30.9.2003

Eg er lika 24 tima partykona, pabbi;-)

Djøfull er eg buin ad vera løt ad blibba. Thannig er mal med vexti ad eg hef ekki komist i tølvu lengi. Blibba a morgun. Er a internetkaffi nuna og nenni ekki ad borga fyrir svona lagad.
Koss og koss.

25.9.2003

Sexid
Atti sofaklessukvøld i gær med Thorhildi og Katrinu. Djøfull var thad ljuft. Eg og Thorhildur spiludum Scrabble og eg verd ad segja ad eg er ultrameistari i Scrabble, vann hana med 104 stigum. Oh, beibi! Kl. 00.10 hofst sidan Sex and the City marathon. Thad er nybyrjad ad syna nyustu seriuna her og eg fekk tvo fyrstu thættina beint i æd. Eg var nu eiginlega buin ad gleyma thvi hversu groft thetta er. A timabili vorum vid alveg hlessa. "Er i alvørunni verid ad syna thetta i sjonvarpinu?" Eftir skammtinn okkar komumst vid Thorhildur ad thvi ad vid thurfum a karlmønnum ad halda. Katrin kukalabbi er ekki i sømu stødu en hun er ad fara a hot deit i kvøld. Vid erum mjøg abbo en ætlum thess i stad ad vera sjuklega sætar i partyinu annad kvøld. Vid erum nefnilega ad fara i mørg thusund manna party hja Haskolanum i Hroarskeldu. Thar hljota ad bida okkar nokkur fornarlømb. Sendid okkur veidistrauma... vid kunnum thetta nebbla ekki:-/

23.9.2003

Haldidi ad hann hafi ekki bara latid taka rafmagnid af borginni...
Ja, ja. Vid Hilma forum i brunch a Morgan's og heldum svo nidur i bæ. Ekki vorum vid bunar ad vera thar lengi thegar rafmagnid for af allri borginni. Hilma greyid er ad fara heim i fyrramalid og ætladi ad nyta daginn i ad hreinsa ut ur H&M og alika budum. Svo fer bara rafmagnid af... What?! Vid høfum sterkan grun um ad Jon Bjørn standi a bak vid thetta. Hann hafdi ahyggjur af hatterni okkar Hilmu i budum... hefur liklegast bara togad i nokkra spotta og latid taka rafmagnid af. Thad er otrulegt hvad madur er hadur rafmagni. Nanast ekkert hægt ad gera an thess. Thad var allt ad verda vitlaust. Engin umferdarljos thannig ad thad eitt ad labba yfir gøtu vard ad lifshættulegri athøfn. Vid keyptum okkur bara is og nammi og forum heim til Ullu og bidum eftir rafmagninu. Loksins kl. 16.30 kom thad aftur a. Hilma hoppadi hæd sina af kæti og vid hlupum nidur i bæ. Nadum ad eyda ansi miklu a niutiu minutum. Nuna er nattfataparty hja Ullu. Hun er ad prjona, Will og Grace i imbanum og stafli af Sed og heyrt (hinu islenska edalbladi) a sofabordinu. Jæja, elskurnar. Ast og fridur eins og pabbi myndi segja.

P.s. Elsku Alda, Til hamingju med afmælid a sunndaginn og elsku Lara Ellen, til hamingju med afmælid a føstudaginn. Elska ykkur, storu stelpur!
Komidi blessud og sæl. Ja, eg er enn a lifi thratt fyrir ad hafa verid ansi tæp a føstudaginn. Eftir rutuna og flugvelina hitti eg hana Hilmu mina. Hun var buin ad bida eftir mer i tvo og halfan tima a flugvellinum. Ekki voda gaman. Vid forum sidan i lestina saman til Århus. Thegar vid komum heim hentum vid okkur i sturtu og sidan i party. Vid ætludum rett ad stoppa i klukkutima en komum sidan ekki heim fyrr en kl. 4 um nottina. Thad var alveg rosalega gaman. Nuna erum vid i Kbh. Eg er hja Ullu og Esben og Hilma gistir hja Bjørk. Svo fer hun heim a morgun:-( Vid ætlum a sma budarrølt i dag...

Eg verd her fram a sunnudag. Ætla ad gera eitthvad skemmto med henni Ullu minni. Nenni ekki ad blibba a thessu lyklabordi. Ciao!

19.9.2003

Hæ! Sit a flugvellinum i Tallinn. Var ad ljuka tæplega thriggja tima rutuferd. Nu bidur min rumlega klukkutima flug og sidan tæplega fjøgurra tima lestarferd. Holy moly. En Hilma min verdur med mer svo thad verdur gaman i lestinni.
Seinna!

17.9.2003

Slá í gegn

Haldiði að elskulegur bróðir minn hafi ekki sent demo disk til Future Music og eitt lag af disknum var valið á disk sem fylgir blaðinu mánaðarlega. Ekki nóg með það að lagið hans var valið heldur er þetta lag sem ég syng og þetta fer í dreifingu um allan heim. Ó mæ god!!!! Það heitir því fallega nafni Kamilla;-) Alla vega, nú mun rödd mín óma um allan heim!!!! Vaaaaaa...
Tree advices for you...

Það sem hefur haldið okkur gangandi hér í Tartu, the intellectual center of Estonia, er hann John, kennarinn okkar. Hann hefur engan húmor og talar fyndnustu ensku í heimi. Stundum á maður bágt með að halda niður í sér hlátrinum. Vinsæll brandari hjá okkur hefur verið. "Hello, my name is John and I have tree advices for. Nr. two follows nr. one and number two follows nr. tree." Eflaust finnst ykkur þetta ekkert fyndið en við höfum hlegið endalaust. Stundum tekur hann sig jafnvel til og býr bara til ný ensk orð. Svo sitjum við öll og horfum gapandi á hann.

Allavega... vildi bara segja ykkur frá þessu.

P.S. Frank Sinatra er ekki lengur nr. 1 hjá mér. Nú er það gömul Bollywood músík. Yndislegt alveg hreint!
Loksins

Ó, jess. Ég er búin að skrifa greinina. Mín fyrsta "investigative article." Var að skrifa fram á kvöld í gær en þetta hafðist. Reyndar verður svona feed back dót á eftir þar sem við gagnrýnum greinar hvers annars. Svo höfum við klst. til að laga þær. Svo verður það white russian í kvöld en hann kostar bara ca. 200 kr. Ljúft!

Sumir voru að skrifa til kl. 5 í morgun. Ekki öfunda ég þau:-/

Jæja, lítið að frétta fyrir utan þetta.

Blessí

16.9.2003

Tilviljun...

Hávdí, dúdí! Jæja. Í tengslum við eina greinina sem ég er að skrifa gerðum við Lorea (bekkjarsystir mín frá Baskalandi) smá könnun. Við dreifðum henni á meðal 300 nemenda í Háskólanum í Tartu. Ég nenni ekki að segja ykkur um hvað könnunin var enda er ég að verða vitlaus á þessu dóti. Verð að skrifa fram á kvöld vegna þess að það er deadline í hádeginu á morgun. Alla vega, við fórum inn í málvísindabygginguna og dreifðum könnuninni þar. Þegar ég skoðaði síðan blöðin tók ég eftir þessu:
"Það er rosalega gaman að það fólk frá Íslandi. Ég er búinn að læra íslensku í Reykjavík fyrir einu ári. Getum við ekki mætið? Toomas 05227881"
Skemmtileg tilviljun, ekki satt? Við Lorea ákváðum síðan bara að taka viðtal við hann fyrir greinina okkar. Okkur vantaði nefnilega einn nemanda til að tala við. Við ákváðum að "mætast" á kaffihúsi sem heitir Oscar Wilde og taka viðtalið. Ekki nóg með að hann var frábær viðmælandi heldur alveg brilliant gaur. Talar ensku, dönsku, sænsku, íslensku og þýsku og er að læra að verða túlkur. Bjó á Íslandi í eitt ár og kallar landið "his mental home." Ég gat svalað þörf minni til að tala íslensku og svo töluðum við um hvað Ísland er frábært þannig að heimþrá mín hefur tífaldast. Reyndar var ég alveg að leka niður úr þreytu í allan gærdag þannig að ég fór bara snemma heim að lúlla. Fékk mér rauðvínsglas til að hjálpa mér að sofna (vá, þetta á ekki að hljóma svona illa. Það er bara svo oft sem manni gengur illa að sofna þegar maður er of þreyttur.). Fór meira að segja í heita sturtu áður en ég fór í rúmið. Greinilega eru köldu sturturnar bara á morgnana. Þá er málið bara að fara í sturtu á kvöldin. Þá get ég líka sofið aðeins lengur:-)

Nú á ég bara eftir að taka eitt viðtal og þá get ég byrjað að skrifa. Við erum komnar með ansi gott stöff þannig að vonandi get ég gert eitthvað áhugavert úr þessu. Klukkan eitt förum við í menntamálaráðuneytið og tökum viðtal við Kalmar Kurs.

Jæja, ég er er að pissa í mig. Gotta go!

15.9.2003

Raddir Röskvu

Röskvuguðir og gyðjur eru komin á blibbið. Var að skoða blibb skoðanasystkina minna og þetta er barasta svona rosa fínt. Ég hló mig máttlausa yfir blibbinu hans Grétar. Ég var búin að gleyma hvað hann er skemmtilegur fýr. Alla vega. Skoðið og soðið!

P.s. Ef einhver ykkar les þetta. Setjið upp kommentakerfi. Annað er ekki hægt!
It's been a hard days night

Vá, maður. Djöfull er erfitt að vera sjúrnalíst! Við vorum til kl 02.30 að skrifa greinina. Vöknuðum síðan kl. 8 í morgun og tókum rútuna aftur til Tartu. Ég var svo "heppin" að fá sæti sem var ekki hægt að halla aftur þannig að ég klessti mér einhvern veginn upp við rúðuna og svaf. Ekki fögur sjón fyrir þá sem keyrðu framjá. Hey, já, þetta er eitt enn sem ég er byrjuð að gera eftir að ég kom til Eistlands. Sofa í rútu. Nú drekk ég kaffi, sef í rútum og opna flöskur með kveikjara. Hörkukvendi, alveg hreint! Það gerist ýmislegt á einni viku í ókunnu landi;-) Reyndar mun ég seint geta drukkið vont kaffi, svona sullkaffi sem vinnukallar drekka úr glærum glösum. Fékk einmitt svoleiðis kaffi kl. 23.30 í gær á "kaffi"húsi. Djöfull var það vont. Og það átti meira að segja að heita cappuchino. Eftir margra daga reynslu (!) í kaffidrykkju get ég með sanni sagt að þetta bragðaðist eins og drullumall. Blablabla.

Á morgun hef ég sett mér það takmark að klára grein nr. 2. Ég þarf samt að taka þrjú viðtöl áður en ég get byrjað þannig að þetta verður strembið. Ég verð samt að gera þetta vegna þess að ég ætla að nýta miðvikudagskvöldið í að drekka hræódýrt áfengi og deyja síðan áfengisdauða í herbergi okkar Söru þar sem að málningarflögum rignir af himnum ofan (reyndar úr illa málaða loftinu en það er örugglega eins nálægt himnaríki sem ég kemst... enda líka á fimmtu hæð).


14.9.2003

Buin ad fatta plottid

Nu skil eg af hverju vid faum travel period strax eftir ferdina til Eistland. Til ad vera veik!! Reyndar hafa skolayfirvöld eitthvad misreiknad sig i thessu mali vegna thess ad dagodur slatti hopsins er med flensuskit nuna. Adalastaeda thess held eg a se köldu sturtunar sem vid (Va, eg aetladi ad fara ad skrifa tökum. Eg aelta ad taka sturtu. Holy shit. Buin ad tala ensku of lengi. Mig vantar tjatt a islensku. Badly!!) förum i a morgnana. Ja, ja, vid erum ekkert ad tala um volgt vatn heldur barasta iskalt. Reyndar for eg i heita sturtu i gaerkvöldi en thad var her i Tallinn. Köldu sturturnar eru i Tartu. Svo a svefnleysi lika einhvern thatt i thessu.

Alla vega, best ad nyta timann til ad blibba. Sma laegd nuna nefnilega. Fyrstu tölur koma ekki fyrr en i kvöld og okkar grein snyst um kvöldid. Svo erum vid reyndar ad skrifa adra grein sem er svona "investigative piece." Vid erum skrifa um skodanir og plön ungs folks hvad vard nam og starf i utlöndum. Gerdum sma könnun og dreifdum henni a medal 300 nemenda i Haskolanum i Tartu og thad kom i ljos ad 40% theirra sem svörudu hyggjast flytja til annars ESB lands innan 10 ara, baedi til thess og laera og starfa. I dag get eg litid unnid ad thessari frett vegna thess as vid thurfum ad taka nokkur vidtöl adur en vid getum hafist handa. Svo er deadline a midvikudaginn thannig ad eg se ekki fram a mikinn svefn thangad til. Vid töludum um thetta i gaer og komumst ad thvi ad thetta er naestum eins og ad vera alvöru bladamadur... nema thad ad ef vid vaerum alvöru myndum vid gista a Radisson SAS hotelinu en ekki gistiheimilinu a Karu 17 og vid fengjum borgad fyrir ad vera her en vaerum ekki ad borga thetta allt saman sjalf. Jahamm. Reyndar held eg ad islenskur veruleiki se fjarri thessu. Thar eru erlendir frettaritarar nanast othekkt fyrirbaeri og allt er apad upp eftir reuters... Sad but true. Peningar eru the bottom line here.

I kvöld hitti eg liklegast forsaetisradherra Eistlands. Hann er i Res Publica sem er i samsteypustjorn med midjuflokknum og einum ödrum (man ekki alveg hvad hann heitir:-/) og verdur a Scotland Yard i kvöld. Vid aetlum ad reyna ad fa nokkur komment fra honum. Spenno, ekki satt?

Jaeja, nenni ekki meiru. Sendid mer strauma. Tharf a thvi ad halda. Thid vitid hvernig eg funkera an svefns... ekki vel:-/



...Kamilla Ingibergsdottir reporting live from Tallinn, Estonia...

Jaeja kids. Her sit eg i utanrikisraduneytinu i Tallinn sem er btw a Islandsgötu med öllu hotshot fjölmidlalidinu hvadanaeva ad ur heiminum. Ja, thetta er soldid cool. Vid erum med spes press passa thannig ad manni lidur frekar merkilega. A eftir aetlum vid ad fara og tala vid manninn a götunni og athuga hvort folk se buid ad kjosa eda ekki. Vid erum med videocameru og aetlum ad nota efnid i multimedia kursinum sem verdur seinna i vetur. Svo fer thetta allt saman a netid thannig ad thid getid skodad. I kvöld förum vid svo a bar sem heitir Scotland Yard en thar verdur Res Publica med kosningavöku. Vid kiktum adeins a thennan stad i gaerkvöldi bara svona til ad kanna adstaedur og hann er alveg frabaer. Ef eg vissi ekki betur hefdi eg haldid ad eg vaeri stödd i höfudstödvum Scotland Yard. Byssur upp a veggjum og thjonarnir voru klaeddir sem löggur og m.a.s. med byssubelti. Svo bra mer heldur en ekki i brun thegar eg for a kloid. Haldidi ad klosettin hafi ekki verid eins og rafmagnsstolar. Allt mjög flott. Thad verdur ekki erfitt ad skrifa skemmtilega og ahugaverda grein um thad sem fer fram tharna i kvöld. Vid vorum nefnilega buin ad akveda ad greinin aetti ad na ad lysa andrumsloftinu tharna og thad hversu skemmtilegur stadur thetta er gerir okkur thetta enn audveldara fyrir.

Thad er mjög odyrt ad lifa her. Vid erum buin ad fara fint ut ad borda nokkud oft. I gaer fekk eg mer til daemis steik og maltidin med drykk kostadi ca. 1200 iskr. Svo er afengid og tobakid her otrulega odyrt. Reyndar hef eg ekki keypt mikid af drykkjum en bjor a bar kostar ca. 150 iskr. Thetta er lika i fyrsta skiptid sem eg fer til fyrrum austantjaldslandanna thannig ad thessu er eg alls ekki vön. Sigarettupakkinn kostar sidan um 130 iskr. og thad eru meira ad segja dyru sigaretturnar! Eg er samt soldid ringlud i öllum thessum gjaldmidlum vegna thess ad eg hugsa i thremur. Eistnesk kroon yfir i danska kronu yfir i islenska kronu:-/

Hey, gleymdi ad segja ykkur eitt. Ekki nog med thad ad eg se byrjud ad drekka kaffi heldur get eg opnad bjorflöskur med kveikjara... Hvernig aetli eg verdi ordin eftir 4 manudi???????

Ciao, babies!

11.9.2003

Tartu, Tartu, terta

Halló, kids. Ég vil byrja á að segja að ég elska ykkur öll. Er búin að vera með allt of mikinn heimþrá þannig að kommentínóin ykkar halda mér gangandi. Þið eruð yndisleg.

Ég sit núna í kjallaranum í Háskólanum í Tartu. Það er mikil fúkkalykt hér og þungt loft en þetta verður móðurskipið þangað til við förum heim 19. september. Ég held að kennarinn okkar haldi að við séum vélmenni vegna þess að við erum á fullu allan daginn. Ég fór upp í rúm klukkan níu í gærkvöldi, alveg búin á því.

Það var fínt í Tallinn. Því miður gátum við ekki séð mikið af borginni vegna fyrrnefndar vélmennisdagskrár. Við fórum nú samt í Rigikogu þeirra Eista sem er þingið. Mjög spennó. Svo fórum við inn í fallegustu kirkju sem ég hef séð. Rússneska rétttrúnaðarkirkjan. Gullfalleg, alveg hreint. Fyrir utan voru betlarar, gamlar konur í kápum með rósótta klúta á hausnum. Ég gaf þeim reyndar ekki pening... eyddi honum frekar í litlar, fallegar mósaíkmyndir sem voru til sölu inni í kirkjunni.

Núna er brjálað að gera. Gengur soldið illa að finna fókus á greinina sem ég er að skrifa. Er frekar pirruð á þessu og svo borða Eistar skrítinn mat þannig að ég er eiginlega ennþá svöng eftir vonda hádegismatinn sem ég fékk:-/

10.9.2003

Hallo! er komin til Tartu. hef ekki tima til ad blogga nuna en kem med frettir a morgun. Brjalad ad gera. skemmtilegt land. Mjög evropskt hvad sumt vardar en enn leifar af sovettimanum enda bara 12 ar sidan Eistland fekk sjalfstaedi. Tala seinna. Bless i bili.

9.9.2003

Er komin til Tallinn. Rosa stud. By i gettoinu. Thad er vist farid ad loda vid mig. Er enntha i lagi med Hringbrautina? Er hun ordin midstöd glaepa i Rvk?
Var ad koma af drullulöngum fyrirlestri i utanrikisraduneytinu. Fra kl 9 til 16. Saejitt!
Vildi bara lata vita af mer. Er i "lobbyinu" ad nota haegustu nettengingu i heiminum og eistneska konan sem segir bara "What number?!" er farin ad horfa illilega a mig...

2.9.2003

Herbergi nr. 7 verður líklegast næsta heimili mitt...

Þriðja "heimilið" á einum mánuði. Gaman! Alla vega... hún Thea er SVO skrítin. Núna sér hún eftir að hafa komið heim og blablabla. Manneskjan er 27 ára gömul og ætti að geta tekið sjálfstæðar ákvarðanir og staðið svo við þær. Það fyndna er að ég var fljót að jafna mig á þessu kjaftæði. Ég er nánast orðin vön því að vera í svona veseni. Ekkert nýtt fyrir mig. Hlakka bara hryllilega mikið til að flytja inn í fallegust íbúð í heimi í 107 Reykjavík. Þetta verður ekki langt blogg en hér koma svona smá infósíngar um mína hagi:

Góðar fréttir:
- Ég fæ líklegast herbergi nr. 7 og þar er stórt rúm (rúmar mig og þig, Hilma mín!) og sjónvarp og vídeótæki.
- Ég er búin að kaupa flugmiðann heim. Kem 15. desember, nánar tiltekið kl. 14.15. Vííííí.
- Ég fer til Eistlands á mánudaginn.

Fyndið:
- Kennarinn minn er með nokkrar skrúfur lausar og lætur okkur alltaf syngja á hverjum morgni. Hvert land á að koma með lag og það þýðir að ég, eini Íslendingurinn í mínum bekk, þarf að standa fyrir framan alla og syngja eitthvað íslenskt. Reyndar eiga þau auðvitað að syngja með en ég veit ekki alveg hvernig það kemur út. Eruð þið með einhverjar hugmyndir?? Stál og hnífur? Maístjarnan? Nei. Það verður að vera stutt, létt og laggott!

Vandræðalegt:
Sören plataði mig til að koma með í partý með öllum fyrsta árs nemunum hér í DJH. Ég átti að vera mjög merkilegt með mig og þykjast vera svaka hotshot á Íslandi sem hefði bara flogið inn í skólann án þess að tala dönsku... Og ég átti að þykjast vera tilvonandi bekkjarsystir þeirra. Ekki skemmtilegt það! Þar sem ég hef nú einhverja reynslu sem merkikerti (in the old days, my lovelies) gerði ég mitt besta. Sören gaf... æ fokk, er að missa af strætó. Framhald seinna. blessí

Ógeðslegt: