30.3.2003

Núna er Halli Valli búinn að stofnsetja nýtt lýðræðisríki og hlaut það nafnið Ávaxtaland. Þar eru allir jafnir, bananar sem kiwi...

Hafði hugsað mér að vera sófaklessa í kvöld og er nokkuð ánægð með þá ákvörðun. Fór á djammið í gær (aldrei þessu vant!) með Ósk og Rún. Horfðum á söngkeppni framhaldsskólanna sem dróst á langinn vegna tæknilegra örðugleika á RÚV (hva?? Gerist solleis á RÚV?). Fórum síðan á Þjóðleikhúskjallarann á Gullfoss & Geysi, smá á Kaffibarinn og svo á Prikið. Hef ekki farið þangað í mörg ár og mun ekki fara þangað aftur í mörg ár. Hittum reyndar Lilju, systur hennar Óskar, og það var ljúft. Hún gerði dvölina á Prikinu bærilega. Svo var það fermingarveisla í Kef í dag og kökurnar voru sjúklegar í þynnkunni.

Birta, yndislega kona, á afmæli í dag. Til hamingju, elskan mín!!!!!! Kossar og faðmlög frá Rvk til Barcelona.

29.3.2003

Í gær voru nákvæmlega 10 ár síðan ég fermdist þannig að ég ákvað að eyða kvöldinu í að lesa Sálmabókina, einstaklega ljúft. Hmmmm, þetta var haugalygi en ég fór á djammið eins og venjulega. Fór heim til Önnu með Brynju og Dögg. Við drukkum rauðvín og hvítvín og bjór og ég smakkaði svona pretzel sem bragðast alveg eins og söltuð flatkaka. Ekkert of gott. Við sátum og spjölluðum saman um okkur sem börn þangað til við vorum farnar að finna vel á okkur, þá breyttumst við í börn og fórum að semja free style dans. Mjög gaman. Tjúnuðum Madonnu og Prince í botn og dönsuðum frá okkur allt vit. Svo lá leiðin á Ölstofuna og Kaffibarinn. Fínt, fínt.

Ég hlustaði á þáttinn okkar í gær og hann er æði þó ég segi sjálf frá. Mjög skemmtilegur og ég væri alveg til í að hlusta á svona þátt í hverri viku á einhverri útvarpsstöðinni, helst Rás 2;-)

Ég er svo svöng að ég gæti borðað heilan hest... Rosalega er þetta ljótt orðatiltæki. Reyndar er ég banhungruð (ljótt orð líka!). Ég ætla að fara í matarmission. To the kitchen!!!!!

28.3.2003

Ég sótti mutti und vati á flugvöllinn í gærkvöldi og missti þ.a.l. af Michael Jackson þættinum take two. Ég geri reyndar fastlega ráð fyrir því að þessi þáttur hafi ekki verið eins sjokkerandi og sá fyrri enda ná leiðréttingar sjaldnast í gegn. Fólk vill líka bara vita um það afbrigðilega og skrýtna og þykir lítið varið í heilu þættina sem útskýra hversu góður og frábær einn maður er. Ég fékk nú smá glaðning að utan, nánar tiltekið náttföt (með skælbrosandi mánum og glimmerstjörnum!), tvöfaldan disk með Tim Buckley (föður hins mikla Jeff Buckley) og siggur. Diskurinn með Tim Buckley er tvær plötur frá '66 og '67. Mjög spes og ég held ég þurfi að melta þessa músík nokkuð vel áður en þetta fer á repeat í spilaranum mínum. Mjög sérstök raddbeiting sem einkennist af svona trúbadorastemmningu sjöunda áratugarins og á tímabili hugsaði ég bara, "ekki meira." Ég ætla samt auðvitað að gefa þessu sjéns og hlusta aftur. Þetta er allt öðruvísi en ég hafði til dæmis heyrt með honum hjá henni Thelmu minni, greinilega mjög fjölbreyttur tónlistarmaður í sífelldri endursköpun.

Partý hjá Rúnsu annað kvöld. Söngkeppni Framhaldsskólanna er auðvitað ómissandi viðburður og við ætlum að glápa á keppnina og drekka gleðivökva. Ósjaldan sem ég hef hlegið mig máttlausa og stundum jafnvel fengið gæsahúð við söng ungra framhaldsskólanema. Svo er auðvitað Daði hennar Rúnar að spila undir þannig við getum skrækt af kátínu í hvert skipti sem hann birtist á skjánum.

Nenni ekki að blibba meir í bili.

27.3.2003

Ég talaði við Ullu í gærkvöldi. Hún er ekki enn búin að finna herbergi fyrir mig en sagði mér að vera ekkert að stressa mig á þessu. Ég fæ herbergi á endanum og ef ekki þá mun ég bara búa hjá henni. Hún sagði mér líka að það eru 95% líkur á að við fáum vinnu á Hróarskeldu við að selja bjór! Þá munum við fá frítt á hátíðina og fá að gista á einhverju fancy pancy tjaldsvæði, veit reyndar ekki hvort við fáum einhverja peninga en ég held ekki. Svo þurfum við að vinna þrjár 8 tíma vaktir og getum farið á tónleika og solleis inn á milli. Mjög spennó, hef aldrei kynnst Hróarskeldu á þennan hátt. Man bara eftir drullunni sem var allsráðandi '97. Reyndar fékk ég að sjá Radiohead og Smashing Pumkins þannig að ég er nokkuð sátt í dag. Vona reyndar að það verði gott veður í ár...

25.3.2003

Hverjum tókst að ljúga að mér að það væri komið vor?! Það er bara allt hvítt úti, fjandinn hafi það...

Mamma, til hamingju með afmælið!!!

Ég hélt að það ætti að vera auðvelt að selja klósettpappír en það hefur reynst þrautinni þyngra. Það er greinilega einhver klósettpappírssölutíð í gangi. Íþróttafélög, fólk sem er að útskrifast og svo ég, Röskvuliði... Þetta gekk þó á endanum og mér tókst að koma þessu út enda er klósettpappír eitthvað sem fólk þarf alltaf á að halda. I'm bored. Held ég fari að gera eitthvað annað...
Ég er formlega komin inn í Danmarks Journalisthojskole!! Jibbý!!!

24.3.2003

...Slá í gegn, slá í gegn, þú veist ég þrái að slá í gegn...

Ég er upprennandi útvarpsstjarna. Ég og Anna fórum á kostum í stúdíó 4 hjá RÚV á laugardaginn. Við tókum upp 20 mínútna þátt á 50 mínútum og það er víst mjög professional;-) Svo erum við líka með svo fínar útvarpsraddir segir kennarinn þannig að við erum alveg að meika það. Svo er bara spurning um að selja þáttinn og koma sér á framfæri. Vonandi gengur það.

Ég eyddi deginum á haugunum, já, ruslahaugunum. Ég þurfti að tæma geymsluna mína og fór tvær ferðir á haugana í brjáluði veðri. Ég stóð þarna að flokka rusl með haglélið dynjandi á mér, ekta stingupillur eins og litla barnið í mér kallar haglél. En nú er geymslan mín laus við allt rusl og bráðum get ég farið að troðfylla hana með búslóðinni minni. Eina sem ég ætla að taka með mér út eru föt, nokkrar bækur og myndir af mínum nánustu en nú er rúmur mánuður þangað til ég fer, vííííí!

Anna, Brynja og Dögg komu til mín í kaffi í dag. Þær fóru í bakaríið og keyptu gúmmelaði og svo sátum við og kjöftuðum og rifjuðu upp helstu atburði helgarinnar sem leið. Mín helgi var nokkurn veginn svona:
Föstudagur: Kamilla sófaklessa horfði á Monsoon Wedding og fór einstaklega snemma að sofa miðað við föstudagskvöld. Mjög ljúft.
Laugardagur: Hitti Önnu um klukkan 10.30 á Gráa kettinum og við gerðum handritið fyrir þáttinn okkar sem heitir fimmtán mínútna frægð. Klukkan 12.55 tókum við strætó upp í sjónvarpshús en komumst síðan ekki í stúdíó fyrr en klukkan 15.10. Þá mössuðum við þáttinn og fórum síðan í Kringluna með Frey. Við ákváðum að fagna útvarpssigri okkar með því að elda góðan mat þannig að við keyptum Kjúlíus og Kjúlfar á einstöku tilboði. Svo elduðu Freyr og Anna dýrindis rósmarín sítrónukjúkling fyrir mig. Brynju og Dögg. Reyndar borðuðum við ekki fyrr en klukkan 22.30 en það kom ekki að sök því maturinn var stórkostlegur. Ég fæ vatn í munninn við að hugsa um hann. Síðan lá leið okkar í miðbæ Reykjavíkur þar sem við skemmtum okkur fram undir morgun. Mjög ljúft.
Sunnudagur Var ekki alveg að meika þynnkuna þannig að ég svaf mest allan daginn. Móðir mín kær og faðir minn fagur sóttu mig í Reykjavík og ég fór með þeim til Keflavíkur. Hitti Guggu, Thelmu, Særúnu, Brynju og Petru á kaffihúsi í Kef og átti með þeim ljúfar stundir eins og alltaf. Fór að sofa klukkan 22.30, búin á því...

Current:
Ég fór með Önnu á the Hours áðan. Ég hef ekki séð svona áhrifamikla mynd í langan tíma. Hún fær mann til að íhuga líf sitt og hvers virði það er. Ætla að íhuga líf mitt frekar...


20.3.2003

Ég er búin að vera mjög pirruð í dag, veit ekki af hverju en hugsa að það tengist eitthvað ömurlegu ástandi heimsmála. Maður fyllist af vonleysi vitandi af þessu stríði í Írak. Ég fór nú samt á mótmælafund á Lækjartorgi seinni partinn og hrópaði og klappaði í rokinu og rigningunni. Ögmundur var frábær og sömuleiðis Þórunn Sveinbjarnar. Svo voru krakkar úr leiklistardeild LHÍ með hálfgerðan gjörning fyrir framan málningarskvett stjórnarráðshúsið. Þau lágu útötuð í svínablóði eins og lík fyrir framan stjórnarráðið. Mjög áhrifamikið, fær mann til að muna eftir öllu saklausa fólkinu sem lætur lífið í svona bévítans átökum. Ingi Þór var víst líka að mótmæla í Manchester en þar hafa farið fram kröftug mótmæli út af árásunum á Írak, gott hjá stráknum!

Mamma og pabbi eru hætt við að fara til NYC, sem betur fer. Pabbi greyið hafði varla sofið af áhyggjum þannig að þau ákváðu bara að fara til Köben í staðinn. New York verður bara að bíða betri tíma. Ég segi bara Ha' det sjovt i Köbenhavn, mine dejlige forældrer. Maður verður nú að æfa sig í dönskunni þar sem ég verð bráðum tímabundinn íbúi þar...

Hilma og Sigrún Dögg eru að koma til mín. Við ætlum að horfa á Bachelor og Sex and the City. Var reyndar að skrifa pistil fyrir ljósvakamiðlun um Bachelor. Hér er smá bútur:

Miðlar sjónvarpið raunveruleikann eða brenglar það hann? Verður þáttur eins og the Bachelor ekki bara til þess að við sköpum staðalmyndir um ýmsa hópa í þjóðfélaginu og búum til staðlaðar útgáfur af konum sem eiga ekki við rök að styðjast. Ég hef heyrt lýsingar á sumum kvennanna sem taka þátt í the Bachelor. Lýsingar eins og: „Fegurðarsamkeppnatýpan sem vælir bara ef hún fær ekki sínu fram,” og „vel menntaða konan sem talar og talar en segir samt ekki neitt.” Á sjónvarp ekki þátt í því að svona staðalmyndum er viðhaldið? Verður þáttur eins og the Bachelor ekki bara til þess að bandarískar konur verði álitnar gera allt til að ná sér í sæmilegan karlmann?

Fjölmiðlaefni hefur oft verið álitið félagslegur mælir (e. cultural indicator), það er að það endurspegli sameiginleg gildi og hefðir tiltekins tíma og staðar eða hóps (McQuail, 2000). Hvaða hugmyndir gefur the Bachelor þá um ungar og einhleypar bandarískar konur? Þetta er hættulegt að því leytinu til að það skapar staðlaðar ímyndir um þennan hóp og hvernig hann hagar sér. Þó að í the Bachelor komi fram alvöru fólk er það þá að hegða sér eins og það myndi gera í daglega lífinu þegar engar myndavélar eru að fylgjast með þeim? Þetta er auðvitað einstaklingsbundið en líklega endurspegla þættir sem slíkir ekki hið daglega líf.

The Bachelor er einn þeirra þátta sem endurspegla ekki raunveruleikann á neinn hátt sem eðlilegur gæti talist. Hann endurspeglar aðstæður sem hinn venjulegi Jón og hin venjulega Gunna eiga aldrei eftir að upplifa og þess vegna set ég spurningarmerki við þann flokk sem þessi þáttur fellur í, það er raunveruleikaþáttur. Efni þáttarins er líka hálf hallærislegt en það selur og það virðist skipta öllu máli í þessum bransa, burtséð frá því hvort efnið hafi slæm áhrif á komandi kynslóðir og álit þeirra og skoðanir á kynjunum.

S.s. Algjört prump sem ég er samt að fara að horfa á!!!

19.3.2003

Rosalega langar mig í nýju Bonnie Prince Billy plötuna. Er búin að heyra tvö lög af henni á Rás 2 í dag, ofsalega ljúf. Gjafmilt fólk minni ég bara á afmælið mitt í næsta mánuði. Ég er að spá í að halda svona afmælis- og kveðjupartý einhvern tímann um páskana. Var reyndar að spá í 21. apríl (2. í páskum) en svo sagði mér einhver að það væri bara almennur vinnudagur daginn eftir þannig að ég hef ákveðið að taka tillit til vina minna sem eru á vinnumarkaðinum og breyta dagsetningunni. Læt ykkur vita betur seinna.

Ég held að ég sé eitthvað skrýtin. Ég er svo mikil skipulagsfrík að það helsta sem ég hef áhyggjur af út af þessari Danmerkurferð er hvernig ég eigi að pakka niður fyrir átta mánuði. Mig hefur meira að segja dreymt þetta oft, meira kjaftæðið. Ég held að ég eigi eftir að hafa voða gott af þessu, slaka smá á í þessari áráttu sem ein vinkona mín líkti eitt sinn við snert af einhverfu, dæmi hver sjálfur...

Elskulegir foreldrar mínir gáfu mér nýtt sófaborð í gær, einstaklega fallegt tekkborð úr Góða hirðinum. Takk, mamma og pabbi! Svo er gamla settið bara á leið til NYC. Veit reyndar ekki hversu vel mér líst á það og ég veit að Ingi Þór er að farast úr áhyggjum og vill ekki að þau fari. Hann heldur því fram að ef til stríðs komi muni fyrst verða varpað sprengjum á New York, svo London og þá Manchester. Auðvitað munu mamma og pabbi hætta við að fara ef þeim er ráðlagt að gera það en annars leggja þau í hann. Fólk á auvitað ekki að hætta að lifa lífinu og loka sig bara af, þá fyrst hafa þessir stríðsóðu valdamenn yfirhöndina, þegar þeir hafa náð að innbyggja hræðslu í þegna sína og annarra landa.
Fermingarafmælið var víst aðeins meira brutal en mig minnti. Þar sem ég bý í Reykjavík eru kjaftasögurnar aðeins lengur á leiðinni til mín. Það var eitthvað brotið og bramlað eins og stólar, hurð og klósettseta og mér sem fannst allir vera að skemmta sér svo fallega. Svo lentu nokkrar meyjar af árgerð '79 illa í því þegar þær voru að labba heim. Þær mættu manni í strigaskóm og með skíðagleraugu... einum fata!!! Þessum sækó gaur fannst síðan voða gaman að hlaupa á eftir þeim og sýna á sér sprellann. Mjög smekklegt. Það var kallað á lögguna en þar sem árshátíð löggunnar í Kef var í fullum gangi var löggan úr Rvk að leysa af og rataði víst ekkert um ekkert þannig að flassarinn slapp... Frekar absúrd. Reyndar hef ég ekki þessa vitneskju af fyrstu hendi þannig að hún gæti verið eitthvað brengluð.

Ég og Anna erum að fara í stúdíó á laugardaginn að taka upp þáttinn okkar. Hann kallast 15 mínútna frægð og markmiðið með honum er að koma tónlistarfólki á framfæri. Fyrstu gestir þáttarins verða Tokyo Megaplex en við ætlum að spila tvö lög með þeim og taka síðan viðtal við Sigga, einn meðlim hljómsveitarinnar. Svo ætlum við inn á milli að skjóta inn góðum ráðum fyrir fólk sem er að reyna að meika'ða. Voða spennó!

Hvernig stendur á því að ég fæ fokking 10.000 kr símreikning?????!!!!! Reyndar bæði fyrir heimasíma og gsm en fyrr má nú aldeilis fyrr vera!! Nú er ég komin í símastraff þannig að ekki taka það nærri ykkur ef ég hætti að hringja. Hringið bara frekar í mig...

18.3.2003

Ég vil ekki að það komi stríð. Nánast allir jarðarbúar hljóta að deila þessari ósk með mér.

16.3.2003

Ég sit hérna hálfskælandi fyrir framan tölvuna eftir að hafa horft á heimildamyndina Hlemm. Þvílíkur tilfinningarússibani sem þessi dagur var. Vaknaði í sælunni á Hótel Mömmu og fékk kjúlíus hjá henni. Svo lá leiðin með Sigrúnu Dögg í Smárabíó þar sem við fórum á Maid in Manhattan. Sykursæt klisjumynd sem fékk mig til að hlæja, skæla og næstum æla yfir væmni. Sum atriðin voru hreinlega yfir strikið. Eftir smá innsýn í ævintýralegan "veruleika" J-Lo og Ralph Fiennes (sem er very fine btw) í bíói í litlu Ameriku (aka litla Íslandi) tók við blákaldur raunveruleiki á RÚV. Þetta ógæfufólk fékk mig til að skæla og prísa mig sæla yfir því að svona hluti sé ég bara í imbakassanum. Reyndar fór þjóðernissósíalistinn í mínar fínustu. Kynþáttahatari sem var samt að spá í að fá sér asíska konu vegna þess að þær eru "rólegar og glaðlyndar" og ekki með fyrrum hjónabönd, grislinga eða skuldir í eftirdragi. Greinilega gaur með sinn skít á hreinu. Fyrst þegar hann var kynntur hugsaði ég með mér að þetta væri nú fínn gaur og gangandi dæmi um það að hægt sé að hífa sig upp úr sukki og svínaríi en annað kom á daginn. Hann fór hreinlega úr einni átt öfga í aðra. Sumir finna trúnna aðrir finna þjóðernissinnaðar lausnir og enn aðrir halda sig við sukkið og enda í gröfinni. Sorglegt en satt...

Fermingarafmælið var í gærkvöldi og heppnaðist rosa vel. Ekkert smá gott að hitta allt þetta fólk aftur, suma hafði maður ekki séð í átta ár. Margir komnir með börn, aðrir giftir eða trúlofaðir og ég barnlaus og karlmannslaus. Það er samt ekki alslæmt vil ég halda fram en fékk þó að heyra það frá góðvinum (!) mínum þeim Rúnari og Særúnu að blibbið mitt væri leiðinlegt, of miklar kellingaáherslur. Þannig er nú bara mál með vexti að ég lifi frekar óspennandi lífi. Skóli og of mikið djamm sem veldur því að ég verð frekar leiðinleg og þ.a.l. blibbið líka vegna þess að það er nú spegill sálarinnar eða eru það augun. Veit það ekki, er svo skemmd... Ég ætla bara að snúa við blaðinu, hætta í sukkinu og verða skemmtileg. Það er nýja markmiðið mitt. Þetta var skemmtilegt en nú kveð ég ykkur in search of greater things in the outer world...

14.3.2003





I'm Monica Gellar-Bing from Friends!

Take the Friends Quiz here.

created by stomps.


Hverjum hefði dottið það í hug?? ;-)

Það hefur sko ýmislegt á daga mína drifið undanfarið. Ég búin að ákveða að eyða sumrinu í Kaupmannahöfn, bara við að skúra eða eitthvað. Svo mun ég halda til Árósa og vera skiptinemi í dönskum blaðamannaháskóla. Ég er búin að finna manneskju til að leiga íbúðina á meðan ég er í burtu og meira að segja búin að festa kaup á flugmiða til Danaveldis. Áætluð brottför er 30. apríl kl. 07.30. Voða spennó. Ulla heldur ekki vatni yfir því að ég skuli vera að koma og skemmir að ég er líka alveg að pissa í mig úr spenningi... Nú er það bara að finna húsnæði og vinnu í Köben:-/ Held samt að það verði ekki mikið mál en Ulla og Mæda frænka eru báðar að tékka á húsnæði fyrir mig og Ulla er líka að leita að vinnu fyrir ykkar einlæga. Svo skellir maður sér bara á Skelduna og getur vel farið að ég verði þar að selja hinn eðalbjór Carlsberg ofan í bjórþyrstan lýðinn, ekki slæmt!

Í kvöld er aðalfundur Röskvu. Hann verður haldin á 22 kl. 22. Ég hvet alla til að mæta, bjór á tilboði og alles.

Svo er það hið langþráða fermingarafmæli á morgun. Ég og Sigrún Dögg erum æsispenntar yfir þessum merka atburði og keyptum jarðaberjafreyðivín í tilefni dagsins. Það verður væntanlega drukkið í fordrykknum sem haldin verður heima hjá foreldrum Sigrúnar á morgun og þeir sem eru á leiðinni í afmælið eru hjartanlega velkomnir. Hafið bara samband við mig og ég gef ykkur frekari upplýsingar. Ciao!

11.3.2003

Ég bakaði köku í dag. Reyndar fékk ég ekki þá ánægju að borða hana sjálf heldur gaf hana... Ég gaf endurskoðandanum mínum hana. Hann reddaði mér í þessu LÍN veseni í fyrra og ég lofaði honum köku í staðinn. Var rétt núna að efna loforð mitt:-/

Ég og Grétar Röskvuliði vorum að skrifa pistil áðan í næsta tölublað Röskvufrétta. Pistillinn verður vonandi í hverju tölublaði og heitir Tveir Doktorar. Við erum að skoða samskipti kynjanna og sambönd og gefa ráðleggingar og solleis, mjög spennó. Ef ykkur vantar hjálp í ástarlífinu sendið þá póst á tveir_doktorar@hotmail.com. Við reddum því:-)

10.3.2003

Ég datt á hausinn (í bókstaflegri merkingu!) á föstudaginn (nánar tiltekið á laugardagsmorgni) og ég held ég sé eitthvað skrýtin eftir það. Í fyrsta lagi er ég með risakúlu og svo er ég eitthvað svo sljó. Ég vona að ég hafi ekki fengið heilahristing eða eitthvað. Þetta er alla vega soldið skrýtið...

Ég fór í tíma í meðferð talaðs máls í dag og það er kominn nýr kennari. Hún heitir Margrét Ákadóttir og er leikari. Hún er vægast sagt frábær. Ótrúlega lífsglöð kona. Hef ekki skemmt mér svona vel í tíma síðan... ég man ekki einu sinni hvenær. Hún ætlar að kenna okkur að nýta þetta verkfæri sem rödd okkar er. Ég á einmitt að lesa upp ljóð í næsta tíma. Minnir mann bara á þegar maður þurfti að þylja upp Maístjörnuna fyrir Ragnheiði kennara í 6-R. Þetta verður kannski aðeins meira krefjandi...

Svo er það bara fermingarafmælið næstu helgi. Ég vona að það eigi margir eftir að mæta. Ég held að það sé samt nokkuð góð stemmning fyrir þessu kvöldi enda er ekki oft sem maður fær að hitta flesta jafnaldra sína úr Kef á sama stað. Ég hlakka til að kjafta við fólk sem maður hefur varla séð síðan í 10. bekk og komast að því hvað það hefur verið að bauka. Það er líka fáránlegt að það séu 10 ár frá því ég fermdist. Og mér sem fannst ég svo fullorðin þá. I'm on the road to old people ville...

9.3.2003

Árshátíðin var frábært, Ban Thai algjör snilld og Gullfoss og & Geysir góðir sem fyrr. Hitti fullt af skemmtilegu fólki og skemmti mér konunglega. Í gærkvöldi fór ég síðan í matarboð til mömmu og pabba í Kef og það var lífsreynsla út af fyrir sig. Mamma er nebbla að verða fimmtug 25. mars en verður þá í NYC og þess vegna ákvað hún að halda grand matarboð áður en hún og daddy cool halda utan. Öll fimm systkini hennar mömmu voru þarna saman komin ásamt mökum sínum og svo auðvitað amma. Ég fékk að vera deitið hennar og fólk hafði orð á því að við hefðum verið ástfangnasta parið þarna um kvöldið. Við fengum guðdómlega kalkúnabringu sem gjörsamlega bráðnaði upp í munninum á manni. Ef það er til himnaríki fékk ég bút af því með þessum mat í gær. Svo var endalaust af rauðvíni sem gerði kvöldið ennþá skemmtilegra. Ég sá alveg nýja hlið á þessu mjög svo góða fólki. Hlið sem ég er ótrúlega ánægð að hafa fengið að kynnast. Setningar eins þessar standa upp úr eftir kvöldið: "Oh, ég vildi að þú ættir afmæli á hverju ári!" "Hvað heldurðu að ég hefði þá bara endað sem atvinnumella í Kína eða eitthvað??" Þetta var sem sagt alveg brilliant kvöld!

Ég er búin að taka ákvörðun um að vera í Köben í allt sumar eða þangað til ég fer til Árósa í skólann. Ég er búin í skólanum hér í kringum 15. apríl og er að spá í að fara bara út í enda apríl eða byrjun maí. Ég er ótrúlega spennt og verð í burtu í um 8 mánuði. Ekki gráta, krakkar mínir. Þetta er bara tímabil og svo kem ég aftur heim, reynslunni ríkari.

7.3.2003

Jæja, gott fólk. Letiblibbarinn í mér er horfinn! Ég er að fara á árshátíð í kvöld og það er sól úti, reyndar geri ég fastlega ráð fyrir því að það rok líka en ég er ekki enn farin út úr húsi þannig að ég get látið mig dreyma. Dagurinn byrjaði reyndar ekki allt of vel hjá mér þar sem ég svaf yfir mig. Í kjölfar þess ákvað ég bara að skrópa í skólanum það sem eftir er dagsins, vera bara heima og naglalakka mig og hafa það næs.

Ég fór á alþjóðakvöld í Stúdentakjallaranum í gærkvöldi með Hönnu. Gunnhildur Eyja var að vinna og ég ætlaði að hitta Fabri en hann kom ca. tveimur tímum of seint. Ætli Ítalir séu óstundvísir að eðlisfari (mjóg ómannfræðileg spurning, ég biðst afsökunar)? Drakk tvo bjóra og fann aðeins of mikið á mér þannig að ég fór bara heim að sofa. Ætli þarna sé ekki komin ástæða þess að ég svaf yfir mig í skólann í morgun?

Æ, ég ætla að gera eitthvað af viti eins og að naglalakka tásurnar mínar rauðar;)

5.3.2003



Þar sem myndin af mér hvarf á dularfullan hátt af blibbinu ákvað ég að setja hana aftur inn, fékk reyndar smá hjálp;-) Ég vil auðvitað halda áfram að lofsama Herbalife en án þess hefði ég líklegast þurft að dúsa inni í húsi til æviloka. Lifi Herbalife!!!!!!!!!!!!!!!
Ég ætlaði ekki að særa neinn með síðasta blibbi þannig að ég dreg ummæli mín til baka. Nenni ekki að pæla lengur í þessu svekkelsi.

Ég var að ákveða það að ef ég fæ ekki vinnu á Alþjóðaskrifstofunni í sumar ætla ég fyrr til Danmerkur til að vinna þar. Ég held ég geti alveg unnið við að skúra eða eitthvað svoleiðis í eitt sumar. Ég ætla að biðju Ullu um að hjálpa mér að finna vinnu og herbergi í Köben en kannski verður ekkert úr þessu hjá mér. Kannski verð ég bara í Reykjavíkinni í sumar, aldrei að vita. Reyndar væri ég alveg til í að vera í Danaveldi alveg frá byrjun maí.

Ég og Hilma áttum yndislegan kellingadag í gær. Fórum í Kringluna, Smáralind og m.a.s. Glæsibæ, hefðum reyndar betur mátt sleppa því... Fórum síðan heim til mín og tókum smá free style session á stofugólfinu með Tokyo Megaplex á fullu blasti. Svo eldaði Jón Björn fyrir okkur dýrindis steik og gaf okkur rauðvín. Svo voru rauðvín og ostar um kvöldið og við enduðum vel hífaðar með fjólubláar rauðvínstennur. Einstaklega ljúft. Sofnaði sem sagt sæl um kvöldið.

Drengurinn er kominn til Manchester og hefur notað úlpuna sína sem sæng undanfarnar nætur. Gamla settið á Vallargötunni er alveg að farast úr áhyggjum, alla vega mamma, og reyndar ég líka þó svo að ég búi ekki lengur í þessu góða húsi. Samt hefur Ingi Þór auðvitað bara gott af þessari dvöl þar ytra, ekki hægt að segja annað.

4.3.2003

Ég er búin að vera á bömmer undanfarna daga. Röskva tapaði kosningunum og ég skil ekki hvernig. Ég leyfi mér að efast um geðheilsu þeirra kjósenda sem kusu ekki Röskvu en það fer ekki lengra.

Árshátíð hjá hagnýtri fjölmiðlun er næstu helgi. Ban Thai og ball á Þjóðleikhúskjallaranum, svaka stuð. Nenni ekki að blibba núna, er enn á bömmer. Argh!!