24.9.2004
Það var svo ljúft að láta sólargeislana og kaffiilminn vekja sig í morgun. Einkakokkurinn minn hafði útbúið hollan og næringarríkan morgunverð sem ég borðaði á meðan ég las Morgunblaðið og Fréttablaðið. Eftir daglegu jógaæfingarnar rölti ég svo í vinnuna þar sem mín biðu verðlaun fyrir að standa mig einstaklega vel í starfi.
Raunveruleikinn...
Ég svaf varla dúr í fokkans nótt vegna þess að heimasíminn hætti ekki að hringja! Klukkan fjögur byrjaði það. Dring dring, dring dring. Eftir að hafa blandað dringinu saman við ósléttar draumfarir drullaðist ég loksins í símann og þá var skellt á. Einmitt! Ég fór aftur upp í rúm og bölvaði og ragnaði þar sem ég átti að vakna eftir þrjá tíma. Svo loks þegar ég sofnaði aftur byrjar símadruslan aftur. Dring dring, dring dring. Í þetta skiptið stökk ég fram og svaraði svefndrukkin, „halló!!!“ „Hola,“ heyrist hinum megin á línunni og eitthvað spænskt bla bla. Ég var svo rugluð að ég sagði bara „þetta er Kamilla“ ofurhægt, aftur og aftur. Mér fannst ég heyra einhvern hlæja en er ekki viss. Skellti síðan bara á og tók tólið af. Gat síðan fyrir enga muni sofnað aftur vegna þess að ég var svo reið. Ef einhver var að gera at í mér á sá hinn sami, ef ég finn hann einhvern tímann, martröð í vændum...
Svo hringdi klukkan á slaginu sjö. Ekki gaman! Fór á fætur og leit út og hélt í smá stund að fellibylurinn Jeanne væri kominn til landsins. Gúffaði í mig einum banana og las ekki neitt vegna þess að ég er búin að segja upp Mogganum (sparnaðaraðgerðir) og asninn sem ber út Fréttablaðið ber það út þegar honum/henni sýnist. Síðan hélt ég út í óveðrið til að ná strætó. Strætóbílstjórinn keyrði eins og vitleysingur alla leið inn í Kópavog og svo rak ég hausinn í stöng á leiðinni út.
Klukkan er bara 10... Með þessu áframhaldi veit ég ekki hvað verður um mig í enda dags.
Og já. Gæti ég verið meira hress? Greinilega...:/
Svo er það ein getraun í tilefni þessa frábæra dags sem ég ætla einmitt að nota til að flýja til Keflavíkur (if it won't be the death of me...) og eyða helginni í faðmi foreldra minna á SéstVallagötunni. Peace out!
Hvaða lag? Hvaða flytjandi?
Hangin' around
Nothing to do but frown
Rainy Days and Mondays always get me down.
16.9.2004
Sökum þess að ég er með eindæmum upptekin framakona þessa dagana kemur hér smá uppdate á lífi mínu.
-Kvef, ó já, kvef. Og nóg af því.
-Vinna, ó já, vinna. Og nóg af henni. Hvet líka alla til að ganga til góðs 2. október. Tékkið á heimasíðu Rauða krossins
-Síðasta helgi var the bomb. Takk Alma, Þórir og Brynja for an ab fab evening. Gósentíð, ó já.
-Ég ætla að mála baðherbergið mitt um helgina. Með sérstakri aðstoð, að sjálfsögðu;-)
-Á morgun fer ég í dekur í Baðhúsinu með Hilmu minni! Svo ætlar Jón Björn að elda humar ofan í okkur eftir herlegheitin.
-Ég er komin í aukavinnu hjá stórvinum mínu Gunnhildi og Fabri á nýjum og glæsilegum Stúdentakjallara. Tékkið á pleisinu, m.a.s. hægt að fá lunch þar núna. Ljúffengt!
-Ingi Þór fer að koma heim. Víííííííí!!!
-Jæja, hef ekki tíma fyrir meira. Peace out!
Jú, kannski ein getraun. Hvaða lag? Hvaða flytjandi?
No sweeping exits or offstage lines
Could make me feel bitter or treat you unkind
11.9.2004
Ég er búin að vera í mega tilvistarkreppu þessa vikuna. Ég held að hana megi reka til blautviðris og haustkomu. Mér hefur fundist líf mitt innantómt og laust við alla æðri merkingu. Skemmtilegt, ekki satt?:-/ Símtal frá móður minni var því himnasending í gær þegar ég var komin upp í rúm um kl. 15 með bók í hönd. Þau komu í Rvk. og þvældust með litlu stelpuna sína um allar trissur, keyptu sér NASA rúm og björguðu geðheilsu einkadótturinnar. Pabbi minn er líka svo mikið að æði að hann skrifar alltaf tónlistarblöndu á disk fyrir mig þegar ég er eitthvað down. Í gær færði hann mér kammermúsík sem er sko alls ekki kammermúsík heldur frábært samansafn af brilliant lögum. Anathema, Masters of Reality, A Perfect Circle, Robert Plant, Radiohead, Muse og svoleiðis. Allt svona róleg og falleg lög. Takk, daddy cool! Á disknum er einmitt lag sem minnir mig á þegar ég var á barmi heimsfrægðar, þ.e. þegar Ingi Þór sendi demo í Future music og þriggja laga demo diskurinn hans var valinn best reader's demo of the month. Já, þar var lag sem við gerðum saman. Ég söng og samdi textann með elsku litla bró. Ég hef aldrei getað hlustað á þetta lag sökum þess að mig langar til að æla þegar ég heyri mína eigin rödd. Ekki gott efni í stórstjörnu á sviði. Ælir bara alltaf þegar hún byrjar að syngja... Alla vega, í dag er ég hress og glöð og hef kvatt tilvistarkreppuna í bili.
Ég er búin að smella inn tveimur nýjum tenglum:
Matta: Hún Matta er góð vinkona Þóris og Héðins. Ég hef nú bara hitt hana nokkrum sinnum en finnst hún alveg einstaklega skemmtileg stelpa. Hún er einmitt nýflutt til draugabæjarins Arhus... Nei, nei, hann er svo sem ágætur þessi bær. Alla vega rúla Sway og DJH! Og Matta auðvitað líka!
Sirrý: Sirrý er jafnaldri bróður míns en það sem skilur þau að eru hús og bíll. Já, svei mér þá, hún Sirrý og Stebbi, kærastinn hennar, eru nágrannar foreldra minna og búa í svaka flottu einbýlishúsi sem þau nýverið festu kaup á. Það sem við Sirrý eigum sameiginlegt er einstök smekkvísi og ást á Sex and the city.
Núna er komið að getrauninni. Hvaða lag? Hvaða flytjandi?
And wouldn’t it be nice to live together
In the kind of world where we belong
6.9.2004
Hejsa!
Best að útlista atburði helgarinnar á skipulagðan hátt:
Föstudagur:
Ég hætti snemma í vinnunni og tók strætó heim. Mín beið dekurdagur á Mecca Spa. It was the bomb. Ég mætti um 14.30 og fór í pottinn og slakaði aðeins á, síðan kom nuddari og náði í mig í 60 mínútna slökunarnuddið sem stelpurnar gáfu mér í afmælisgjöf. Þetta var himnaríki. Puttarnir mínir voru m.a.s. nuddaðir. Eftir þetta yndi fór ég í litun og plokkun með Dögg. Síðan biðum við eftir Önnu og Brynju. Þegar þær komu drukkum við freyðivín og slúðruðum. Æði! Eftir þetta beið okkar dýrindis matarveisla heima hjá Önnu og Freysa. Freysi hafði séð um allt. Fyrsti réttur var svartfugl, annar réttur kræklingapasta, þriðji réttur sushi, fjórði réttur steinbítur og í eftirrétt voru ostar. Þvílíkt og annað eins lostæti. Þemað var hafið og Freyr á sko hrós skilið, meistarakokkurinn sjálfur.
Mamma kom síðan og sótti mig um 23.30 og við brunuðum til Kef með allt dótið sem ég ætlaði að selja. Ég henti öllu inn á Séstvallagötunni og henti mér síðan í innflutningspartý til Ásdísar og Stebba í nýja fína húsinu þeirra. Þar hitti ég fullt af skemmtilegu fólki, þ.á.m. Ingu Fríðu (Halló, elskan. Takk fyrir síðast;-)). Við fórum síðan niður í bæ á stað sem heitir Traffic. Þar var Páll Óskar að spila og ég dansaði til kl. 3. Loks drullaði ég mér heim, nokkuð mikið þreytt.
Laugardagur:
Ég vaknaði kl. 9.30. Veit ekki alveg hvernig mér tókst það! Fékk mér morgunmat með ma og pa og fór síðan út í skúr að taka til. Það tók nokkra tíma:-/ Klukkan þrjú byrjaði síðan mega bílsskúrsalan og það var mjög gaman. Ég seldi heilan helling af fötum og við vorum að til rúmlega sjö. Hérna eru myndirnar. Þá beið mín grillmatur sem ég borðaði af bestu lyst. Svo ætlaði mín sko að dance the night away en nei... Ég var svo búin á því að ég meikaði ekki einu sinni út. Steinsofnaði á miðnætti á meðan allir bæjarbúar skemmtu sér vel á skemmtilegasta kvöldi ársins í Kef. Bömmer Jónsson! Missti ég nokkuð af einhverju?????
Sunnudagur:
Ég fékk far með Hilmu og Jóni Birni til Rvk. Svo eyddi ég deginum á náttfötunum og horfði á fyrstu seríuna af Six feet under (Takk fyrir að lána, Þórir:-)). Þetta eru svo brilliant þættir að ég horfði á níu þætti í röð. Sæjitt! Á einhver seríu númer 2 á dvd????
Getraunin. Hvaða lag? Hvaða flytjandi?
Sick tired and sleepless
With no one else to shine for
2.9.2004
Mega bílskúrssala á Vallargötu 22 á ljósanótt. Fullt af ódýru og flottu góssi. Gallabuxur, skór, jakkar, úlpur, kjólar, peysur og margt fleira. Þetta byrjar kl. 15 og verður til ca. 19 eða þar til allt klárast:-)
Góð músík, kaffisopi og smart föt. All you need for the weekend, baby!
Sjáumst! Kamilla og Hilma.
1.9.2004
Góð vinkona mín hringdi í mig áðan. Hún er á leiðinni til útlanda í boði manns sem er skotinn í henni. Ég fór að hugsa. Í næsta mánuði er ég að fara í spa ferð til Amsterdam. Með mömmu minni (Ekki móðgast mamma:))! Auðvitað samgleðst ég vinkonu minni en um leið dauðöfunda ég hana. Síðast þegar ég fór á deit (Og þá var mér boðið á kaffihús, ekki til útlanda!) var það með Steffen í DK og mér fannst hann síðan ekki nógu spennandi, þó hann hafi verið með tattoo af Jimi Hendrix á öxlinni. Já, svona er þetta víst.
Látum þetta gott heita.
Getraunin í dag. Hvaða lag? Hvaða flytjandi?
All these blues that I've found
Have really got me down
You are on my lonely mind