Rassinn brennur
Vá, ég fór í ljós í gær á sólbaðstofuna bliss (smart nafn) og brann svona svakalega á rassinum. Ég á bágt með að sitja ég er svo brennd. Ég verð örugglega eitthvað skrítin í þessu partýi í kvöld. Stend bara allan tímann og gef frá mér eldrauðar hitabylgjur í allar áttir.
Við Anna erum að spá í að hefja feril sem skemmtarar. Við áttuðum okkur á því að það er lítið um konur á því sviði. Freyr er nefnilega að meika feitan bökk á skemmteríi um allan bæ. Hér með býð ég fram þjónustu okkar í samkomur nær og fjær. Meðal skemmtiatriða er búktal á dönsku, listrænn sorgardans og margt, margt fleira. Kannski að ég taki taki smá prufukeyrslu á prógramminu í partýinu í kvöld enda stóðu æfingar yfir í gærkvöldi þannig að þetta er mér ferskt í minni.
Eitt enn. Snillingsbróðir minn hann Ingi Þór er bara on the road to stardom í Manchester. Ekki nóg með sigurinn í Futuremusic í haust þar sem ykkar einlæg gólaði með honum heldur hefur lítið útgáfufyrirtæki augastað á honum. Þau nálguðust víst disk með músíkinni hans og vilja ólm „signa“ drenginn. Ú, beibí, beibí! Klöppum fyrir drengnum!
Ciao og góða helgi, beibís!!
27.2.2004
25.2.2004
Sérlegur ráðgjafi
Ég verð að plögga smá. Gunnhildur Eyja og Fabri, vinir mínir, eru að fara að taka alfarið við rekstri Stúdentakjallarans. Þau hafa reyndar verið rekstrarstjórar þar í nokkurn tíma en nú munu þau sjá um allt heila klabbið. Ég heimsótti þau í gær á nýja „heimilið“ og aðstoðaði þau með íslenskuna á nýju heimasíðunni sem þau voru að búa til. Þar sem ég er þekktur stafsetningarnasisti þýddi ekki annað en að láta mig lesa yfir textann en Gunnhildur ólst nefnilega upp í Noregi og Fabri er ítalskur í húð og hár. Eina sem hann segir á íslensku er „skítastelpa,“ alla vega við mig;-) Ég er semsagt sérlegur ráðgjafi þeirra skötuhjúa og fæ að launum bjór. Hahahaha. Reyndar var mér að detta í hug að halda upp á 25 ára afmælið mitt á þeim indæla stað en það er ekki fyrr en í apríl... Spennó pennó.
Alla vega, Eivör Pálsdóttir er að spila á Stúdentakjallaranum á föstudagskvöldið og það er frítt inn. Tónleikarnir byrja kl. 21.30.

Bakið er að drepa mig
Er að upplifa bakverki í fyrsta sinn á ævinni. Stólinn í vinnunni er frekar skringilega stilltur og ég kann ekki að breyta því. Verð eiginlega að hringja þangað sem hann var keyptur og fá leiðbeiningar. Mér er m.a.s. svo illt að ég gat varla sofnað í gærkvöldi og ég get alltaf sofnað. Hundfúlt.
Ég horfði á Queer eye for the straight guy í gærkvöldi. Frábærir þættir en ég verð að segja að gaurarnir sem þeir breyta eru ekki nógu lúðalegir. Gaurinn í gær var til dæmis ekkert fashion disaster, bara týpískur kani myndi ég segja. Hann átti fína íbúð en það var bara rosa drasl í henni. Reyndar gerðu þeir allt voða smart hjá honum og svoleiðis en ég hefði viljað sjá meiri lúða og þ.a.l. meiri umbreytingu. Og ég veit að það er nóg af þeim þarna í U.S.A. Svo er annað, ætli það sé þörf á þætti sem heitir Queer eye for the straight gal? Ég get nú talið upp þónokkur kvenkyns fashion disasters eins og til dæmis Leoncie... Hvernig væri að taka tískulöggurassíu á hana?
Nú fer Lalli bróðir að koma heim frá Marokkó. Hann og familían eru búin að vera þar í næstum mánuð. Það verður auðvitað voða gott að fá þau heim en það þýðir að ég þarf að skila bílnum þeirra. Boo hoo! Ég er orðin allt of góðu vön, er ekki alveg að fara að meika strætó núna:-/
Eníhú, þetta sniðuga dót fékk ég frá Katrínu. Það er naumast hvað fólk getur látið silly hluti út úr sér:
*Það er ekki hundur í hettunni (það er ekki hundrað í hættunni)
*Það er ljóst hver ríður rækjum hér (það er ljóst hver ræður ríkjum hér)
*Þetta er ekki upp í kött á nesi (...ekki upp í nös á ketti)
*Mér er nú ekkert að landbúnaði...
*Allt fór afsíðis sem gat farið afsíðis...
*Þessi peysa er mjög lauslát...
*Þau eiga þvílíka myllu, lifa eins og greifingjar og leika á als
eggi...(Geri aðrir betur...)
*Hann sló tvær flugur í sama höfuðið...
*...þarna hefði ég sko viljað vera dauð fluga á vegg...
*Ég sá svo sætan strák að ég fór alveg fram hjá mér...
*Hann sat bara eftir með súrt eplið...
Þetta minnir mig á soldið fyndið. Muniði eftir Addicted to love með Robert Palmer? Já, rosa fínt lag. Einu sinni fór ég á einhverja síðu sem sérhæfir sig í því að birta texta við lög. Nema það að textarnir eru bara bull sem fólk heldur að sé rétt:
Smá brot úr Addicted to Love:
... dúdírúrírú... might as well face it, you're just a dick with a glove...
Hahaha!

24.2.2004
Ég er engin bolla
Bolludagurinn kom og fór og ég tók varla eftir honum. Það voru allir í svaka bollufríki og átu árskvótann af rjómafylltum sultusprengjum á einum degi. Ekki ég. Mér finnst bollur vondar. Ekki kannski vondar en mér finnst þær ekki bútur af himnaríki. Frekar fengi ég mér kanilstykki eða kanillu eins og ég kýs að kalla þann ljúffenga bita. Ekki of sætt, ekki of blautt og ekki of mikið.
Ég er víst að fara að útskrifast. Já, ég hef verið í skóla frá sex ára aldri en nú loksins, á 25. aldursári, ætla ég að taka mér breik. Ég er sem sagt að fara að útskrifast úr viðbótarnámi í hagnýtri fjölmiðlun á laugardaginn. Svaka stuð... eða ekki. Ég ætla ekki að fara á útskriftina. Ég útskrifaðist seinast í júní 2002 og fór á blessaða athöfnina. Það var svo sem fínt en ekkert sem ég nenni að endurtaka, sérstaklega með svona stuttu millibili. Anna er nú samt að fara að útskrifast með B.A. og viðbótarnám þannig að því verður fagnað. Hún ætlar að halda kokteilboð, svaka fancy. Dress code og alles. Þetta verður bara eins og uber chick nacht hér forðum daga.
Svo verður svaka Röskvupartý á föstudaginn. Ég ætla sko að mæta hressust í það. Er m.a.s. að fara í klippingu á föstudaginn þannig að ég get verið smart og hress;-)

23.2.2004
Monday, Monday
Góðan og blessaðan daginn. Helgin liðin og ég mætt til vinnu fersk og reyklaus. Mér tókst að fara á djammið á föstudaginn og ekki reykja. Ég verð nú að viðurkenna að sjaldan hef ég verið jafn sjúk í smókinn. Mig langaði næstum að sleikja öskubakka, hmmm... En innri aginn kom að góðum notum og góða fólkið sem minnti mig á krabbamein, hósta og og þann sjúklega mikla pening sem hægt er að eyða í þetta rugl. Pakki á dag í eitt ár=189.000 kr, ha!!! Vá ég gæti keypt mér svo mörg skópör fyrir þennan pening. Alla vega, svo við snúum okkur aftur að föstudagskvöldinu. Anna var að fá nýja og fína vinnu og Dögg átti afmæli þannig að við borðuðum góðan mat heima hjá mér, Önnu og Freysa. Fórum síðan í þessum snjó twister niður í bæ og það var svona lala. Alma og Þórir komu síðan mjög svo edrú á Kaffibarinn en voru ofurhress að vanda. Kvöldið endaði síðan í Select í Öskjuhlíðinni og varð pylsa með kartöflusalati fyrir valinu. Jamm.
Ég man satt best að segja ekki hvað ég gerði á laugardaginn. Dagurinn er í móðu.
Sunnudagur var konudagur. Ég hef þá tilhneigingu að vera þriðja hjólið hjá skemmtilegum pörum. Hilma og Jón Björn eru auðvitað par nr. 1 en síðan eru Anna og Freyr að vinna sig upp hægt og sígandi. Á konudaginn vakti Freyr okkur Önnu með dýrindis morgunverði. Ég bara átti ekki til orð, var búin að gleyma hvað hitt kynið getur verið indælt. Svo þrifum við Anna hátt og lágt, skelltum okkur í sturtu og glansgallann og héldum í pönnsur hjá afmælisbarninu Dögg. Rosa fínt. Along came Polly varð síðan til að ljúka helginni. Asskoti fín mynd, ég hló og hló alla vega enda Ben Stiller alltaf sjúklega fyndinn.

19.2.2004
Það eru farin að birtast hár á undarlegustu stöðum...
Reyndar á ég bara við bifhárin en þau virðast hafa drukknað í reykingaslími síðustu 11 ár (11 ár!!! Sæjitt!!!). Þetta slím er nú óðum að leita að útgönguleið úr líkama mínum þar sem nikótíndjöfullinn býr ekki lengur þar. Anna hræddi mig skítlausa (það virkar kannski ekki alveg að þýða þetta bókstaflega úr enskunni) þegar hún sagðist hafa verið með svona skíta hætt-að-reykja-hósta í þrjá fokkings mánuði. En ég læt mig hafa það. Reyndar hef ég smá áhyggjur á því að hafa drepið samkvæmislíf mitt þegar ég drap í síðustu sígarettuni á mánudagsmorgun. Alla vega kvíði ég mjög svo fyrir helginni og ekki er það gott. Ef ég get ekki lifað fyrir helgarnar hvað á ég þá að lifa fyrir??????
Já, ég get alveg endalaust talað um þetta nýfundna reykleysi mitt. Reyndar hefur pirringurinn ekkert minnkað, jafnvel bara aukist. Ég fór í mat til Mutti und Vati í gær og ég held að ég hafi röflað stanslaust í henni móður minni allan tímann sem ég var þarna. Sorry, mútta og maturinn var æði pæði!
Í kvöld er það American Splendor. Freyr, my roomie, gaf mér tvö stykki boðsmiða (bless his heart...) og ég ætla að skella mér á þessa mynd sem fékk víst 96% á rottentomatoes.com.
Talaði við yndislegan bróður minn í gær. Við erum búin að ákveða að ég haldi utan í júní. Manchester, look out!!!!

18.2.2004
Ussssssss...
Hæ, aftur. Ég hélt ég væri hætt að blibba en nú er ég hætt að reykja og verð að hafa eitthvað. Þannig að... I'm back!!!!!! Þar sem ég er háttvirtur framkvæmdastjóri núna verður þetta ekki eins siðlaust blibb og það var (hmmm...). Ég tók líka eftir því að það er ennþá fólk að kíkja á síðuna mína. Rökrétt skýring á því væri líklega sú að þessir gestir vilja nýta sér tenglana á síðunni til að fylgjast með gjörðum annarra en ég kýs að trúa því að það sé fólk þarna úti sem vill heyra í mér og bíður og vonar að ég hafi skrifað eitthvað. Ég gaf þessu elskulega fólki mánuð til að endurlesa blibbið frá byrjun og nú er komið að fersku upphafi. Reyklaus Kamilla = Nýtt blibb. Ég get samt engu lofað um skemmtanagildi þessa bloggs vegna þess að á síðustu dögum hefur pirringur vegna nikótínleysis og baráttu við vanann verið að gera vart við sig. Ég hef samt tröllatrú á sjálfri mér og er ótrúlega sátt við ákvörðun mína um reykleysi. Ég er að starta hollu líferni og trúi því og treysti að ég geti verið skemmtileg og fyndin án sígarettunnar. Gugga er hætt að borða kjöt og ég er hætt að reykja. Þetta er alveg magnað!!! Ég vona samt að ég verði ekki spikfeit... ég hef nefnilega mikla matarlöngun þessa dagana. Fjandans!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)