugsa ég um ....
HM - Verslunin H&M en ekki heimsmeistarmótið í bla bla bla
Rautt spjald - Litaspjald í málningarbúð en ekki eitthvað refsidót í fótbolta
Fótbolti - úúú, flott læri en ekki áfram Keflavík eða eitthvað annað lið!
Boltinn á Skjá Einum - Oh, hvað á ég þá að horfa á í staðinn?!
Ellert B. Schram - Ætli hann sé skyldur Bryndísi Schram?
Íþróttasíðurnar - Hef aldrei lesið þær. Skoða stundum myndirnar en eingöngu þegar ég er búin að lesa restina af blaðinu upp til agna.
Pool - Ú, je, skemmtilegt!!!! Vei, ég hef fundið mína íþrótt.
Nú er ég í greiðslumati hjá bankanum mínum. Mikið stuð og mikil spenna. Fékk einmitt mjög svo skemmtilegt bréf frá Eurocard um daginn. Venjulega fær fólk hótunarbréf frá slíkum fyrirtækjum en nei, ekki Kamilla Ingibergsdóttir, ung kona með allt á hreinu. Eftirfylgjandi er smá bútur úr bréfinu:
Nýverið lét kortakerfi okkar vita það að þú nálgaðist innlenda úttektarheimild þína (úpps). Þar sem þú ert einn okkar bestu og skilvísustu viðskiptavina (Yeah dawg!) viljum við forða þér frá þeim óþægindum sem fylgja því að fá synjun. Þess vegna höfum við, þér að kostnaðarlausu, hækkað heimilidina upp í xxxxxx (kemur ykkur ekki við en ég veit ekki hvort sú upphæð kann að vera mjög skynsamleg fyrir unga konu sem er að kaupa sér íbúð...). Þetta gerum við til að undirstrika það traust sem þú hefur áunnið þér hjá Eurocard (Það er naumast!!!)... og svo framvegis og framvegis.
Já, það er gaman að vera ung kona (vinsæl orð í þessari færslu) á frambraut sem notar kreditkort eins og hún fái borgað fyrir það! Haha! En á þó alltaf fyrir reikningnum;-)
Airwaves þurfa að komast af án mín. Er alltaf að bíða eftir að gaurarnir í Popplandi hringi og gefi mér frímiða en það gerði ég víst líka fyrir Hróarskeldu og aldrei kom símtalið...
Helgin framundan, útskriftarveislur um allan bæ og Kamilla ekki búin að bregða undir sér betri fætinum í Rvk síðan 2. október (persónulegt met!). Þannig að... Sjáumst á barnum;-)
Getraunin. Hvaða lag? Hvaða texti?
I never did believe in miracles,
but I've a feeling it's time to try.

13.10.2004
Fullorðna Kamilla
Hæ. Ég var veik í Amsterdam sem gerði það að verkum að ég fór að sofa um 10 leytið öll kvöldin sem var allt í lagi vegna þess að ég var hvort sem er alveg búin á því eftir að hafa gengið um stræti þessarar frábæru borgar! Þetta var voða fín ferð. Mjög skrítin vegna þess að mamma var aðalrokkarinn og ég drakk bara te og snýtti mér. Ég gerði góð kaup og hafði það svo ofsa fínt á lúxus hótelinu sem við gistum á. Morgunverðarhlaðborðið var svo mikilfenglegt að ég býst ekki við að sjá svoleiðis aftur fyrr en ég fer til himna. Svo var allt starfsfólk svo almennilegt og yndislegt og aðgangur að gymi (ekki að ég hafi notað það. Ha!) og gufu (sem var æði pæði). Bara hreinræktaður lúxus.
Í Amsterdam fór ég líka inn í flottustu second hand búð sem ég hef á ævi minni komið í. Hún heitir Laura Dols og er sjúkleg!!
Það hefur ýmislegt gerst síðustu daga. Ég er orðin fullorðin og ábyrgðarfull kona og er að fara að festa kaup á minni fyrstu íbúð! Já, sæjitt. 1. h. h. á Hringbraut 43 verður bráðum mín eign (eða eftir 40 ár eða svo...). Ég ætla nú ekki að blaðra of mikið um þetta þar sem hjólin eru rétt að byrja að snúast. Right on!
Hér er hin langþráða getraun (ekki satt?!). Hvaða lag? Hvaða flytjandi?
Drifting and free
On a mystical sea.
A wishful emotion,
A drop in the ocean.

6.10.2004
Passar ekki alveg
Komiði sæl. Long time no blibb. Nú er svo búið að ég er veik og er að fara til Amsterdam í fyrramálið. Hvað gera bændur þá? Ég verð veik u.þ.b. einu sinni á ári og það þarf endilega að gerast vikuna sem ég hyggst skella mér til Amsterdam til að upplifa lífsins lystisemdir með ástkærri móður minni. Arghhh!!!! Ég hef sem sagt verið á góðri leið með að hósta úr mér lungunum síðustu daga. Get ekki komið út úr mér einni setningu án þess að hósta. Mjög aðlaðandi... Hlakka einmitt mjög mikið til að sitja í flugvél og anda að mér endurunnu lofti í nokkra tíma. Þá verður sko hóst festival hjá minni. Ég bind vonir mínar við undramixtúru er við sólhatt og c-vítamín er kennd og vænan slurk af hóstasafti.
Annars er svo sem ágætt að frétta af lífshlaupi Kamillu litlu:
-Göngum til góðs er búið og gekk vel í Kópavogi þannig að ég get hætt að vera með það á heilanum og snúið mér að öðrum verkefnum.
-Ég er búin að fá nýja eldavél sem er íðilfögur með keramik helluborði. Verst að ég tími varla að elda á henni svo fögur er hún...
-Ég komst að því með hjálp Guffa og Katrínar að lífstíll unga fólksins í dag einkennist af mannskemmandi ógeði og að ekki taka allir vel í koss á kinn. Þetta gerðist allt í internasjónal partýi hjá henni Heiðdísi.
-Ég komst að því að inngönguskilyrði á Októberfest ætti að vera ofurölvun. Annars er ekki hægt að vera inni í svo troðnu tjaldi. I found out the hard way, íklædd lopapeysu og leðurjakka og einungis búin að drekka einn sopa af bjór.
-Ég hef ekki enn orðið ástfangin er bíð spennt eftir nýjum vonbiðlum enda um gróðugan garð að gresja (Þessu hef ég verið að átta mig á undanfarið eða er standardinn kannski að minnka???).
Jæja, ást og friður veri með ykkur. Sjáumst!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)