Smá pása
Halló, halló! Er komin í smástund til Kbh. Addú er að koma og ég ákvað að sækja stúlkuna. Smá plús líka að komast í ljúfa sturtu. Veðrið er geggjað og hátíðin æðisleg. Á leiðinni heim í nótt mætti ég ungri dömu sem öskraði halló í átt að mér. Var þetta ekki bara Rósa María Óskarsdóttir og hennar heittelskaði Halli Valli. Þá voru þau nýkomin inn á svæðið, búin að kaupa miða á svörtu og enginn vissi að þau væru að koma. Þið getið rétt ímyndað ykkur viðbrögð mín. Hopp og skopp og hlátur og gleði. Þetta var fáránleg tilviljun! Einni mínútu síðar kemur Kristján Þór strollandi með sinni heittelskuðu (Spurning: Af hverju var ég ekki með heittelskuðum manni???). Við hoppuðum þarna nokkur saman, föðmuðumst og töluðum ofan í hvert annað. Yndislegt. Vantaði bara Guggu og Inga Þór til að fullkomna þetta. Það er sem sagt von á góðu. Halli Valli með gítarinn og Hlynur og þeir líka. Lovely! Er komin í stuttbuxur og hlírabol núna 'cause the sun shining!!!! Ciao!
26.6.2003
25.6.2003
**Info**
Halló, elskurnar! Er að fara út á strætóstoppistöð að hitta fólkið. Vildi bara láta þá sem eru að fara á Hróarskeldu vita hvar ég verð að vinna. Ég verð að vinna í bjórtjaldi við Metropol sviðið (Nýtt svið, elektróník eitthvað. Gus Gus liðið verður einmitt þar að spila). Hlakka til að sjá ykkur! Þið hin sem ekki komið... hlakka til að sjá ykkur einhvern tímann seinna.
Frank Sinatra er að blasta græjurnar hjá mér núna. Strangers in the night... Ekki kannski besti undirbúningurinn fyrir rokkfestivalið mikla...

24.6.2003
23.6.2003
Ég er hreingerningarmaskína (hvort sem mér líkar betur eða verr)
Við Raggaló þrifum 50 herbergi í dag (Fyrir þá sem ekki eru kunnugir hreingerningarbransanum er það asskoti mikið!). Það var varla að maður gæti pústað inn á milli svo mikið var að gera. Það eina sem heldur mér gangandi er sú staðreynd að þetta verður ekki ævistarf mitt. Ég vinn bara út júlí og fer svo til Árósa í einn virtasta blaðamannaháskóla á Norðurlöndunum. Þá fer ég að meika það. Þó að ég sé að meika það hjá henni Hilmu minni (ágætt að hafa svona danskan staðgengil, (alvöru)Hilma mín. Hún minnir mig á marga vegu á þig;-)) á þetta hreinlega ekki við mig. Þið sem þekkið mig vitið hversu mikill snyrtipinni ég er... Í dag þreif ég svo mörg kúkaklósett að ég labbaði á milli herbergja og kúgaðist bókstaflega (ég pikkaði óvart fyrst kúkaðist sem á í raun við hér þó það sé ekki orð. Ný sögn hjá mér: Að kúkast= Að skúra á elliheimili og langa til að æla í hvert skipti sem klósett er skrúbbað þar á bæ). Svo svaf ég svo illa í nótt. Sofnaði varla vegna þess að ég var að hafa áhyggjur af peningum. Vaknaði síðan um miðja nótt og hélt ég væri búin að sofa yfir mig. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað ég varð síðan ánægð þegar ég sá hvað klukkan var og gat sofið lengur.
Alla vega, blibbið mitt á sko EKKI að snúast um vinnuna mína þó svo að hún sé mjög gefandi og þroskandi... Nú er ég að fara heim til Brynju og við ætlum með Rögguló út á Nýhöfn að hitta skvísið hennar Brynju. Í dag er Sankt Hans dag og þá eru bál og solleis dótarí út um allar trissur. Við ætlum ekki langt vegna þess að við þurfum jú að vakna fyrir allar aldir...
Svo er það bara Roskilde Festival i morgen. Vúúúúííííí!!! Meira um það seinna.
Oh, ég er að hlusta á I will með Radiohead... gæsahúð... hlustið á lagið og lærið að elska!!!

22.6.2003
Tears on my pillow
Dagskráin fyrir Hróarskeldu er komin og mig langar til að væla!!! Ég missi af The Doves, Kashmir, Beth Gibbons, Blur, Outlandish, Cardigans, The Sounds, The Hellacopters, The Datsuns, Queens of the Stone Age, Yo la tengo, Massive Attack, Bonnie 'Prince' Billy og Björk. Kill me! Kill me now!!! Þetta er hræðilegt... Reyndar verð ég að segja að ef ég væri ekki að fara að vinna á Hróarskeldu myndi ég ekki fara. Ég á nebbla ekki mikla monninga. Ég verð bara að gera gott úr þessu. Svo er líka hellingur sem ég á eftir að sjá. Já, já. Þetta verður bara fínt. Það spáir reyndar rigningu þannig að ég þarf að festa kaup á stígvélum. Þetta verður bara bloody marvee.
Þrátt fyrir mikla hæfileika mína til að krydda upp á leiðinlega hluti er engin leið fyrir mig til að fegra gærkvöldið. Ég fór í matarboð til Ullu og fékk reyndar mjög góðan mat og það var fínt að sitja og spjalla. Svo tók helvítið við... Ein átti VIP miða á eitthvað MTV dót á Pappahotel. Við ákváðum að skella okkur á þetta og höfðum í raun miklar væntingar. Svo komum við þangað og ó mæ god. Astró calling!! Þetta var horror. Við fengum welcoming drykk sem bragðaðist eins og vatnssull með rauðum matarlit. Við ákváðum að gefa þessu sjéns en það var bara ekki hægt. Endaði með að við fórum bara heim í drullufýlu yfir að hafa eytt pening í svona bull og vitleysu.

21.6.2003
Vitsmunaleg gæði blibbsins
Ég fór allt í einu að efast um blibbið mitt. Ég veit að það hefur hátt skemmtanagildi vegna þess að ég er svo fyndin og frábær (og greinilega egótísk líka). Ulla sagði við mig um daginn að við systkinin hefðum þann hæfileika að láta smávægilegustu og leiðinlegustu hluti hljóma fyndna og spennandi. Hún kann auðvitað ekki að lesa íslensku en ég hef nokkrum sinnum þýtt upp úr blibbum okkar Inga Þórs fyrir hana. Alltaf þegar við gerum eitthvað skemmtilegt (sem er kannski ekki svo oft miðað við ofangreindar upplýsingar) segir hún: "Þetta verður að fara á blibbið." Já, hvað um það. Ég efast um vitsmunalegt gildi blibbsins míns. Stundum þegar ég les annarra manna blogg fæ ég netta minnimáttarkennd. Það eru allir pæla voða mikið. Nú ætla ég bara að segja frá því að ég er pælari líka. Ég hugsa mikið!! Málið er hreinlega bara að þegar ég sest fyrir framan tölvuna man ég ekki hvað ég var að pæla. Þá skrifa ég bara um daginn minn eða kvöldið mitt. Það er auðvitað bara fínt líka en ég vildi segja fólki sem þekkir mig ekki nema í gegnum þetta blibb (ef það eru einhverjir... held það samt og segi halló) að ég er pælari. Mikill pælari. Ég pæli og pæli og pæli. Svo bara gleymi ég því þegar ég sest fyrir tölvuna.
Ok, ég er farin að pæla. Nei, hef ekki orku í að pæla í dag. Vill bara láta mata mig. Hugsanaleysi verður þema dagsins.
Svo var ég líka að pæla. Hilma, ertu ekkert búin að vera að lesa blibbið? Færslunar um Hilmu klikk voru sérstaklega tileinkaðar þér. Frá þér kemur samt ekki bofs. Ég krefst kommentínós!
Superbrugsen kallar. Food is waiting to be bought and then eaten...

Dvergar að hjóla
Var að vakna og mig dreymdi svo svakalega fokkt opp draum. Ég var að hjóla á móti fullt af dvergum sem voru í hjólakappakstri. Endalaust mikið af dvergum á hjólum. Við vorum í einhvers konar göngum og á veggjunum voru plaköt með myndum af dvergum úr öllum brönsum. Það var plakat með Michelle Pheiffer og það stóð að hún væri minnsta konan í skemmtanabransanum. Ég varð rosa hissa vegna þess að mér fannst hún ekki virka svona lítil... svo dreymdi mig auðvitað að ég væri að drekka endalaust mikið af vatni enda var ég á djammi í gær. Ég er búin að láta þann draum rætast en hef ekki enn rekist á dverg á hjóli, hvað þá marga dverga.
Já. Ég fór í mat til Brynju Daggar í gærkvöldi. Hún gerði dýrindis pastasalat og svona tómat mozarella dót. Svo var æðislegt brauð með. Við sátum aðeins heima hjá Brynju og fórum svo í partý hjá Danmarks Designskole (partýið sem við fórum í seinustu helgi var víst hjá listaháskólanum). Það var rosalega gaman. Mikið drukkið og dansað. Ég er rosalega mygluð í dag. Er að fara í matarboð til Ullu í kvöld. Hún býður Hróarskelduhópnum okkar. Við ætlum aðeins að plana þetta nánar. Don't nenn this right now...

19.6.2003
Hilma strikes again
Jæja, annar dagur á elliheimilinu. Gekk allt rosa vel fyrir utan hana Hilmu. Ég hitti hana á ganginum og hún kallaði á mig. Sagði mér að ég mætti alveg fara og þrífa herbergið hennar. Lagði síðan höndina á öxlina á mér. Ég fann strax að hún var með soldið blautar hendur og dreif mig inn í herbergið hennar. Fattaði síðan að ég var með leifar af pissinu hennar Hilmu á öxlinni. Ekki nóg með það, heldur hafði Hilma bara tekið sig til og pissað yfir allt helvítis gólfið þannig að mín beið ófögur sjón. Ég skúraði pissið með æluna upp í koki og hlandlykt á öxlinni. Hljóp síðan niður og skipti um bol og reyndi að gleyma þessu. Já, ég gleymi einu. Ég var búin að segja ykkur að hún er vön að taka upp pilsið sitt og spyrja er þetta ekki sætt. Í dag var hún ekki í nærbuxum!!!! Ég er búin að ákveða það að lifa lengi og verða ekki elliær eins og hún Hilma. Þess vegna er ég hætt að reykja, drekka, borða nammi, drekka kók og ætla að byrja að hreyfa mig rosa rosa mikið. Hætt í makkaranum og hamborgarakóngnum. Nú eru það bara baunaspírur, tofú og sojakjöt. Nei, þetta er lygi. Ég ætla njóta alls til hins ítrasta! Éta, drekka og vera glöð! Ætla bara að reyna að gleyma "the pee incidence" frá því í dag...
Gleymdi að segja frá sunnudeginum mínum. Við, Ingi Þór, Ulla, Esben, Brynja Dögg, Kasper, Tommy og einhverjir fleiri fórum í Kristjaníu. Það var svona festival til að bjarga Kristjaníu. Bevar Christiania! Það mættu 20.000 manns í Stínu!! Spáið í því. Það var líka alveg troðið þarna. Hef aldrei séð svona marga labba um fríríkið fagra. Músík, jónur, bjór og ligeglad stemning.
Ég fór á frábæra mynd í gær. Dogville. Hún er án efa á topp tíu yfir bestu myndir sem ég hef séð. Lars Von Trier ráðskast með áhorfendur og gerir það svona líka vel. Frábærlega vel leikin og skrifuð. Þið barasta verðið að sjá hana. Hún fékk svo á mig að á tímabili gat ég varla verið þarna lengur. Langaði bara að standa upp og öskra á fólkið á hvíta tjaldinu, "Hvað er að ykkur?!" Hefndin er sæt en er hún fullnægjandi???

18.6.2003
Hilma klikk...
Sit hér fyrir framan tölvuna á púða (vegna þess að hún er nánast á gólfinu. Snúran er svo stutt) og hlusta á Hail to the thief með Radiohead. Ég er með gæsahúð! I will er yndislegt lag. Ef þið hafið ekki heyrt það enn verðið þið að heyra það pronto! Ég er búin að vera að dánlóda músík af netinu eins og óð kona. Var í raun rétt að uppgötva þennan möguleika núna... Radiohead, The Doves, The Thrills, Interpol, The Roots, Grandaddy, The Dandy Warhols (voða vinsælt að heita the... eitthvað) og bara fullt fullt.
Ég er farin að venjast því að vakna svona snemma á morgnana. Ég vakna kl. 5.25 og hjóla svo í jobbið. Það tekur mig 15 mínútur. Ágætt að fá smá hreyfingu. Það er líka fínt að hjóla úr vinnunni. Fyrsta daginn minn tók ég strætó úr vinnunni og varð svo þreytt að ég gat varla labbað. Þegar ég hjóla er ég bara hress þegar ég kem heim. Núna ætla ég að segja smá frá vinnunni. Þetta er s.s. elliheimili og við þrífum vistarverur fólksins, allt frá því að þurrka af upp í að skrúbba klósett. Það er mjög mikið af spes fólki þarna. Til dæmis er ein sem heitir Hilma. Hún hatar alla, sérstaklega útlendinga, og öskrar og æpir og sýnir á sér nærbuxurnar. Í dag var ég að vinna á hennar deild og var alltaf að draga það að fara inn til hennar. Ég var að þrífa með íslenskri stelpu sem heitir Raggaló og við ákváðum bara að skella okkur á þetta. Við mættum Hilmu á ganginum og ég bauð henni góðan daginn með kúkinn í buxunum. Fyrst byrjaði hún með einhvern skæting og lyfti upp pilsinu sínu og sýndi mér hvar henni væri illt. Svo varð hún svona líka rosa hrifin af mér (Það eru greinilega allar heimsins Hilmur sem laðast að mér;-)). Vildi ekki einu sinni leyfa Rögguló að koma inn í herbergið og þrífa með mér. Vildi bara mig eina. Sagði mér að ég minnti hana á sjálfa sig þegar hún var ung. Ég hugsaði nú bara: Holy shit! Vonandi verð ég ekki svona kelling. Svo spurði hún mig hvort mér þætti steikt lifur góð og ég hristi höfuðið. Hún vildi líka vita hvað ég héldi að hún væri gömul. Ég vildi vera kurteis þannig að ég ákvað að segja ekki hundrað ára. 65? Nei. 70? Nei. 79? Nei, ég er sko ekki svo gömul. Úpps. Hún Hilma er að verða 75 ára þann 4. ágúst. Blessuð kerlingin. Já, það er mjög mikið af skrýtnu fólki á elliheimilinu mínu. Einn fer, held ég, aldrei í buxur og pissar bara á gólfið. Er ekkert að hafa fyrir því að staulast á klósettið. Út um allt eru svo úrklippur af berbrjósta konum til að lífga aðeins upp á umhverfið. Þetta allt er ég auðvitað að segja ykkur, kæru vinir, í fyllsta trúnaði... Hmmm...
Ég er að fara í bíó með Ullu, Esben og Dorte. Við ætlum að sjá Dogville. Vúíííííííí!!!
Sorry með alla neikvæðnina í gær, Brynja mín. Ég læt hana vera í framtíðinni. Til hamingju með útskriftina á laugardaginn kemur. Og þú líka, Gugga mín. I'm so proud!!!!
Blessidí bless!

17.6.2003
Hæ, hó, jibbí jei og jibbí jei, það er kominn 17. júní!
Gleðilegan þjóðhátíðardag! Eruð þið þunn þarna á Íslandi? Margir hafa líklega verið að fara heim af djamminu þegar ég var að vakna í vinnuna! Jább, ég á að mæta klukkan 6 og það tekur mig kortér að hjóla. You do the math! Þetta er alla vega skítajobb en jobb samt sem áður. Nú fara peningarnir að rúlla inn. Huhmmm... Gærdagurinn var hreinasta helvíti. Ég var svo þreytt og hélt að vinnudagurinn myndi aldrei taka enda. Svo fór dagurinn og kvöldið í það að reyna að halda mér vakandi. Frekar skítt þar sem Ingi Þór er hjá mér núna. Ég er bara þreytta og leiðinlega systirin. Nei, nei. Þetta er fínt. Ég er strax farin að venjast þessu. Er ekki að drepast úr þreytu núna. Vona að ég meiki það fram á kvöld. Við systkinin erum að fara í matarboð til Ullu og Esben. Við fjögur og einhverjir fleiri. Það verður fínt. Verst að ég þarf að fara að sofa klukkan 11. Kannski að ég lifi á brúninni og vaki til miðnættis. Það kemur allt til greina á 17. júní.
Nú verð ég að vekja drenginn. Hann getur sofið endalaust, ég sver það! Við ætlum í garðinn!
Hey, já. Ég er búin að fá vaktaplanið fyrir Hróarskeldu, ekkert of ánægð. Svona lítur það út:
Fös: 16-20
Lau: 20-04
Sun: 16-24
Fokk, bæði laugardags- og sunnudagskvöld verð ég að vinna. Æ, þetta kemur í ljós. Svekkelsínó!

14.6.2003
Hvernig getur mögulega verið að við séum skyld?
Gærdagurinn var one hellish day. Eftir að hafa fundið út upp á eigin spýtur hvenær vélin hans Inga Þórs lenti hófst biðin (vélin lenti 18.30). Ég bjóst við að hann mundi senda mér sms eða jafnvel hringja og svo færi ég og pikkaði hann upp á Norreport. En nei, ekkert samband frá Inga Þór. Stjáni var búinn að hringja í mig og spyrjast fyrir um drenginn og við ákváðum að við skyldum bæði fara að hann. Þegar tveir tímar voru liðnir frá því að vélin lenti og ég farin að hringsóla um stofuna eins óð hringdi síminn. Þá var það týndi sonurinn... ENNÞÁ ÚT Á FLUGVELLI!!!! Þá hafði hann gleymt að kaupa danskar krónur og átti bara eitt pund og tvær danskar krónur. Fólkið í exchange klefanum vildi ekki taka á móti þessu eina pundi til að drengurinn fengi 22 kr. minimum til að komast í lestina og til systur sinnar. Á endanum leyfðu þau honum að hringja. Ingi Þór hafði reynt ýmsar leiðir til að afla sér þessara 22 kr. sem nauðsynlegar voru. Hann hafði fengið pennasett gefins á flugvellinum í Manchester og reyndi nú í fyllstu örvæntingu að selja það. Enginn vildi kaupa af honum en einn hlustaði þó á sorgarsöguna og sagði síðan nei við hann. Pælið í því. Af öllu þessu fólki var enginn tilbúinn að gefa honum 22 kr. eða kaupa af honum penna fyrir 22 kr. What is the world coming to? Sem betur fer er þetta indæll og skemmtilegur drengur (með allt of sítt hár þó) og það varð honum til happs. Fólkið í exchange klefanum miskunnaði sig yfir honum og leyfði honum að hringja. Ég tók auðvitað flippið í símann þegar hann hringdi en fór síðan bara að skellihlæja að honum. Eftir að símtalinu lauk horfði hann á konuna sem leyfði honum að hringja og rétti henni plastpennann. "You deserve this!" En konan vildi hann ekki þannig að Ingi Þór á ennþá pennann góða (?). Svona kemur bara fyrir Inga Þór!!! Hann hafði ennþá trú um að hann myndi redda þessum örfáu krónum en ég sagði honum bara að setjast niður og bíða, ég skyldi sækja hann. Svo endaði reyndar með því að Stjáni fór að sækja hann. Klukkan 21.30 var hann síðan loksins kominn heim til mín en þá þurftum við að borða á methraða vegna þess að við vorum orðin allt of sein í partý.
Partýið var hjá Tine, vinkonu Esben. Þar var drukkið og kjaftað og svona dótarí. Svo fórum við í partý hjá Danmarks Design Skole á Njálsgötu hér í bæ. Það var eins og að koma inn í ævintýraheim. Alls konar flott list. Inn í einu herberginu var rosalega bjart og búið að strekkja snúrur á milli allra veggja. Á snúrunum voru síðan fullt af sniglum. Sumir voru með fána, aðrir ekki. Mjög flott. Við einn vegginn var vaskur og þar var þessi heljarinnar ósköp af sniglum. Fleiri með fána, enn fleiri ekki með fána og sumir að gera það. Við keyptum fullt af bjór og fórum síðan að mingla. Enduðum inn í einu listaverkinu. Það var svo nokkurs konar bíll/geimskip/tímavél. Við stjórnvölinn voru tveir menn að drekka bjór. Einn þeirra hafði ég hitt fyrr um kvöldið við barinn og þá sagði hann að koma síðan og hitta hann "in the spaceship." Ég hélt reyndar að maðurinn væri bara smá kúkú þannig að ég kinkaði bara kolli. Svo var hann bara þarna. Í farþegarrýminu voru æðislega þægilegir sófar og á milli þeirra eitt stykki borð. Á borðinu var eldgömul ritvél. Þar var hægt pikka eins og maður vildi. Ég skrifaði meðal annars: Kamilla og Ingi Þór eru best í heimi og ég elska mömmu og pabba rosa rosa mikið. Mjög sentimental. Þar voru líka gervirifflar og alls konar dótarí. Svo kíkti maður bara út um gluggann og horfði á allt fólkið í partýinu. Mjög gaman.
Svo varð allt rafmagnslaust. Sem var reyndar bara mjög gaman en þegar þó nokkur tími var liðinn var okkur hætt að lítast í blikuna. Fólkið fann líklegast bara ekki rafmagnstöfluna þannig að við fórum bara enda var fólkið farið að tínast út. Þá fórum við á Riesen þangað til pleisinu lokaði. Mjög gaman. Endastöðin fyrir heimför var síðan Ideal Bar en þá varð ég orðin dauðþreytt en Ingi Þór heimtaði bara j&d í kók og var í bananastuði. Á endanum þurfti ég að sannfæra drenginn um að koma heim. Hann ætlaði víst bara að labba heim með vini sínum en það hefði tekið þá alla vega hálftíma. Svo komum við heim og Ingi Þór lagðist upp í sófa og sagðist ekkert vera þreyttur og fór að horfa á sjónvarpsmarkaðinn. Ég fór á klóið og þegar ég kom aftur inn í stofu var hann rotaður. Hann er meira að segja ennþá rotaður núna... Until next time...

13.6.2003
Heiðursgestur nr. 4000
Ég er gestur nr. 4000. Vúííííííí! Ég ætla að verðlauna mér á einn eða annan hátt. Reyndar er ég alltaf að verðlauna mér. Verðlaun fyrir að fara á fætur. Verðlaun fyrir að fara á klóið. Verðlaun fyrir að blibba. Bla, bla. Ég er komin með svo mikið kvef eftir gærkvöldið að mér finnst eins og ég skrifi nefmælt. Lovely...

Handavinna
Vá, hvað ég er búin að eyða miklum tíma í að endurraða tenglunum mínum. Enda líka svona fínt!!!! Henti nokkrum út! Til dæmis henni Baddý en hún hefur ekki bloggað síðan í mars. Hmmm, Baddý. Hvað á þetta að þýða? Fleiri gætu verið í útrýmingarhættu ef þeir hætta að vera duglegir blibbarar (sem er algjört overstatement í þeirra tilfelli!). Vala og Gunnhildur. Takið ykkur saman í andlitinu! Ef ég er að gleyma einhverjum sem ætti heima á listanum verið svo vinsamleg að láta mig vita.
Tók smá rónasession í gær. Endaði á Ideal Bar með Ullu en hún var að klára prófin í gær. Það er eitt sem ég meika ekki við danska skemmtistaði á sumrin. HITINN!!! Þetta er bara rugl. Loftræsting er eitthvað sem ekki þekkist. Maður er vanur því á Íslandi að drífa sig inn í hitann á skemmtistöðum en hér verður maður bara að fara út af og til til þess að ná andanum. Svo ef þú hefur í hyggju að dansa er sko eins gott að þú sért tilbúin til að nánast bráðna. Það var extra slæmt í gær, ekki skil ég samt af hverju vegna þess að það var fimmtudagskvöld og ekkert svo rosa margir úti. Mér leið bara hálf illa þarna inni og það lak af mér svitinn. Ekki beint girnó pía. Svo hringdi yndisfagur bróðir minn í mig. Hann var í picnic með vinum sínum. Soldið skrítið þar sem klukkan var 01.30 þegar hann hringdi. Don't ask me! Það var svo gaman að tala við hann. Ég talaði bara seinast við hann í síma eftir tarot-druslu-atvikið-sem-ég-mun-seint-gleyma. Ég reyndi að spyrja hann hvenær flugið hans færi en hann sagðist bara ekki muna það alveg. Merkilegt hvað við systkinin erum ólík. Hann kærulaus og ég ofurskipulögð. Ég held að ég hafi sent honum þrjú e-mail í fyrradag til að hafa sko allt á hreinu. Og hann svaraði mér ekki einu sinni! Þrátt fyrir ólíkan persónuleika erum við síðan alveg hryllilega lík í útliti. Á tímabili þegar við vorum yngri vorum við með svipað sítt hár og okkur var oftar en ekki ruglað saman. Frekar frústrerandi fyrir gelgju eins og mig á þeim tíma. Í dag er ég bara voða ánægð að vera lík svona sætum gaur. Vúííí!
Jess, er að hlusta á X-ið núna og það er verið að spila No rain með Blind Melon. Ég elska það lag. Sumar, sumar, sumar. Nema það að það er víst rigning heima á Íslandinu góða... Poopers! Ví og núna Foo Fighters. Gaman, gaman. Er nebbla að verða komin með soldið leið á þessum 40 diskum sem ég þurfti að velja svo vandlega með mér út:-(

12.6.2003
Lítil prinsessa í heiminn
Vala og Ingi Garðar eignuðust dóttur í gær. Himnasæla! Hún er víst með alveg eins hárgreiðslu og Ingi Garðar! Þá spyr ég bara, er hann með hárgreiðslu? Nei, djók. Ég óska nýbökuðum foreldrum innilega til hamingju. Hlakka bara til að sjá litla krílið þegar ég kem heim. Þá verður hún orðin rúmlega sex mánaða!
Ingi Þór kemur á morgun!!!!!!!!! Reyndar er drengurinn ekkert búinn að hafa samband við mig þannig að ég vona barasta að hann komi á morgun...

11.6.2003
Atvinnuleysi no more... (í alvörunni í þetta skipti)
Ég komin með vinnu, elskurnar!!! Héðan af mun ég þrífa elliheimili alla virka daga frá 6-13.30 (soldið klikkaður vinnutími). Slæmar fréttir eru þó að Guðrún er að fara heim á föstudaginn. Hún fékk vinnu á Íslandi og ætlar bara að skella sér heim. Nenni ekki að blibba. Löv jú gæs!

9.6.2003
Hundbleyti
Karnivalið var nú fyrir neðan allar hellur. Ulla lýsti því best. Fullt af fölum Dönum að hrista á sér appelsínuhúðaðan rassinn í von um að hita aðeins upp í sér blóðið. Reyndar er ég að ýkja hennar lýsingu örlítið en maður má víst ekki tala illa um Dani nema maður sé það sjálfur... það á auðvitað við um alla. Við fórum í Fælledparken þar sem karnival skrúðgangan átti að enda. Það rigndi af og til. Þegar droparnir byrjuðu að hrynja niður hlupu allir inn í nærliggjandi tjöld. Fyndin sjón. Við enduðum í tjaldi með einhvers konar eftirhermukeppni. Hópur unglinga, allir í búningum að mæma við Britney Spears og Justin Timberlake. Verst að það rigndi svo mikið að við urðum að vera í smá stund í tjaldinu. Það endaði með að Esben greyið sagðist ekki þola þetta lengur. Þá tróðum við okkur þrjú undir litlu regnhlífina mína. Reyndar gátum við ekki stoppað mjög lengi í Fælledparken vegna þess að við þurftum að fara á fund með Hróarskelduliðinu. Við ætluðum að hjóla en síðan var svo mikil rigning að við ákváðum að taka strætó. Fundurinn gekk rosa vel. Þetta verður æði. Við fáum bjórklippikort upp á 10 bjóra. Mat þegar við erum á vakt og last but not least sér klósett og sturtu. Allt sem snyrtipinninn Kamilla getur óskað sér. Svo er reyndar líka svona hang out pleis bara fyrir okkur þar sem maður getur aðeins slakað á og spjallað. Svo getur maður líka nýtt sér það að þekkja fólkið á barnum til að láta það geyma töskur og solleis fyrir sig. Þetta verður auðvitað hörð vinna og mikið að gera en þá er tíminn svo fljótur að líða. Vona bara svo innilega að ég verði ekki að vinna þegar eitthvað rosa skemmtilegt er... eins og Bonnie 'Prince' Billy, Queens of the stone age, Beth Gibbons, Cardigans, Massive Attack, Coldplay, Datsuns, Hellacopters, Kashmir, Raveonettes, Yo la tengo og svo miklu miklu meira. Ég geri mér reyndar fullkomlega grein fyrir því að ég á eftir að missa af einhverju af ofantöldu en ég verð bara að bíta í það súra epli.
Fórum á skrallið á laugardaginn. Fórum til vinkvenna Guðrúnar og Brynju á Íslandsbryggju og tókum 80's Syrpuna með stóru essi. Dönsuðum og dönsuðum með allt í botni þangað til nágranninn kom og öskraði á okkur. Úpps. Drifum okkur þá út og fórum á Nýhöfn sem var full af sigurglöðum og fullum Dönum eftir leikinn fyrr um daginn (Danmörk vann Noreg í fótbolta í fyrsta skiptið frá '92, spennandi...). Reyndar var eitthvað um sigurglaða Íslendinga eftir leikinn við nágranna okkar í Færeyjum. Var samt ekki alveg að meika stemmninguna þarna þannig að við Brynja drifum okkur á Ideal Bar. Seinna um kvöldið komu síðan Þórhildur og vinkonur hennar og þá voru fagnaðarfundir. Svo dönsuðum við og dönsuðum. Ég rakst síðan á Steffen. Ákvað að mér fyndist hann sjúklegur gæji en hætti svo við og lét Þórhildi þykjast vera ofurölvi til að ég gæti losnað frá barnum án þess tæknilega að vera að stinga af. Djöfull er ég ömurleg!!!!! En takk, Þórhildur mín. Meistaravel gert hjá þér! Oscar clip, alveg hreint!
Ég held að yndisfagur faðir minn sé að reyna að gera út af við okkur systkinin með sögum af mömmumat í kommentínóunum. Ég held að hann sé að refsa okkur fyrir að hafa yfirgefið þau in search of greener pastures... Langaði samt rosalega að vera hjá þeim í gær. Brunch hefði toppað daginn minn. Nóg um það. Ingi Þór kemur á föstudaginn. Ég verð að plana eitthvað skemmtilegt fyrir okkur að gera. Eftir að hafa sótt um styrk úr mömmusjóðnum gleður mig að tilkynna að við systkinin getum átt ljúfa daga saman án þess að þurfa að selja undan okkur dótið eða týna flöskur. Reyndar gæti ég trúað að það sé ýmislegt að fá í flöskubransanum. Held samt að ég muni seint kanna þann vettvang nánar...

8.6.2003
|
Yellabellie...
7.6.2003
Kaupmannahafnarkarnival...
Jebb, er á leiðinni á karnival í Kaupmannahöfn. Eitthvað hljómar það nú skrítið... Segi meira frá seinna.
Í dag fer ég líka að hitta fólkið sem ég mun vinna með á Hróarskeldu. Það verður spennó! Í kvöld er svo stefnan tekin á bæinn. Ég ætla líka að hitta hana Þórhildi. Við erum víst nágrannar sem er auðvitað mjög ánægjulegt.
Martin er að fara á stórt stefnumót í kvöld. Dating.dk er greinilega staðurinn til að vera á:-/ Hahahaha. Þess vegna ætla ég að reyna að vera sem minnst heima. Hann er nefnilega búinn að bjóða henni heim, kaupa hvítvín og jarðaber og þrífa pleisið hátt og lágt. Maður að mínu skapi!
Fu:el er nýjasta boybandið í Danmörku... og ég hata þá!! Litlir ofurstíliseraðir strákar. Þeir eru alltaf í úbbartinu og sjónvarpinu. Alveg að gera mig gráhærða. Talandi um grá hár eða lack of them. Mér finnst mjög algengt að ungir menn hér í Danmörku séu að fá skalla. Mér finnst ég ekki sjá svona mikið af þessu heima. Ég sagði Ullu þetta og fyrst var hún ekkert voða hrifinn af kenningu minni en í gær kíktum við aðeins á kaffihús og þá viðurkenndi hún að eftir að ég minntist á þetta tæki hún mjög mikið eftir þessu. Eitthvað í genunum, ætli sé til skallagen????
Ég er búin að hnerra svona 300 sinnum í dag. Ofnæmið eitthvað að ibba gogg. Fjandans!
Já, eitt enn. Lét einhvern gaur fá númerið mitt á fimmtudaginn. Ekki vegna þess að mér fannst hann svo sætur heldur vegna þess að hann var svo fyndinn. Útlitið hafði hann ekki með sér, greyið. Lítill, þybbinn og sköllóttur (by choice vona ég). Hann hringdi síðan í mig í gær og bauð mér í partý. Voða sætt af honum en ég fór ekki, var svo mygluð... Næsta skref er að gefa sætum gaur númerið mitt!
6.6.2003
Svekkelsi
Ég var búin að blibba hellings í gær og svo fór það ekki í gegn! Fokk. Þá skrifaði ég smá um að draslið hefði ekki farið í gegn og það fór ekki heldur í gegn. Vonandi fer þetta í gegn...
Var að vakna. Lentum á smá skralli í gær. Ætluðum að vera heima og horfa á Fame og vera með svoleiðis þema. Joggingföt, svitabönd og gettóblaster. Síðan nenntum við því ekki og fórum bara út... Fórum á Moose vegna þess að það var tveir fyrir einn þar. Stórhættulegt en hræódýrt...
Nenni ekki alveg að blibba núna, sorry!
Marta, Birta og mamma. Takk fyrir að hringja í mig. Þið hin... elska ykkur samt:-)

3.6.2003
Ekki lengur...
Þetta kommentínó frá Öldu læknaði heimþránna. Það læknaði reyndar ekki söknuðinn en what the hey... Ég held líka að ástæða þess að heimþrá hefur verið að hellast yfir mig sé sú að ég hafi of mikinn frítíma. Ekki það að mér finnist það ekki fínt en nú hef ég voða mikinn tíma til að hugsa. Hugsa um mömmu og pabba og Inga Þór og Hilmu og Mörtu og bara alla... Þetta er reyndar enn meiri ástæða til að finna mér vinnu. Reyndar vantar mér bara pening. Ef ég ætti peninga gæti ég bara gert það sem mér sýnist og þá hefði ég sko nóg að gera!
Brynja Dögg og Guðrún eru að koma til mín í mat í kvöld. Grjón og grænmeti. Ljúffengt! Smá uppskrift:
Sveppir, brokkolí, laukur, paprika, gulrætur (alls konar grænmeti) steikt upp úr sojasósu og smá ostrusósu líka (it does the trick)(Ekki slæmt að setja smá kjúlíus með). Hrísgrjón soðin og svo öllu skellt saman á disk. Rosa gott, er búin að lifa á þessu. Ingi Þór, prufaðu þetta! Skárra en frosna draslið sem þú ert búinn að vera að borða. Svo kaupi ég svona danska kæfu handa þér þegar þú kemur!! Þá verð ég besta systir í heimi. Jibbííííííííí!

2.6.2003
1.6.2003
Komiði með kampavínið
Gærkvöldið var án efa eitt það besta sem ég hef upplifað. Yndislega veður, bátur og kampavín. Við tókum strætó út á Christianshavn og röltum í Loftkastalann. Þar var bar og músík og sandur. Við sátum á strandstólum í sandinum og drukkum bjór. Loftkastalinn er blanda af skemmtistað, veitingastað og gistiheimili. Það er hægt að gista þar fyrir 200 kr. danskar. Fullt af kojum, gervigras, útistólar og borð og auðvitað danski fáninn. Hann er auðvitað plasteraður yfir allt hér í Danmörku. Við melduðum okkur við partýhaldarana og fengum stimpil á höndina; this is a moving exhibition. Svo sátum við aðeins þarna og skoðuðum mannlífið áður en báturinn fór af stað. 110 manns, kampavín og músík í einum bát. Þetta var frábært. Við sigldum út um allar trissur, fórum meira að segja niður í bæ. Alls staðar sem við sáum fólk var veifað og kallað. Þetta var svona tveggja tíma löng bátsferð og sjúklega gaman allan tímann. Við enduðum í risastórri skemmu við Refshalevej þar sem partýið var haldið. Þar var músík, fallegt fólk og rosa gaman. Við dönsuðum og dönsuðum. Í endann var músíkin samt orðin soldið einhæf og leiðigjörn þannig að við ákváðum að fara heim. Það var hægt að fara með bát upp á Nyhavn en við ákváðum að rölta og reyna að finna leigubíl. Það var nú aðeins meira að segja það. Ég held að við höfum labbað svona 2 km áður en við fórum að sjá vott af siðmenningunni. Við vorum sem sagt lengst upp í sveit... Á endanum, fyrir algjöra heppni, fundum við leigubíl en það voru sko margir að leita sér að bíl. Svo var það bara heim að hrjóta.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)