28.11.2003

Íslendingaball

Það er Íslendingaball á Social Club í kvöld og Bjórbandið er að spila. Við Halldóra erum að spá í að skella okkur...

Góða helgi, öllsömul.

27.11.2003

Ég er svo dugleg

Hæ. Kominn fimmtudagur og ég er búin ad eyða hálfum deginum í að endurskrifa greinina. Ég þurfti að setja inn einhvern PPP staðal sem ég skildi ekki mikið í. Svo til að fá þetta allt til að meika sens skellti ég inn Big Mac indexinu líka. Spennó, ekki satt. Þetta þurfti ég að gera til að sýna gildi eistnesku krónunnar vegna þess að það er auðvitað ekki nóg að bera saman meðallaun í Danmörku og Eistlandi. Maður getur fengið mikið meira fyrir eistneska krónu en danska. Svo er það þessi Big Mac stuðull. Hvaða land haldiði að vermi fyrsta sætið? Nú, auðvitað Ísland!! Hvergi annars staðar er Makkarinn dýrari.

Við Halldóra vorum að tala um væntanlega heimkomu okkar og hún tjáði mér að hún kvíðir mest fyrir tvennu. Veðrinu og verðinu. Ég held að ég sé sammála henni. Brynja Dögg sagði mér einmitt að hún hefði fengið hjartaáfall annan hvern dag í búðinni vegna verðlagsins. Mamma sagði mér svo reyndar líka að það væri nú ágætis verðsstríð (einu góðu stríðin!) í gangi heima þannig að það er kannski ekki öll von úti enn.

Góðar fréttir. Ég fæ íbúðina mína strax og ég kem heim. Dögg ætlar að vera svo góð að leyfa mér að flytja inn strax. Svo hafa líka nokkrir aðilar sýnt áhuga á að leigja með mér. Vonandi kemur eitthvað út úr því:-)

PPP-ið kallar. Farvel!

26.11.2003

Hjólid heim

Í dag tharf ég ad kvedja hjólid mitt. Thad er nefnilega ad fara med Brúarfossi á morgun. Halldóra var svo ædisleg redda plássi en hún thekkir fólk sem vinnur á skipinu. Nú verd ég bara ad labba um allt og taka strætó. Reyndar hef ég gert mikid af thví vegna thess ad thad er búid ad vera svo mikid skítavedur. Endalaus ringing og allt grátt. Thess vegna øfunda ég alla á Íslandi núna vegna thess ad thid hafid nú snjóinn til ad lífga upp á hlutina:-) Vid Halldóra ætlum ad hjóla saman hinsta hjólatúrinn og leidin liggur nidur á høfn vegna thess ad thar eru øll skipin:-)

Humarsúpan olli mér vonbrigdum. Mér fannst hún bara hálf ógedsleg. Ég held samt ad súpur í dós séu almennt ekkert til ad hrópa húrra fyrir (nema thá Campbell's, thær eru gódar). Kannski hefdi ég frekar átt ad kaupa fiskibollurnar.

Fiskibollur, humarsúpa, hjólid nidur á høfn. Svona er líf mitt spennandi thessa dagana...

25.11.2003

Taka bara af honum hausinn og sturta í klóid

Vá, hvad ég er súr núna! Var ad koma úr feed-back session hjá John, kennaranum mínum, og allt sem hann sagdi mér ad breyta hefur hann tekid til baka. Fjandans kjaftædi!! Ég eyddi heillöngum tíma í ad endurskrifa greinina mína frá thví í Eistlandi til ad hún kæmi betur út á netinu en nei... Hann talar bara út úr rassinum á sér thessi madur!

Fokking sjitt, ég er bara farin heim ad horfa á Beverly Hills 90210. Thessi dagur getur haldid áfram ad einkennast af hálfvitum sem segja eitt en meina annad.

24.11.2003

Humarsúpa á tilbodi

Haldidi ad litla íslenska hjartad mitt hafi ekki tekid aukakipp í gær thegar ég gekk framhjá tilbodsrekkanum í Netto?! Jú, jú, íslenskar fiskibollur og íslensk humarsúpa í dós á tilbodi. Ég ákvad ad fjárfesta í humarsúpunni eingøngu vegna thess ad thetta var íslensk framleidsla. Íslenskt, já takk!

Nú er lidin dágódur tími frá sídasta innihaldsríka blibbi. Ástædan er hreinlega sú ad ekkert hefur á daga mína drifid undanfarid. Allt med kyrrum kjørum hér í DK. Thó jókst studmeterinn tiltølulega um helgina. Hún Ulla mín kom í heimsókn. Vid skelltum okkur í bíó á føstudagskvøldid og sáum Love Actually. Frekar mikid prump á køflum en hún fékk mig thó stundum til ad hlæja hjartanlega. Thetta var bara rólegt kvøld enda vorum vid ad spara okkur fyrir laugardagskvøldid. Thá var nefnilega afmælisparty hjá Søren. Ég baud í smá stelpuparty til mín sem endadi í trylltum dansi í litla herberginu mínu. Svo skelltum vid okkur í partyid en ég hélt ekki studinu og fékk smá attack of the heimthrá. Allt í einu fannst mér bara allt hundleidinlegt og ákvad ad fara heim. Ulla greyid ákvad ad fara bara med Kamillu fylupoka. Vid hefdum betur á ad vera eftir vegna thess ad thegar leid á nóttina færdist heldur betur líf í tuskurnar. Allir í sleik og barasta villt líferni. Á medan thetta allt gerdist sofnudum vid Ulla yfir Discovery Channel - Travel and Adventure. Frekar studlítill endir á annars ágætu kvøldi.

Eftir thessa ofurheimthrá sem ég fékk á laugardagskvøldid fór ég ad pæla adeins. Ég er búin ad einbeita mér svo mikid ad hlutunum sem ég sakna vid Ísland en hef gleymt ad taka inn í myndina ad ég á eftir ad sakna hellings vid DK. Hér kemur smá listi.
- Ulla og Esben
- Sara
- Bekkurinn minn
- Danmarks Journalisthøjskole
- Ódyr matur
- Ódyr bjór
- Hjólamenningin
- Ligeglad stemmningin
- At hygge sig
- Sway
- Riesen
- Brunch á Morgan's
- Schawarma
- Hádegismatur í kaffeteríunni med bekkjarsystrum mínum
- Thunnhærdir danskir menn. Hahahaha.
- Sunnudagssímtølin frá mømmu og pabba. (thad verdur audivtad skrilljón sinnum yndislegra ad fá ad tala vid thau í persónu.)
- Kaare sem byr med mér. Hann er snilld.
- Hjólreidatúrar okkar Sørens úr skólanum.
- H&M.
- Føstudagsbarinn í skólanum.
- Politiken, sérstaklega sunnudagsbladid, frábær bladamennska!

Já, thannig ad thad er bara asskoti sorglegt ad ég sé ad fara heim. Ég held nú samt ad listinn yfir thad sem ég sakna vid Ísland vegi meira í thessu sambandi...

Ég kem heim eftir akkúrat 3 vikur, nánar tiltekid 15. desember. Ég var svo heppin ad Thórhildur bókadi flug heim og vid førum med sømu vél! Thad er nefnilega svo hundleidinlegt ad fljúga ein. Nú getum vid bádar dáid úr spennu á leidinni. Svo verdur líka svo gaman hjá okkur seinustu helgina. Danmørk verdur sko kvødd med stæl og dyfu!

19.11.2003

Margmiðlunarhelvíti

Vá, það er sko nóg að gera í skólanum núna. Við vorum að byrja í margmiðlunarkúrs og erum að læra á protools, imovie, flash og allt heila klabbið. Kúrsinn endar síðan á að við búum til heimasíðu og setjum allt dótið okkar frá Eistlandi inn á hana. Í dag er ég búin að vera að klippa efni sem við tókum daginn sem kosningarnar fóru fram í Eistlandi. Þetta er allt voða spennó og ótrúlega gaman en auðvitað hellings vinna. Kúrsinn er búinn 5. des og ég sé ekki alveg hvernig við eigum að gera þetta allt á svo stuttum tíma. Fyrir vikið verður samt tíminn voða fljótur að líða og áður en ég veit af verð ég komin til Kaupmannahafnar en þangað fer ég 11. des. Svo er það bara home sweet home þann 15. des.

Ulla kemur til mín um helgina. Það verður voða næs. Á laugardaginn förum við í afmæli til Sörens sem er með mér í bekk.

Jæja, ég verð að halda áfram að læra. Gengur ekkert annað.

17.11.2003

Alheimsorkan og Sykurbeib

Haldiði að þetta hafi bara ekki verið yndislegasta helgi sem Kamilla litla hefur átt í langan tíma?! Jú, jú, alveg hreint ljómandi gott. Ég vaknaði eldsnemma á laugardagsmorgni og var ekki enn farin að trúa því að innan fimm tíma myndi ég hitta Hr. Ingiberg og elskulega konu hans, Guðrúnu. Ég hafði pakkað vel og vandlega tæpum 40 kílóum af dóti. Ekki til þess að nýta yfir helgina heldur til að senda mömmu og pabba með það heim til kæra Íslands. Ég burðaðist með þetta allt niður á lestarstöð, með hjálp strætó að vísu og skellti mér um borð í lestina. Las eitt stykki bók á leiðinni, nefnilega The City of Glass eftir Paul Auster. Asskoti góð. Loks komst ég upp á Kastrup og fór út og fyrir frábæra tilviljun rakst ég nánast strax á mömmu og pabba. Vúbbíííí! Það voru sko fagnaðarfundir, skal ég ykkur segja. Faðmlög og gleði, kossar og alsæla! Við hentumst um borð í lest og niður í bæ á hótelið sem ma og pa ætluðu að gista á. Ég tæmdi mínar töskur og fyllti þeirra og svo fengum við okkur pizzu. Ulla og Esben (eða Ebeníser eins og pabbi kýs að kalla hann eftir nokkra bjóra) höfðu boðið okkur í heimsókn þannig að við kíktum á þau í kaffi og með því. Eftir það fórum við í músíkbúð fyrir pabbaling þar sem hann gat seðjað diskahungrið. Á þessum tímapunkti vorum við orðin soldið lúin þannig að við ákváðum að skella okkur á kaffihús. Robert's Coffee varð fyrir valinu enda með eindæmum indæll staður. Við tókum strætó niður á Ráðhústorg og þar voru rosa tónleikar sem einhver ný útvarpstöð var að halda. "Rokkdrottningin" eina sanna, Sanne Salomonsen var þar að trylla lýðinn. Henni tókst þó ekki alveg að trylla okkur þannig að við skildum hana eftir með öskrandi áhorfendaskarann grátbiðjandi um meira. Á Robert's Coffee voru þægilegir stólar, gott kaffi og reggae músík. Stoppuðum þar í væna stund og á leiðinni upp á hótel löbbuðum við fram hjá Ráðhústorginu og haldiði að Sugababes hafi ekki verið að spila. Við hlustum aðeins á þær stöllur áður en leið okkar lá niður á hótel aftur til að klæða okkur í ólettubuxurnar til að geta borðað meira. Næst fórum við nefnilega á Hereford Steakhouse og fengum þar dýrindis steik. Þarna var auðvitað allt morandi í Íslendingum í helgarferð í Kóngsins Köben. Við reyndum bara að leiða þá hjá okkur;-) Eftir matinn hringdum við í Inga Þór og skiptumst á að spjalla við hann, alveg yndislegt. Hef ekki heyrt í honum röddina í svo langan tíma. Þar sem ég hef ekki borðað svona þungan mat í langan tíma var ég mjög þreytt eftir matinn. Við ákváðum bara að kaupa nokkra bjóra og skella okkur upp á hótel. Pabbi kallinn var orðin vel í því og reytti af sér brandarana. Alheimsorkan var rædd í tengslum við borðstofuborðið heima og "rifist" var um svarta glimmermálverkið sem Karen Cross málaði. Þetta var æðislegt! Mér finnst meira að segja besti tími heimsóknarinnar hafa verið þegar við vorum þrjú saman á hótelinu. Enginn utanaðkomandi truflun og quality time með the parental units. Elska ykkur!!!

Eitt fyndið: Þegar ég fór frá mömmu og pabba um kvöldið gáfu þau mér fyrir leigubíl. Mamma fylgdi mér niður og ég ákvað að fá mér sígarettu. Svo kom bíllinn og ég arkaði út með sígarettu í munnvikinu, ferðatösku undir arminu og veskið mitt í hinni hendinni. Þegar ég ætlaði að henda sígarettunni datt hún ekki á jörðina heldur ofan í töskuna mína! Sæjitt. Ég var svo slow vegna þess að ég var með svo mikið af drasli að ég náði ekki að gera neitt strax. Það endaði með því að ég henti ferðatöskunni í mömmu og hvolfdi úr veskinu á götuna. Leigubílstjórinn, indæll gaur frá Sómalíu, horfði á mig og hugsaði örugglega með sér: "Þarna er ein klikk." Að lokum náði ég að drepa sígarettuna áður en hún náði að drepa innihald veskisins míns og ég hélt heim til Ullu. Okkur hafði verið boðið á verðlaunaafhendinguna á kvikmyndahátíðinni sem var að ljúka hér í Kbh og í eitthvað eftirpartý á toppi Illum. Svaka VIP með öllu fræga fólkinu. Það var ekkert smá gaman. Reyndar veit ég ekkert hvort það hafi verið gaman vegna þess að ég steinsofnaði á sófanum hjá Ullu og hún festist yfir einhverri indverskri mynd. Ég ætla samt ekkert að gráta það neitt, kvöldið hefði nefnilega ekki getað orðið fullkomnara!

Í gær hittum við Ulla hana Þórhildi mína á Bang & Jensen í brunch. Það var æðislega ljúft. Sátum og kjöftuðum og átum á okkur gat. Ulla þurfti síðan í skúringardjobbið þannig að við Þórhildur fórum bara á annað kaffihús til að kjafta. Til að toppa helgina hringdi Birta síðan í mig í gærkvöldi.

Það er aldeilis!!!

14.11.2003

Á thessum tíma á morgun verd ég med elsku foreldrum mínum! Vildi bara deila thví med ykkur.
Bæjó

12.11.2003

R.I.P.

Blessuð sé minning úrsins míns. Það datt í gólfið í gær og nú er sprungan sem sást varla orðin að hafi sprungna. Þú þjónaðir mér vel í öll þessi ár og alltaf varstu stílhreint og flott. Passaðir við allt sem ég á og hafðir meira að segja þann hæfileika að líkjast armbandi meira en úri. Í dag ber ég þig enn á hendi mér þrátt fyrir að þú sért nánast í dauðakippunum. Þú gengur samt. Þannig má lýsa þér, gengur með mér í gegnum allt. Nú verð ég samt að fá mér nýtt vegna þess að alltaf þegar ég lít á þig sé ég sprungurnar og hjarta mitt brotnar í þúsund mola.

Ég elska þig, kæra úr.

Þín, Kamilla

11.11.2003

Það er músíkin

Ég veit ekki hvort það séu allir hannaðir svona en skapbrigði mín geta auðveldlega breyst við áheyrn fallegrar tónlistar. Þegar ég er döpur skelli ég til dæmis Stevie Wonder á fóninn og innan skamms er ég næstum farin að dansa, alla vega syngja með. Svo er það líka annað að ég verð alltaf að hlusta rosalega hátt á tónlist til þess að virkilega heyra hana, skiljiði hvert ég er að fara? Þetta er eins og stundum þegar maður er að hlusta á einhvern. Maður heyrir manneskjuna tala en heyrir hana ekki segja neitt. Ég stend sjálfa mig stundum við þetta, hlusta (er samt tæknilega séð ekki að hlusta...) á einhvern en heyri ekkert. Sit bara og jánka en veit ekkert hvað er verið að tala um, bara í mínum eigin heimi. Alla vega... ég veit ekki alveg hvort fólk eigi þá að tala rosalega hátt þegar það talar við mig þannig að ég hlusti. Ég hef nú alltaf verið pínku heyrnardauf. Vá, nú er ég komin langt út fyrir efnið. Ég held að ástæða þess að ég þarf að hlusta svona hátt á músík (fyrir utan það að hún hljómar nú best þegar allt er á fullu blasti) er sú að ég á pabba sem heitir Ingibergur. Nafnið hans er svo sem ekkert mikilvægt í þessu tilliti en hann heitir það samt. Síðan ég man eftir mér hefur pabbi hlustað á tónlist með allt í botni. Svo þegar við Ingi Þór urðum stærri og fengum almennilegar græjur fór þetta að vera hálfgerð keppni. Allir að hlusta á sína tónlist í sínu herbergi og þá vill maður ekkert heyra eitthvað annað en sitt eigið. Þegar ég bjó hjá mömmu og pabba voru græjur í tónlistarherberginu hans pabba, mínu herbergi, Inga Þórs herbergi, stofunni, kjallaranum, bílskúrnum og garðhúsinu. Svo er líka eldgamalt útvarp í eldhúsinu og lítið útvarp í svefnherbergi mömmu og pabba. Sem sagt, hvergi friður... eða svoleiðis. Oft þegar ég kom heim heyrði ég langar leiðir að pabbi var heima vegna þess að tónlistin var á hæsta styrk og ómaði næstum um allt hverfið.

Nú er ég bara ein í herberginu mínu á Lottesvej 3. Ég er nú svo heppin að Laura, stelpan sem ég leigi herbergið af, lánaði mér græjurnar sínar. Þegar ég bjó í sveitinni í Lystrup var ég bara með svona litla tölvuhátalara og ég sagt ykkur það að það var nánast hljóðmengun að reyna að hlusta á tónlist í gegnum svoleiðis drasl. Já, ég er búin að vera að hlusta voða mikið á Rufus Wainwright. Nafnið hans er ekki bara skemmtilegt heldur tónlistin líka. Ég á nú reyndar bara nokkur lög en þau eru öll góð. Ég heyrði fyrst í honum þegar hann söng lag á I am Sam soundtrackinu. Gamalt bítlalag, Across the Universe. Svona líka fínt hjá drengnum. Tónlistin hans er svolítið poppuð en samt ekki svona meginstraums eitthvað, smá svona folk music fílingur. Það er eitthvað svo sérstakt við hana og svo eru textarnir svo góðir. Ég held ég verði bara að kaupa nýja diskinn hans sem heitir Want. Svo skemmir ekki að hann er voða myndarlegur (var ég alveg að skemma trúverðugleika minn sem músíkspekúlant þarna kannski?)

Móðir + faðir koma eftir 4 daga. Víííííí!!!!

10.11.2003

Pulitzerinn á næsta leiti

Við Sara erum snillingar. Við héldum að við yrðum fram á nótt að skrifa greinina en nú er klukkan 2 og við búnar. Og greinin er svona líka asskoti góð!! Ég ætla að setja hana á netið eftir að við fáum feed-back frá kennaranum. Reyndar þarf ég að skrifa eina enn grein en hún á bara að vera um 600 orð þannig að ég rumpa því af í kvöld.

Helgin var frábær. Við sáum Down with love á föstudaginn og fannst hún frábær. Allar hugsanlegar klisjur úr myndum frá 6. áratugnum var troðið þar inn. Búningarnir voru sjúklegir og tónlistin yndisleg. Mig langar í soundtrackið úr þessari mynd. Ætli það fáist?

Laugardagurinn fór aðeins út um þúfur. Við áttum að hitta Frede, gaurinn sem við ætluðum að taka viðtal við en hann hringdi og sagði að hann kæmist ekki til Árósa og spurði hvort við gætum ekki bara komið til Auning í staðinn. Jú, jú, ekkert mál. Nema það að þetta varð hellings mál vegna þess að rúturnar til Auning fara á 4 tíma fresti og rútan sem við héldum að færi kl. 14 fór kl. 13.25. Sæjitt!! Ég hringdi alveg í rusli í Frede en hann er svo góður kall að þetta var ekkert mál. Ég tók síðan bara símaviðtal við hann í morgun þannig að þetta reddaðist allt. Reyndar hefðum við alveg viljað hitta hann en svo fór sem fór.

Eftir að við áttuðum okkur að við hefðum misst af rútunni fórum við beinustu leið á Arthur's sem er svona blaðamennskunema hangout og fengum okkur stóran bjór. Okkur fannst allt vera í klessu og ætluðum bara að drekka okkur fullar og drepa kennarann okkar (!) fyrir að láta okkur skrifa þessa grein. Sem betur fer gerðum við það ekki heldur skelltum okkur bara á djammið um kvöldið. Við fórum í partýið sem var uppi í skóla en það var sko ekki upp á marga fiska þannig að við skelltum okkur bara í bæinn og auðvitað á uppáhalds barinn okkar, nefnilega, Sway. Það sem við vissum ekki var að það var eitthvað homma- og lesbíupartý á Sway það kvöldið. O, boy, o boy! Þegar við komum inn tókum við nú strax eftir svolítið mörgum kvenlegum körlum og svo þegar einhver stelpa kleip í rassinn á mér við barinn föttuðum við þetta. Reyndar föttuðum við ekki neitt. Það var ekki fyrr en nýji besti vinur okkar, Martin, spurði hvað við værum nú eiginlega að gera á gay bar. Við vorum auðvitað bara eitt stórt spurningamerki en þetta var bara þetta eina kvöld. Djöfull var nú gaman. Á milli okkar Martins myndaðist djúp vinátta og hann sagði mér frá því að kærastinn hans til sex ára hefði verið algjör typpakall og svín. Gerði víst ekki annað en að halda fram hjá honum. Ég sagði Martin auðvitað að hann ætti skrilljón sinnum betra skilið og skipaði honum bara að leika sér og gleyma svíninu. Hann ætlaði að reyna.

Þegar klukkan fór að nálgast þrjú þurftu öskubuskurnar Kamilla og Sara auðvitað að drífa sig í átt að eðalvagninum áður en hann breyttist í gult strætóskrímsli á slaginu þrjú. Reyndar var eðalvagninn orðinn að strætó þegar ég fór upp í hann. Allt of mikið af blindfullum unglingum og engin laus sæti. Það er alveg ótrúlega leiðinlegt að vera háð strætó til að komast heim af djamminu. En ég sparaði mér a.m.k. 100 með að kaupa ekki leigubíl. Ég er öll í því núna. Spara, spara, spara. Gleymdi mér reyndar aðeins á föstudaginn og keypti mér gallabuxur (erase that from your mind, mother!) en ég er samt smá sparigrís ennþá. Hef til dæmis smurt mér nesti í skólann í rúman mánuð og það þyngir sko pyngjuna!!

Alla vega, nú hafið þið fengið atburði helgarinnar beint í æð. Until next time!
Telur landnámshænsn hafa nær þurrkast út

Landnámshænsn þurrkuðust að öllum líkindum að mestu út í móðuharðindunum miklu á ofanverðri 18. öld og blönduðust síðan innfluttum hænum á 20. öld. Þetta er kenning Friðriks G. Olgeirssonar sagnfræðings sem ritaði bókina Alifuglinn, saga alifuglaræktar á Íslandi frá landnámi til okkar daga, og gefin var út af Félagi eggjaframleiðenda fyrr á þessu ári.


Mbl.is birti þessa frétt í morgun. Hahahaha.

7.11.2003

Þá er barasta komin helgi aftur

Um daginn var ég að væla út af heimþrá. Í dag finnst mér allt of stuttur tími þangað til ég fer heim. Ekki það að mér finnist ekki yndislegt að ég sé að fara heim. Okkur Söru gengur vel með greinina okkar. Við erum komnar með fullt af efni og þetta er mjög áhugavert. Kannski að ég skelli henni bara á netið þegar hún er tilbúin. Þá getið þið lesið eitthvað ykkur til fróðleiks svona til tilbreytingar;-)

Langflestir úr bekknum okkar eru að fara í ferðalag um helgina. Ferðinni er heitið á Skagen en við Sara ákváðum bara að vera félagsskítar og halda okkur í Árósum. Við erum líka að fara að "see a man about a horse" á morgun. Nei, nei, við erum að fara að taka viðtal við Frede Farmand Rasmussen nokkurn en hann er einn af þeim sem er á svarta listanum sem við erum að skrifa um. Hann virðist mjög áhugaverður maður. Í gær sagði hann við mig í símann: "Þú veist að ég er mjög sérstakur maður." "Uhh, já," sagði ég, "það er einmitt þess vegna sem við viljum tala við." Þetta verður örugglega mjög áhugavert. Hann ætlar meira að segja að koma til Árósa að hitta okkur en hann á heima í Auning sem er klukkutíma í burtu með rútu. Reyndar er hann ekki bara að koma til að hitta okkur heldur líka til að hitta dóttur sína...

Við ætlum bara í bíó í kvöld að sjá Down with love. Held að þetta sé ágætis feel-good-mynd eða það vona ég alla vega. Á morgun er síðan stórt partý uppi í skóla. Það verður svona M*A*S*H* þema og allir eiga að mæta í felulituðum fötum. Þar sem ég á ekki mikið af svoleiðis fatnaði ætla ég bara að mæta sem mitt ofurgellu sjálf. Ekkert að vera að fela það neitt. Ég keypti mér svo fína peysu um daginn og mér finnst þetta kjörið tækifæri til að vígja hana!

Hún Brynja mín er síðan að selja fjaðraskraut í koló á morgun. Endilega kíkið á hana og kaupið ykkur eitthvað fallegt. Ég á eyrnalokka sem hún bjó til handa mér og ég get sko sagt ykkur að þeir eru ekki aðeins sjúklega flottir heldur einnig góð veiðifæri. I call them my lucky earrings;-)

Jæja, my lovelies, núna ætla ég að fara í bæinn. Við Sara ætlum að kíkja örstutt í búðirnar...

Eigið yndislega helgi, fögru lesendur!!

6.11.2003

Go Brynja, go Brynja, go!!!

Brynja, hotshot vinkona mín á þingi hefur talað. Æ, náði ekki alveg að tengja inn á fréttina en titillinn er Smokkanotkun ungs fólks könnuð... Brynja er varaþingmaður Samfylkingarinnar í suðurkjördæmi og er snillingur í þokkabót. Tími til kominn að einhver hugsi út í fáránlega hátt verð á smokkum!!!
Lítill prins og tíunda þúsundið

Helga og Frikki eignuðust lítinn strák í fyrrinótt. Til hamingju, elskurnar!!!! Ég hlakka til að sjá ykkur öll þegar ég kem heim en það eru bara 39 dagar í það. Vá, hvað er stutt þangað til!

Nú fara gestir blibbsins að nálgast tíunda þúsundið. Gestur nr. 10.000 hlýtur þann frábæra titil að vera gestur nr. 10.000!

Nú verð ég að læra. Við þurfum að skrifa stóra grein fyrir þriðjudaginn og við erum ekki enn farnar að taka viðtöl. Wish me luck!

5.11.2003

Smá réttlæti og hellings óréttlæti

Vá, gott að Varnarliðið hefur dregið aftur fjöldauppsagnirnar enda var þetta alveg út í hróa. Nú ertu ekki atvinnulaus lengur, Hlynur minn og ferð ekki í jólaköttinn.

Við Sara erum að skrifa grein um rasisma í Danmörku. Við erum að skoða svokallaða svarta lista samtaka sem eru á móti innflytjendum. Margir þessir listar eru á netinu og á þeim er fólk sem er "of vinalegt" í garð innflytjenda. Það er með ólíkindum hvað er mikið um fordóma hér. Hægrisinnuð ríkisstjórn sem er alveg að flippa með að gera lög sem gera innflytjendum ekki kleift að gifast fólki frá sínu heimalandi. Í gær var grein í Politiken um nasíska útvarpsstöð sem fær styrki frá ríkinu fyrir starfseminni. Nasismi er nefnilega ekki ólöglegur hér í Danmörku. Listarnir sem við höfum verið að skoða innihalda myndir og oft heimilisföng. Þetta er alveg rosalegt. Við erum að fara að vinna á fullu í þessu á morgun. Finna fólk til að taka viðtal við og svoleiðis. Við ætlum að reyna að tala við einhvern sem er á svarta listanum sem við skoðuðum og svo jafnvel við lögguna og einhvern sálfræðing um afleiðingar svona lista, bæði fyrir fólkið á honum og þá sem lesa hann og eru þjóðernissinnar.

Vá, nú ætla ég heim. Við Sara bökuðum brownies í gær og ég á enn afgang. Yahoo!!!!

4.11.2003

Jesus loves you

Ég var ad muna eftir thví hvad strætóferdin heim til Halldóru á laugardaginn var skrítin. Í strætó númer 15 voru stelpur vid hlidina á mér aad tala um Gud og Jesú og trúnna. Hvad thad væri nú mikilvægt ad fylgja bodordunum og lemja ekki nágranna sinn (thetta dæmi tók hún!). Líka ad madur ætti alltaf ad taka upp biblíuna til leidsagnar 0thegar madur væri í vafa í hvorn fótinn madur ætti ad stíga. Thessar stelpur voru sem sagt mjøg trúadar og ég hleradi samtal theirra alla strætóferdina. Svo fór ég út úr strætó hjá lestarstødinni til ad geta tekid strætó nr. 9 heim til Halldóru. Ég gekk í makindum mínum ad umferdaljósinu og stoppadi. Thar komu upp ad mér tveir trúbodar og réttu mér bækling um Jesú. Ég afthakkadi pent og thá søgdu their: "Jesus loves you!" Ég svaradi: "I know. I love him too," og gekk mína leid. Ég veit ekki alveg hvad thetta átti allt ad thyda, hvort thetta hafi verid skrítin tilviljun eda smá skúbb ad ofan. Ég hef nú ekki farid í kirkju sídan Lilja frænka mín gifti sig og thar á undan var thad líklegast thegar ég fermdist. Alla vega, mitt point er ad ég er trúud en ég idka mína trú bara á annan hátt en fólkid sem ég hitti á laugardaginn. Ég trúi thví ad amma, afi og Lolli frændi séu ad passa mig ofan frá og ef ég trydi ekki á Gud og Jesú trydi ég væntanlega ekki á himnaríki. Samt myndi ég segja ad ég grípi til trúarinnar thegar eitthvad bjátar á. Ég hugsa ekkert um Gud eda Jesú thegar allt er í lukkunnar velstandi. Thá tharf ég ekki á theim á halda. Minni trú má sem sagt lysa sem tækifærissinnadri. Ekki er thad nú gód nidurstada... en hreinskilin none the less.

Nú tharf ég ad fara út á spítala og finna hjúkrunarfræding. Ég á nefnilega ad skrifa prófæl um hjúkku. Thar sem ég thekki ekki neina hér í Árósum verd ég bara ad finna hana á spítalanum. Vona ad einhver hafi tíma til ad tala vid mig. Er thetta ekki mjøg upptekin starfsstétt?

3.11.2003

Ég er dottin í lukkupottinn!

Haldidi ad yndislegir foreldrar mínir hafi ekki hringt í gær og sagt mér ad thau ætli ad koma til Køben 15. nóvember!! Thetta er ekki alveg 100% øruggt ennthá en miklar líkur á thví. Er ég ekki heppin? Vid ætlum thá ad eyda einum sólarhring eda svo saman. Borda gódan mat og kjafta. Ég hringdi í Ullu og hún er ekkert smá spennt enda hefur hún bara hitt pabba einu sinni og thad voru litlar 5 mínútur. Djøfull yrdi thetta geggjad. Vííííííííí!!!!!

Helgin var gód. Vid fórum í pumpkin carving party hjá Art bekkjarbródur mínum og svo nidur í bæ. Thar fórum vid á uppáhaldsbarinn okkar sem heitir Sway og høfdum thad gott. Klukkan thrjú neyddist ég til ad taka sídasta næturstrætó heim annars hefdi ég thurft ad borga 100 kr. í leigubíl heim, ekki gott. Í strætó hitti ég Pedro nágranna minn sem er frá Portúgal og vid vorum ekki alveg tilbúin ad fara heim. Ég hafdi frétt af hrekkjavøkupartyi á kolleginu okkar í byggingu nr. 19 en vid búum í nr. 3. Vid skelltum okkur thangad og fórum ekki ad sofa fyrr en kl. 5.30, alveg búin á thví.

Vid Halldóra erum búnar ad stofna kjúklingaklúbb og erum einu medlimirnir (umsóknir um adild fást á kjuklingaklubbur.is gegn vægu verdi. Skilyrdin eru ad kunna a.m.k. fimm kjúlla uppskriftir, hafa sjúklegt appearance og vera singúl). Klúbburinn gengur út á thad ad elda kjúkling fyrir hvor adra. Vid høfum nú thegar prófad kjúklinga fajitas og á laugardaginn baud Halldóra mér í kjúklingabringur fylltar med grádaosti (slef!!). Næst á dagskrá er rósmarín-sítrónukjúklingur. Vid ákvádum líka ad medlimir kjúklingaklúbbsins skuli binda enda á einsamalt líf sitt og erum thvi á høttunum eftir kærustum, enda erum vid ordnar fullordnar og kannski svolítid einmana líka. Thar sem vid erum sjúklegar ætti thetta ekki ad verda neitt vandamál!

Pløtusnúdaferill minn virdist einungis vera á uppleid. Eftir vel heppnad kvøld á føstudagsbarnum hefur gódur ordstír minn ferdast, reyndar bara innan bekkjarins en thó. Føstudagsbarinn thann 14. nóvember verdur nefnilega althjódlegur og ég á ad vera pløtusnúdur. Ég get kannski breytt nafninu mínu úr dj kam í dj international kam. Já, svona er thetta, krakkar mínir, eintómar vinsældir íslenska skiptinemans frá Keflavík, mekku rokksins!