Smá fljótfærni
Já, ég var aðeins of fljót á mér hérna áðan. Vildi bara bæta við að ég verð með gamla, góða gsm-númerið mitt þegar ég kem heim. 863-3499, fyrir þá sem eru búnir að stroka mig út úr minninu (Skammist ykkar!:-)). Hringið nú í mig og öskrið: Velkomin heim Kamilla!!!!
Jæja, nú kveð ég. Í þetta skiptið er það final!
14.12.2003
10.12.2003
Spúaði næstum yfir eldhúsgólfið...
Hvað haldiði að hafi blasað við mér þegar ég kom inn í eldhús hér á Elmegade 23?! Forsíðan á jólaútgáfu Undirtóna 2003 hékk upp á ísskáp... með Ron Jeremy og "litla" vininum í öllu sínu veldi. Þarna munaði sko mjóu að ég kastaði kvöldmatnum upp. Þar skall sko hurð nærri hælum! Svo stendur Gleðileg jól á blaðinu. Hvað er eiginlega gleðilegt við Ron Jeremy á sprellanum?! Sýnið mér frekar Jude Law á sprellanum, þá tek ég upp gleði mína á ný.
Var að fá myndir úr framköllun. Ein filman samanstóð næstum alveg bara af myndum af mér, Ullu og Þórhildi á klóinu. Okkur fannst það mjg fyndið það kvöldið að eyða næstum heilli filmu í klósettmyndir og svei mér þá ef það er ekki bara asskoti fyndið. Ulla fór einmitt á sama klósett (sem er í skólanum hennar) og sá soldið sem við höfðum skrifað það kvöldið (hvorug okkar man þó eftir því, kannski að Þórhildur sé sökudólgurinn. Það stóð nefnilega, Þórhildur, Ulla and Kamilla were here. Hahaha. Er barasta að spá í að taka með mér túss um helgina... mark my territory, þið vitið.
Alla vega, ég spái því að um helgina verði ég ofurölvi, fari í sleik og máli bæinn rauðan. Krossið fingur, gott fólk;-)

Komin í siðmenninguna!
Eftir erfitt ferðalag er ég komin til Ullu minnar. Erfiðasti hluti ferðalagsins var án efa þegar við þurftum að dröslast með allan farangurinn minn upp á fimmtu hæð! Gvöð, hvað það var erfitt. Tókum okkur pásu á hverri hæð. Helgin er þétt skipuð af alls konar djammi og dótaríi. Það verður æði!
Jæja, ætlaði bara að láta vita af mér. Finnst eins og hendurnar séu að detta af mér þannig að það er soldið erfitt að pikka.

5.12.2003
Seinasti skóladagur... vúbbí!!
Ó, jess, beibí, skúls át for sømmer... eda svona næstum thví. Sit hér og var ad leggja lokahøndina á heimasíduna okkar. Thid verdid ad tjékka á henni. Hún er mjøg flott thó ég segi sjálf frá:-)
Í gær var julefrokost hjá bekknum mínum. Vid fórum øll í okkar fínasta púss og átum og drukkum saman. Thad var ædi. Ég á eftir ad sakna thessa fólks alveg rosalega.
En nú eru bara 10 dagar í ad ég komi heim. Ó, mæ god!!! Thad er ekkert smá stutt í mig. Gerid rauda dregilinn tilbúinn, 'cause mama, I'm coming home!!!
Jæja, thad verdur lítid um blibb næstu daga, alla vega thar til ég verd komin til Køben.
Ást og fridur, yndin mín og eigid stórkostlega helgi!!

3.12.2003
Ofsa er ég sæt núna!
Jæja, ég fór í heimsókn til Maríu Rósar og fjölskyldu í gær. Fór þaðan út nýplokkuð og södd. Það var indæl tilfinning. Ég hef ekki fengið almennilega máltíð í allt of langan tíma og það var svo næs að sitja bara og kjafta. Hlakka til að eiga svona ljúfa stund með fjölskyldunni á Vallargötu 22.
Í dag er miðvikudagur. Vika í Köben. Ég er löt. Neni ekki að vinna í þessari heimasíðu. Langar niður í bæ að skoða jólaljósin og skoða búðirnar. Er að spá í að láta þennan draum minn rætast. Ó, jess, beibí!!!

1.12.2003
Fótboltabullurnar á Lottesvej 3
Mér finnst alltaf vera fótbolti í sjónvarpinu. Alla vega eru strákarnir sem búa með mér, Allen, Allen, Sören, Rene, Morten og Pedro alltaf að horfa á þessa mjög svo leiðinlegu íþrótt. Ég myndi kannski skilja það að horfa á leiki með liðinu sem maður heldur með en að horfa á þá alla... það er bara svakalegt. Reyndar veit ég með hvaða liði þeir (flestir, Pedro er frekar hlutlaus enda frá Portúgal) halda með, nefnilega Bröndby. Þegar Bröndby spila fer Allen í nr. 4 alltaf í gulu treyjuna sína og svo sitja þeir við eldhúsborðið og öskra úr sér lungun þegar gula liðið skorar og bölva andstæðingunum í sand og ösku þegar þeir ná að skora mark. Ég mun seint skilja þetta. Ég man meira að segja þegar ónefndur sambýlingur minn horfði á fótboltaleiki ruglaða í sjónvarpinu. Ha?!

Þýfið er heima
Helgin búin og ein vika eftir af skólanum. Ein vika!!! Ég barasta trúi þessu varla.
Ég fór ekki á ballið. Við fórum reyndar á Social Club þar sem ballið var haldið en þegar ég heyrði að hljómsveitin var að spila Sólstrandargæjinn ákvað ég að þetta væri ekkert fyrir mig. Mér fannst bara voða spennó fyrst að ímynda mér fullt af Íslendingum á sama skemmtistað en áttaði mig svo á því að það er það sem koma skal þegar ég kem til Íslands... Í stað þess að fara á ballið fórum við bara á Sway en ekki án þess að taka bút af Íslandi með okkur. Sara hnuplaði nefnilega einu stykki íslenskum fána fyrir Kamillu, ungfrú heimþrá.is. Fáninn gekk þó í gegnum ýmislegt um kvöldið en hangir nú stoltur á geisladiskastandinum í herberginu mínu á Lottesvej 3.
Ég held að ég sé að verða gömul. Alla vega versna timburmennirnir með árunum. Ég eyddi þess vegna öllum laugardeginum í rúminu. Rétt meikaði að fara í Netto að kaupa í matinn. Vaknaði síðan eldsnemma á sunnudeginum og útbjó brunch fyrir mig og Halldóru. Síðan fórum við í bæjarferð að kaupa jólagjafir.
Rósa átti afmæli í gær. Til hamingju, elskan mín. Ég vona að þú hafir fengið sms-ið sem ég sendi þér.
Ég er voðalega ófyndin í dag eitthvað og veit ekkert hvað ég á að skrifa, best að slútta þessu þá bara. Ef þið viljið lesa eitthvað fyndið, tékkið þá á blibbinu hans Inga Þórs.
Bless.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)