31.8.2003

Thad var bara ekkert gaman i Kina!

Hvilir bølvun yfir mer eda er Aarhus bara borg fokkings halfvitanna?!!!!!! Thea, stelpan sem eg leigi herbergid af, hringdi i gær og sagdi mer ad var komin heim fra Kina vegna thess ad hun FILADI THAD EKKI!!! Eg hef manud til ad hypja mig. Kannski get eg fengid herbergi nr. 7 en eg by i herbergi nr. 12. Annars kem eg bara aftur heim til Islands vegna thess ad eg nenni ekki thessu helviti. Segi meira thegar eg veit eitthvad meira. Sendid mer strauma annars missi eg vitid!!

27.8.2003

Hæólí mæólí

Váhá. Ég hefði sko alveg verið til í að vera á þessum Foo Fighters tónleikum í höllinni í gærkvöldi en í staðinn var ég föst gleðiborginni Árósum og fór að sofa kl. 10. Jamm!!! Reyndar sá ég Foo Fighters 1998 á Reading festivalinu og það var gaman en ég hefði svo mikið viljað vera þarna.

Var að fá póst frá Flugleiðaklúbbnum. Haldiði að Stuðmenn séu ekki bara að fara að spila í Kbh og í Tivoli í þokkabót. Verð nú samt að segja að mér gæti ekki verið meira sama... Verð líka í Eistlandi þá og svo finnst mér Stuðmenn bara alls ekki menn stuðsins.

Nú er ég nánast komin í helgarfrí. Búin að skrifa allar greinarnar sem ég á að skila þannig að ég er eiginlega í fríi á morgun. Bloody marvee. Svo fer ég á málþing á föstudaginn um Asíu og fjölmiðla. Alexandra prinsessa opnar málþingið þannig að ég verð þarna með the royals!

Guð, ég er mygluð. Er að fara í bíó á einhverja mynd sem ég veit ekkert um, Sweet Sixteen. Leikstjórinn heldur víst mikið upp á félagslegan raunveruleika. Bla bla. Sé ykkur. Leiterínos.

26.8.2003

Skrifa, skrifa, skrifa

Jæja, þetta verður stutt. Ég er komin aftur til Árósa og komin með þráðlausa nettengingu hér í skólanum þannig að ég nenni alveg að blibba núna með yndislega íslenska lyklaborðinu mínu. Kaupmannahöfn var æði. Við gerðum alveg hellings og vorum alltaf drulluþreytt en samt var þetta gott. Núna er ég á fullu að skrifa greinar. Var að klára grein um hlutdrægni í fjölmiðlum og erlendan fréttaritara Politiken, Anders Jerichow. Nú þarf ég að byrja á grein um Zentropa og ég er ekki alveg viss hvaða sjónarhorn ég á að velja.

Í gær eyddum við öllum deginum með háttsettum manni innan danska hersins, nefnilega honum Lars Möller (einmitt!). Hann mætti í fullum skrúða og svo töluðum við um samsæriskenningar og svoleiðis spennó dót. Á morgun þarf ég síðan að skrifa grein um það.

Svo er bara stutt að ég fari til Eistlands, rétt rúmar 2 vikur. Það verður gaman. Reyndar var ég að skoða dagskránna og okkur verður þrælað út eins og venjulega.

Vá, ég notaði alla orkuna mína í að skrifa þessa grein áðan. Á ekkert eftir handa ykkur. Gotta go!

23.8.2003

Merkisdagar

Hallo, elskurnar. Eg eignadist litinn frænda thann 20. agust. Lalli og Amal eignudust litinn, gullfallegan prins enda myndarleg eintøk sjalf. Mig langar svooo ad sja hann og knusa hann en thad verdur vist ad bida um sinn. I dag eiga bestu foreldrar i heimi 28 ara brudkaupsafmæli. Til hamingu, kæru foreldrar. Ykkar samband er mer fyrirmynd enda er eg enntha a lausu vegna thess ad thad sem thid eigid er ekki audvelt ad finna. Elska ykkur!

Eg bid ad heilsa, er ad fara i afmælisparty hja Thorhildi og Berglindi.

22.8.2003

Kvedja

Hæ. Er i Kbh hja Ullu og Esben. For i Zentropa i gær og hitti Peter Aalbæk Jensen, Lars von Trier og gæjann ur Jalla Jalla. Man ekki hvad hann heitir en eftirnafnid er thad sama og fornafnid. Vegna thess hvad mer finnst oheyrilega leidinlegt ad blibba a dønsku lyklabordi ætla eg ad segja thetta gott nuna. Ciao!

18.8.2003

Lubbi Peace

Gleymdi að segja ykkur að Ingi Þór var að setja ný lög inn á rokk.is. Tékkið á þeim!
It's time to hit the road

Þá er ég búin að pakka eina ferðina enn. Ég er nánast farin að geta gert þetta blindandi en djöfull á ég mikið af drasli. Ég á núna helmingi meira en ég kom með upphaflega frá Íslandi! Katharina, norsk bekkjarsystir mín, á bíl og ætlar að vera svo góð að keyra með mig og mitt hafurtask upp á óeirðasvæðið. Svo býr Sören, danskur strákur sem er með mér í bekk, á sama kollegi og ég þannig að hann ætlar að hjálpa mér að bera allt klabbið. Ég ætlaði ekki að flytja fyrr en á þriðjudaginn en þetta hentar mér miklu betur vegna þess að ég þarf að fara svo snemma á miðvikudagsmorgninum til Kbh. Það verður fínt að vera búin að koma sér aðeins fyrir.

Ég er með Frank Sinatra á heilanum. Dánlódaði helling með honum á netinu og hann blastar (that's an overstatement. Ekki hægt hægt að blasta þessa prumpuhátalara) græjurnar allan liðlangan daginn. Strangers in the night er persónulegt uppáhald en þau eru öll svo góð lögin. Svo syng ég með eins og næsta Nancy Sinatra, örugglega að gera nágranna mína gráhærða. Mér gæti reyndar ekki verið meira sama um þá. Þetta eru slúbbar sem stela matnum mínum (Það var búið að stela tveimur mini-meals frá mér í morgun. Skrambans óþokkar!). Ég hef þurft að kaupa mér jógúrt með áfastri skeið í morgunmat síðan ég flutti hingað vegna þess að það eru engar skeiðar til. Liðið er allt með diskana sína, glösin og það heila í læstum skápum! Ekkert verið að hugsa til skiptinemans sem á kannski ekki svona lúxusvörur. Reyndar verð ég að viðurkenna að ég á eitt plastglas og hef þurft að vaska það upp nokkrum sinnum. Glæsilegt, ekki satt. En bráðum kemur betri tíð. Hún Thea ætlar að skilja öll búsáhöld eftir þannig að nú get ég kannski eldað mér graut (einmitt!).

Það versta við nýja herbergið er að það er ekki internettenging þar en ég hlýt að geta reddað því. Sören sagði mér að flestir þarna væru með þráðlausa tengingu og ég hlýt að geta fengið að vera með í því. Annars get ég fengið netkort í skólanum og alltaf verið tengd þar. Svo er líka frí þráðlaus tening niðri í bæ þannig að þetta reddast. Ég verð komin á blibbról aftur innan skamms. Mér finnst bara svo leiðinlegt að blibba á dönsku lyklaborði, alveg hreint hundfúlt!

Haldið að hún Hilma Hólmfríður sé ekki bara búin að festa kaup á flugmiða til Kaupmannahafnar??? Jú, jú, stúlkan kemur til landsins sama dag og ég kem frá Tallinn þannig að við tökum bara lestina saman til Árósa. Ljúft, ekki satt? Ef ég fer til London er ég að spá í að fara 25. sept eða daginn eftir að Hilma fer heim. Vera síðan í ca. 2 daga hjá Öldu minni (ef ég má, Alda;-)) og fara síðan til Inga Pinga Þórs Pórs. Vá, nú er ég að ímynda mér mömmu kalla pabba Inga Pinga. Hún gerir það stundum og það er svo sætt. Mamma, ég heyri þig alveg segja þetta í hausnum á mér:-)

Jæja, my lovelies, best að gera eitthvað af viti. Ást og friður.

17.8.2003

Fúsboll er ekki mín sterkasta hlið...

Hæbbs, ghetto faboulous Kamilla hér:-) Það er nú meira sukkið á þessum blaðamennskunemum hér í DK. Sukka bara og sukka. Það er sko skyldumæting á föstudagsbarinn! Á föstudögum er skólinn búinn um tólf leytið. Þá er farið í matsalinn og drukkinn bjór þangað til klukkan er 14.15. Þá opnar barinn en hann er í kjallara skólans. Diskóljós, billjarð, fúsboll og bjór. Svo hangir liðið þarna allan daginn og allt kvöldið. Sæjitt. Eftir tvo bjóra var ég orðin vel kennd og klukkan bara 4 að degi til. Ég ákvað bara að fara aðeins heim að leggja mig og vaknaði hálfþunn klukkan 6, skellti mér í sturtu og niður í bæ. Skrítið! Við fórum á einhvern skítaklúbb og ég varð svo pirruð á þessari borg sem er samt svo lítil að mér leið eins og væri í Keflavík... nema bara án allra vina minna. Ímyndið ykkur martröðina. Tók síðan næturstrætó og það tók 45 mínútur og þurfti síðan að labba heillanga leið heim. Ég var orðin svo fúl út í allt og alla og vildi bara vera á Íslandi þar sem allt er svo frábært (!). Sendi Guggu hjálparbeiðni í formi sms og þessi elska hringdi síðan í mig og bjargaði geðheilsu minni. Takk, Gugga mín. Þú kannt lagið á mér!!

Hilma æði var að hringja og segja mér það að hún mun gera innrás í Árósar í september. Þannig að ég fer til Eistlands 8. sept og kem heim 19. sept (Þá á Lára Ellen einmitt afmæli. Góður dagur!). Hilma ætlar líklegast að koma þá og vera hjá mér í tæpa viku. Svo er ég að spá í að fara í heimsókn til Öldu í enda september. Við fáum nefnilega svona travel period frá 19. sept. til 6. okt og þá er bara frí í skólanum. Vúííí! Reyndar þarf ég að nýta eitthvað af þessum tíma til að skrifa greinar um dvölina í Eistlandi þannig að það verður nóg að gera. Líst ykkur ekki vel á?

16.8.2003

In the ghetto...

Var að koma út strætó. Þar var tilkynnt að vegna óeirða í Gellerup liggja leiðir 15, 16 og 18 niðri. Það skemmtilega eða öllu heldur óhugnalega við þetta allt saman er sú staðreynd að ég er að fara að flytja í þetta hverfi á þriðjudaginn. Sæjitt!

14.8.2003

Jæja, nú loksins er mér refsað

Eftir óheilbrigt líferni en óvenju góða heilsu í marga, marga mánuði er komið að skuldadögum. Mér líður eins og gamalli tusku. Soldið hrædd um að moskítóbitið sé hægt og bítandi (já, fokking bítandi) að draga mig til dauða en hallast líka að rökréttari skýringu. Flensu. Já, mér líður illa og ég hef bara ekki tíma fyrir það. Fjandínos! Fékk mér sólhatt og ætla að halda því áfram. Nú vantar manni bara mömmu sína:-(
Það er ekki ykkur að kenna

Nú ætlaði ég að fara að skamma ykkur fyrir að kommenta ekki en áttaði mig svo bara á því að helvítis draslið er bilað. Þannig að... ykkur er fyrirgefið;-)
Ég held það þurfi að aflima mig:-/

Ég var búin að skrifa heila romsu en ýtti svo á vitlausan takka og allt hvarf. Þetta var rosa spennó, ég sagði frá skólanum og skólalífinu. Frá moskítóbitinu á fætinum sem varð til þess að hann er tvöfaldur og að ég hef eytt allt of löngum tíma í að leita á netinu af sjúkdómum sem helvítis skordýrið ber með sér. Ég er búin að útiloka malaríu en er efins um margt annað. Kannski verður þetta bara seinasta blibbið mitt sem er í rauninni voða sorglegt, mestmegnis vegna þess að ég verð dauð en líka vegna þess að þetta er bara stytt útgáfa af því sem týndist áðan.

Alla vega, skólinn er brill en kennarinn okkar, járnfrúin Dr. Eva Arnvig, er að þræla okkur út. Fyrirlestrar og greinaskrif eru lykilorð vikunnar. Skrifaði grein í gær um Eyðni, SÞ og friðargæsluna. Ulf Kristofferson, framkvæmdastjóri UNAIDS á Norðurlöndunum kom til okkar og fræddi okkur um aðgerðir UNAIDS en þess má geta að Eva Arnvig hefur gert þó nokkrar heimildarmyndir, þ.á.m. eina um afleiðingar dvalar friðgæslunnar í Kambódíu. Sú mynd var eiginlega upphafið á þessum aðgerðum UNAIDS varðandi friðargæsluna en nú eru þeir fræddir um hættur HIV/AIDS. Mjög spennó en þetta var coffebreak version... nenni ekki meiru.

Föstudagur á morgun. Trúi því varla, tíminn líður svo hratt. Föstudagsbarinn í skólanum opnar á morgun kl. 14.15 og þá verður skundað þangað til að drekka úr sér þreytu vikunnar (einmitt!). Svo þarf ég bara að dunda mér við að pakka um helgina, flytja síðan á þriðjudaginn og fara til Kbh á miðvikudaginn. Vá, ég verð ennþá þreyttari við tilhugsunina. Svo förum við til Eistlands 8. sept og verðum þar þegar atkvæðagreiðslan um inngöngu í ESB fer fram. Spennó, pennó!!!

Þessi pistill var ekki eins ítarlegur og sá fyrri en ég læt hann duga. Bæjúhú!

12.8.2003

Kamilla verður ekki heimilislaus. Vúíííí!

Ég er komin með herbergi. Ó, beibí. Það er í Brabrand sem er reyndar hálfgert gettó eða svo segja íbúar Árósa sem ég hef talað við. Helsta ástæðan fyrir því er sú að 90% íbúa þessa hverfis eru innflytjendur. Mér finnst það bara plús! Alla vega, stelpan sem ég leigi herbergi af er að fara til Kína að læra kínversku. Mjög spes stelpa og greinilega mikill aðdáandi Kína. Veggirnir hjá henni voru gjörsamlega plasteraðir með kínversku dótaríi. Ég fæ öll húsgögnin hennar og mun gera þetta að kósý hobbittaholu eins og mér einni er lagið. Húsið er byggt 1969 og það hefur ekki verið mikið gert fyrir það síðan. Versta er að ég verð ekki með internettengingu eins og hér í Kirsuberjagarðinum. Aftur á móti verð ég aðeins 4-5 km frá miðbænum í staðinn fyrir 12,5.

Jamm, nú kemur smá frá helginni sem var ofurpökkuð eins og venjulega:

Föstudagur:

Þar sem Danir eru miklir bjórunnendur var byrjað að sötra bjór í skólanum kl. 13.30. Það er sko ekkert verið að tvínóna við hlutina í DJH. Þar er m.a.s. hægt að fá bjór í matsalnum. Við sátum úti á grasi með einum kennaranum okkar og drukkum bjór og kjöftuðum. Síðan lá leið okkar í bakgarðinn hjá Rasmus sem er einn bekkjarfélaga okkar. Við keyptum þrjá kassa af bjór og sátum síðan fram á kvöld og höfðum það næs. Okkur var líka boðið í partý til eins skólafélaga okkar og við kíktum þangað. Þar var auðvitað drukkin meiri bjór og við enduðum á hverfisbarnum þar. Píluspjaldið átti hug minn allan þannig að ég var varla viðræðuhæf enda efni í fyrsta flokks píluspilara (segir maður það?). Gamanið tók enda þegar klukkan var að verða þrjú og við þurftum að taka síðasta næturstrætó heim. Hann var fullur af ölvuðum ungmennum... þ.á.m. mér, ég er nefnilega stúlka/kona.

Laugardagur:

Gott að sofa út, maður! Fórum á ströndina í sólbað og tókum með grill og pylsur. Ljúft. Hittumst síðan nokkrar stelpur heima hjá mér í sveitasælunni og fengum okkur nokkra drykki. Þá var ferðinni heitið í miðborgina í götupartý. Æðislegt! Lítil gata full af sófum, lömpum og fólki. Ódýr bjór og góð músík. Þar hitti ég tilvonandi eiginmann minn;-) Johnny Depp look-alike úr arkitektaskólanum. Þarf að kanna þennan geira betur!

Sunnudagur:

Mygla og þvottur. Punktur og basta.

Í dag byrjuðum við fyrir alvöru í skólanum. Kúrs sem heitir International News Gathering. Kennarinn okkar heitir Eva Arnvig og hefur verið blaðamaður í 32 ár. Hörkutól, skal ég ykkur segja. Hún hefur verið mikið í Afganistan, bæði fyrir og eftir 9/11 og það er ótrúlega áhugavert að hlusta á hana. Algjör viskubrunnur sem ég get lært mikið af. Það er nóg að gera, skilaði grein í dag og þarf að skila annarri á fimmtudag. Svo flyt ég á mánudaginn og þriðjudaginn. Á miðvikudaginn förum við síðan til Kbh í námsferð. Heimsækjum Zentropa, SÞ skrifstofu, Extra Bladet (!) og margt fleira. Ég ætla að lengja ferðina aðeins og vera frá miðvikudegi til sunnudags. Þá get ég hitt Brynjuna mína, Ullu og farið í afmælispartý til Berlindar og Þórhildar. Gaman, gaman!

Þar til næst... over and out.

11.8.2003

Ó, jess

Kannski er ég komin með herbergi. Ó, guð, ég vona það! Fæ að vita það seinna í kvöld. Læt vita þá. Krossið fingur og tær, gott fólk.

9.8.2003

Draumadjobbið?

Ó, vá. Ég var að koma úr Superbrugsen og það var stelpa þar að kynna einhverjar bananavörur... og hún var banani! Stelpugreyið stóð þarna eins og fífl og skömmustufílingurinn skein úr augum hennar. Ég hef aldrei séð jafn fíflalegan búning. Ég vona að hún fái vel borgað. Þá fer hún kannski í bananastuð (banastuð).

Ég er að fara á ströndina. Það er steik. Ég er þunn. Meira um gærkvöldið seinna. Stikkorð: Bjór, bjór, bjór, vodka, bjór, bodega, pílukast, tvö bullseye!!

7.8.2003

Ekki boðar þetta gott...

Ég er búin að sitja sveitt við símann að hringja í hugsanlega leigusala. Af þeim níu sem ég er búin að hringja í eru átta búnir að leigja út herbergin. Sæjitt! Einhvern veginn hef ég það samt á tilfinningunni að þetta eigi allt eftir að reddast en ég þarf samt sem áður að flytja héðan út í enda ágúst. Ég sagði upp herberginu í fyrradag. Reyndar eru svínin sem ég bý með búin að þrífa neðri hæðina þannig að eldhúsið er komið í sæmilegt horf. Ég meika samt ekki að búa hérna. Þetta er svo mikið úti í rassgati! Það tekur mig til dæmis 35 mínútur að komast í skólann og ég þarf að taka tvo strætóa. Alla vega, ég hef ákveðið að taka einkunnarorð yngri bróður míns ástsæls til fyrirmyndar og segi því bara... Þetta reddast. Þetta danska mentalitet er að hreiðra um sig í fullkomnunarsinnuðum hugsanagangi mínum. Ég tek þessu bara öllu með jafnaðargeði en er jafnframt að skíta á mig úr stressi. Vissi ekki að það væri hægt að gera þetta tvennt í einu...

Alla vega, í gær var ég búin að pikka og pikka og ýtti svo á vitlausan takka þannig að allt hvarf. Nú ætla ég að gera heiðarlega tilraun til þess að endurtaka það sem ég sagði í gær. Ég er reyndar ekki í eins góðu skapi og þá en þið reynið að afsaka...

Mánudagur:

Eftir langt strætóferðalag úr sveitinni kom ég í fyrsta skiptið í nýja skólann minn. Hann er vægast sagt ÆÐI! Draumur hvers fjölmiðlunarnema. Allar nýjustu græjurnar og upptökustúdíó á stærð við það sem ég sá einu sinni hjá RÚV. Bloody marvee. Frábærir kennarar og góður andi. Bráðum fyllist síðan allt af sætum skólastrákum og þá verður dæmið fullkomnað;-) Um kvöldið fór bekkurinn (sem er frábær og fullur af pælandi fólki en þið munið kannski að ég er kona sem pælir!) út að borða saman í boði skólans. Með okkur var hópur fólks sem er á útvarpsnámskeiði hér í rúman mánuð. Þau koma frá Sambíu, Úganda, Ghana, Nepal og Sri Lanka en í mínum bekk eru stelpur (einn strákur!) frá Kanada, Bandaríkjunum, Baskalandi, Eistlandi, Svíþjóð, Finnlandi og Noregi. Þetta var sem sagt mjög fjölmenningarlegt kvöld. Frábært að fá að tala við lið frá mismunandi menningarheimum um þeirra sýn og reynslu af fjölmiðlum.

Þriðjudagur:

Við fengum kynningu á bókasafni skólans, tölvuveri og svoleiðis. Dagurinn fór mestmegnis í það en síðan fórum við í heimsókn á Jyllands Posten sem er stærsta blaðið hér í Danmörku. Ég fór síðan niður í bæ og og keypti rj45 kapal og húkkaði síðan upp netinu hjá mér með því að setja einn endann á kaplinum í vegginn og hinn í tölvuna, mjög erfitt verk sem tók um tvo tíma;-) Kvöldið fór í netsafari.

Smá innskot á meðan ég man: Strætó í Árósum er mjög skrítið fyrirbæri. Maður fer inn í strætó aftast og út fremst, enginn fylgist með hvort maður borgar eða ekki og ég barasta skil þetta ekki. Er samt strangheiðarlegur borgari og því búin að kaupa mánaðarkort annars færi ég einfaldlega á hausinn.
Eitt enn. Er að fatta það hvað þetta blibb er sniðugt fyrir mig. Nú á ég alltaf eftir að muna eftir því sem ég gerði hér í DK, nánast upp á dag. Alla vega, áfram með smérið!

Miðvikudagur:

Gærdagurinn var frábær. Við fórum í heimsókn í Testrup Lýðháskólann. Rosalega eru lýðháskólar sniðugir. Engin próf, engar gráður. Ungt fólk fer bara á eigin forsendum og gerir þetta fyrir sjálft sig og þ.a.l. vel. Það býr saman og eyðir öllum sínum tíma saman og margir Danir segja þetta besta tíma lífs síns. Ég get vel trúað því. Mig langaði varla að fara eftir einn dag þarna. Það er hægt að læra allt þarna. Heimspeki, bókmenntir, söng, leiklist, útvarpsþáttagerð, karate, eftirréttagerð, stuntbrellur, myndlist og svo margt meira. Við fengum að sjá fullt sem fólkið var að gera, þ.á.m. 10 mínútna tónlistarútgáfu af Hringadróttinssögu (!). Svo hittum við líka stráka sem voru að læra að búa til eftirrétti og voru í óða önn að búa til sítrónuís fyrir partýið sem er hjá þeim í kvöld. Æðislegur dagur! Nú skil ég fullkomnlega af hverju ungt fólk fer í svona skóla!

Um kvöldið var mér, Kristin og Lindu (norskar bekkjarsystur mínar) boðið í mat hjá tveimur nágranna okkar, nefnilega þeim Michael og Andrew. Michael og Andrew eru suður-afrískir og danskir. Mamma þeirra er dönsk og pabbinn þýskur/suður-afrískur. Dágóður kokteill þar. Þeir bjuggu til rosa gott spaghetti sem ég borðaði af bestu lyst þrátt fyrir overdose af spaghetti í barnæsku (koss til þín, mamma mín! Gat nefnilega ekki borðað spaghetti og lasgne í mörg ár vegna þess að ég fékk svo mikið af því sem barn.). Við áttum góða kvöldstund saman, borðuðum úti vegna þess að veðrið var æðislegt og er það enn. Ég var samt svo þreytt að ég þurfti að fara snemma að sofa. Ég bauð öllum góða nótt og fór inn til mín. Stuttu seinna bankaði Michael upp á hjá mér til þess að bjóða mér góða nótt. Aftur! Ég held að Michael sé pínku skotinn í Kamillu litlu en hún hefur barasta engan áhuga á honum:-/

Fimmtudagur:

Í dag fórum við í ráðhúsið. Það er hannað af Arne Jacobsen og svona líka svaka flott. Þegar átti að byggja það voru reyndar mikil mótmæli. Arne er nú ekki þekktur fyrir hefðbundinn stíl og þetta var á stríðsárunum. Fólk var ekki alveg tilbuið fyrir nýstárlegan stíl þessa mikla snillings. Píndu hann til að hafa turn í ráðhúsinu sem hann hataði víst allt sitt líf. Ég hélt líka að það myndi líða yfir mig þarna uppi. Lofthræðsla mín hefur nefnilega versnað svakalega á efri árum (Ha!) þannig að ég stóð bara við stigann og ríghélt í hann með allir hinir hlupu um og skræktu af gleði. Leið mun betur þegar ég kom aftur niður. Nú er ég búin að eyða allt of löngum tíma í að reyna að finna mynd af ráðhúsinu en ekkert gengur. Greinilega ekki mín sterkasta hlið:-/ Eftir þetta var smá ferð um borgina en ég nennti ekki að fara. Þurfti að fara í bankann og svoleiðis og finna út hugsanleg herbergi til að leigja. Það hefur sem sagt ekki gengið svo vel þannig að ég veit ekkert hvað mun gerast...

Í kvöld förum við í Miðstöð alþjóðlegra nema og fáum að sjá hana, drekkum kannski smá bjór og hver veit... bless í bilínos!

6.8.2003

Ég var búin að skrifa hellings um allt sem ég er búin að gera en það fokkaðist upp. Pirruð núna. Sofa! Arggggggg!!!!!!!!!

5.8.2003

Jæja þá, ðe nætmer is óver

Þetta er nú búin að vera aldeilis martröð þessi flutningur til Árósa. Þetta byrjaði allt á lestarstöðinni í Kaupmannahöfn. Við Brynja vorum oggu ponsu seinar og það gekk soldið illa hjá okkur að burðast með allt draslið mitt. Við stauluðumst að skjánum og einhvern veginn fundum það út að við ættum að fara á spor 1. Við komumst loks þangað og hlömmuðum okkur niður. Brynja skaust upp og ætlaði að kaupa Eurowoman handa okkur. Fyrir algjöra tilviljun fer ég að tala við einhverja konu og á endanum kemst ég að því að við erum á vitlausu spori og bara 5 mínútur í að lestin fari. Við reynum að drífa okkur af stað en það gekk heldur illa. Ég bað þá einhverja indæla stelpu um að hjálpa okkur og það gerði hún. Hljóp á eftir okkur um alla stöðina eins og hún ætti lífið að leysa. Já, ég skulda þér einn, Dorte! Alla vega, Brynja fór niður á vitlaust spor en ég og Dorte fórum á rétt, þökk sé henni (algjör elska barasta). Lestin var alveg að fara og við hlupum og hlupum. Rétt náðum að henda draslinu og mér inn áður en hurðarnar lokuðust. Ég sagði við lestarvörðinn: "...en vinkona mín er að koma!" Neibb, lestin bara bú bú og ég án Brynju um borð. Ég sat á gólfinu í einum millivagninum með allt draslið eins og hrávið í kringum mig og titraði. "Ó, sæjitt! Hvað nú?! Best að hringja í Brynju." En nei, ekki nóg með að Brynja varð eftir á stöðinni heldur varð veskið mitt eftir með henni. Síminn, allir peningarnir, vatnið og... lestarmiðinn!!! Þá fyrst fór ég að kúka á mig. Ég veit ekki hvað hefur liðið langur tími þangað til ég heyrði einhvern kalla á mig. "Kamilla? Ert þú Kamilla?" Þið getið ekki einu sinni ímyndað ykkur hvað var gott að heyra nafnið sitt. Like music to my ears! Þá var þetta lestarvörðurinn. Ég hélt að Brynja hefði kannski hoppað inn í annan vagn en nei. Hann sagði mér að hún væri enn á stöðinni. Great! Hann sagði mér þó að hún kæmi klukkustund á eftir mér og að það væri ekkert vesen með miðana. Mig langaði svo til að stökkva á hann og knúsa hann en náði með eitthverju móti að halda aftur af mér. Tók mig síðan saman í andlitinu, stóð upp og settist í sætið mitt. Svitinn bókstaflega lak af mér og svo var ég með ógeðslega mikið af drasli. Ég settist og fólkið á móti mér, faðir og ung dóttir, horfðu á mig vorkunnaraugum. Svo liðu þrír tímar án vatnssopa (sem ég innilega þráði) og þá komst ég loks á leiðarenda. Ég dröslaðist út með allt mitt hafurtask með hjálp elskulegrar konu og sat síðan á spori 3 í rúman klukkutíma og beið eftir hinni lestinni með Brynju, hjólinu, símanum, peningunum og ekki má gleyma vatninu, innanborðs. Þá hringdum við í Mads sem átti að koma að ná í okkur en það leið sko langur tími þar til við komumst "heim." Við þurftum nebbla að bíða eftir einhverri annarri stelpu þannig að ég var í tæpa þrjá tíma á lestarstöðinni í Árósum...

Svo er það heimili mitt eða svínastían eins og ég kýs að kalla það. Ekki nóg með að það sé 12,5 km í burtu frá lestarstöðinni heldur er það í öðru bæjarfélagi, nefnilega Lystrup eða úti-í-rassgati eins og ég kýs að kalla það. Já, Kamilla snyrtipinni býr með sex slúbbertum og einni stelpu. Þegar við komum inn mætti okkur þessi líka svakalega fýla. Það hafði greinilega verið haldið partý kvöldið áður og ekki enn hafði verið þrifið (og ekki enn í dag!). Við fórum upp í herbergið mitt sem er svo sem fínt og önduðum smá. Síðan þurftum við að taka upp úr töskunum og þrífa af okkur skítinn. Við áttum smá Martini Bianco og ég fór niður að búa til klaka. Ég skrúfaði frá krananum og hófst handa. Allt í einu fann ég að ég var orðin blaut á fótunum. Haldiði að vaskurinn hafi bara ekki verið handónýtur. Vantaði stykki í niðurfallsdótið þannig að allt vatnið flæddi út á gólf. Þarna var mér allri lokið, langaði bara að pakka aftur niður og fara heim til mömmu og pabba. Gleyma bara þessu öllu saman. Ef Brynja hefði ekki verið með mér hefði ég líklegast bara hoppað út um gluggann á herberginu mínu og sagt skilið við allt saman. Nei, nei, Brynja kom í veg fyrir taugaáfall hjá Kamillu litlu.

Vá, ég vona að þið nennið að lesa þetta allt saman. Þetta fer þó allt skánandi. Við fengum okkur Martini og tókum síðan strætó niður í bæ (sem tekur n.b. 45 mínútur) og fórum á pöbbarölt. Þetta er yndislegur bær, mjög fallegur en óhugnalega rólegur. Ég var orðin svo vön stórborgarlífinu í dejlige Köbenhavn, enda væri ég alveg til í að vera þar ennþá. Við áttum ágætis kvöld þarna en mjög rólegt, kannski tími til kominn eftir allt þetta sukk í Kbh...

Skólinn byrjaði í gær. Frábær skóli, frábær bekkur og allt æðislega spennó, segi meira frá því seinna. Þetta er nóg í bili. Ciao!
Hallo hallo!
'Eg er rett ad komast i tølvu nuna. By i svinastiu sem er uti i rassgati og ætla ad finna mer eitthvad nytt i enda agust. Mer list rosa vel a skolann og er i tima nuna thannig ad thetta verdur stutt. Folkid sem er med mer i bekk er rosa fint. For ut ad borda med øllu lidinu i gær og lika folki fra Ghana, Uganda, Sri Lanka og fleiri løndum. Frabært folk sem er herna i manud a utvarpsnamskeidi. Djøfull er othægilegt ad nota ekki islenskt lyklabord og svo er eg a makka lika. Eg er ekki alveg tølvuelskandi nuna en tølvan er samt bleik. Vei!

Alla vega, meira seinna. Eg vildi bara lata vita af mer. Love you, guys!

Hey, eitt enn! Ef thid vitid um einhvern sem getur hjalpad mer ad finna husnædi sem er med husgognum endilega sendid mer meil. Latid ykkur detta eitthvad i hug!!

1.8.2003

Aðeins meira en ég hafði ímyndað mér...

Ég er búin að vera að pakka í allan f.... dag. Þetta er svo mikið drasl að ég trúi því varla. Þurfti að fá lánaða aukatösku hjá Ullu og sé fram á að fara þangað að sníkja aðra á eftir. Oh, hvað ég hlakka til þegar ég verð komin með allt draslið til Árósa og inn í herbergið mitt. Þá verður kátt í höllinni. Grillveislan í gærkvöldi var æði. Ég, Ulla, Esben, Brynja, Kasper, Allen, Christina og Thor sátum í garðinum hjá Ullu og borðuðum góðan mat. Þetta endaði ekki í megasukki og ég er svo ánægð með það. Ég fór bara tiltölulega snemma að sofa. Ég hefði ekki meikað að pakka í þynnku.

Ég veit ekki alveg hvernig verður með nettengingu í nýja herberginu, held það sé samt. Annars er ég að spá í að reyna að finna mér nýtt herbergi sem er nær skólanum. Þannig að... ef þið vitið um eitthvað eða einhvern sem gæti hjálpað mér endilega látið mig vita.

Jæja, verð að halda þessu áfram...