Bara ad lata vita ad eg er komin til Kbh, allt gekk vel. Ibudin er aedi og hverfid mitt sømuleidis. Er ad leyfa Ullu og Esben ad hlusta a Tokyo Megaplex og thau eru alveg ad fila thetta. Nenni ekki ad blibba meira i bili. Meira bradum, er nebbla med internettengingu hjemme...
I love it, baby!!!!
30.4.2003
29.4.2003
Eitt sem ég á eftir að gera...
Þrátt fyrir að hafa klárað skólann 14. apríl á ég enn eftir að gera eitt verkefni í ljósvakamiðlun. Þetta er svo lítið og tilgangslaust verkefni að ég kem mér ekki til að gera það... búin að vera í tvær vikur á leiðinni að byrja á því en ekkert gerist... er að spá í að gera það ekki núna... hef til 5. maí, best að gera þetta, eins og allt, á seinustu stundu (reyndar er þetta lygi. Ég er ofurskipulögð, svo mikið að ein sagði það jaðra við einhverfu(!))...
Lét gera við hjólið mitt (Inga Þórs) fyrir 8500 kr. og er samt ansi hrædd um að því verði stolið í Kbh. Þetta er of mikill fákur. Hefði helst átt að vera á gömlu hálfónýtu hjóli, þá fyrst hefði ég getað verið áhyggjulaus. Best að krossa bara fingur og tær og hope for the best... Fór m.a.s. með það upp í flugstöð Leibba Eiríks áðan (kemst ekki fyrir í bílnum í fyrramálið (nótt)) og læsti því þar. Kannski að því verði bara stolið þar... Nei, hættu nú Milla Pessimistic woman...
Ég fékk fína pakka í gær, svona kveðju-afmælis-something. Ég fékk minnsta spilastokk sem ég hef augum litið, little miss perfect sólblóma-kit til að ég geti ræktað mitt eigið sólblóm í DK, lítinn drykk sem ég held að sé afréttari, eyrnalokka til að veiða með, póstkort til að setja myndir á og disk með... Æ, ég get ekki sagt það. Í fyrsta lagi vegna þess að faðir minn myndi afneita mér og í öðru lagi vegna þess að hann á bara að vera leyndarmál fyrir Kamillu og nokkra Sleikrestinga (eða ekki!).
Well, ég er þreytt og svei mér þá ef það er ekki táfýla af mér. Best að gera eitthvað í þessu... fá sér appelsín og kannski eina siggu:-)

I'm leaving the country
Jæja, þá er loks að koma að því. Kamilla á leið til Danaveldis með allt of mikinn farangur. I don't know the meaning of travelling light:-/ Sat í íbúðinni minni áðan og fattaði að þar mun ég ekki sitja aftur fyrr en einhvern tímann í desember. Keyrði bíl og áttaði mig á að ég mun ekki gera það fyrr en seint og síðar meir. En það er allt ljúft!
Fór til tannsa áðan og lét laga á mér kjaftinn fyrir 12.000 kr. Mamma borgaði þó brúsann. Takk, elsku mamma (og pabbi auðvitað).
Þetta leggst bara voða vel í mig. Finnst samt soldið skrítið að fara frá góða veðrinu á Íslandi en það hlýtur að bíða mín eitthvað betra þar ytra...
Ég ætla að vera dugleg að blibba úti um ævintýralegt líferni mitt þannig að ekki hætta að lesa.
Nú verð ég samt að klára allt sem klára þarf.
Þangað til næst... Over and out!

24.4.2003
Sundsmokkar
Ég verð að segja hér svolitla sögu sem mér skilst að sé sönn og hafi átt sér stað fyrir fáum vikum í stórum kaupstað við langan fjörð á miðju Norðurlandi. Svo bar til að maður nokkur kom að bílalúgu. Stúlkan sem var þar við afgreiðslu spyr hvað megi gera fyrir hann. "Áttu sundsmokka?" segir maðurinn. Hún jánkar því, fer og leitar, en
finnur ekki neina sérstaka sundsmokka, spyr starfssystur sína, sem er ekki viss, en bendir henni á að taka bara smokkakassann og láta manninn velja, hann þekki þetta sjálfsagt betur. Stúlkan tekur smokkakassann, opnar lúguna og réttir manninum og spyr hann hvort vilji eitthvað af þessu. "Hvað ertu að meina? spyr maðurinn forviða. "Nú, varstu ekki að spyrja um sundsmokka?" segir stúlkan. "Ég var að biðja um Sunnudagsmoggann!" sagði maðurinn þá.
Stundum tala Íslendingar of hratt.
Soldið fyndið. Fékk þetta sent frá Mörtu brandarakellingu;-)

23.4.2003
Ég keypti mér nýja diskinn með White Stripes um daginn. Bloody marvee I must say. Hann er svo hrár að það er æði. Pabbi sagði einmitt að á meðan svona hljómsveitir nytu hylli almennings (ekki alveg kannski) þá væri sko ástæða fyrir Hippa í handbremsu (hljómsveitin hans pabba) að halda áfram að æfa og búa til tónlist. Ég fékk einmitt að heyra nokkur lög sem þeir tóku upp í stúdíóinu hans pabba, stúdíó Lubba Peace. Logoið er einmitt brosandi peace merki með hárlubba, mjög flott:-) Alla vega, Hippar í handbremsu eru hrá hljómsveit. Ein lína í texta frá þeim hljómar svona: Glory to the army of demolition... eitthvað meira, man ekki, algjör snilld samt.
Svo fékk ég disk í afmælisgjöf með hljómsveit sem heitir Paris. Þetta er sænsk grúppa og það er svona Blondie, stelpurokksfílingur yfir þessu öllu saman, mjög skemmtilegt.
Nú er ég að hlusta á Nights in white satin með The Moody Blues sem er án efa eitt besta lag allra tíma eða það finnst mér alla vega...
Jæja, þetta var tónlistarhorn dagsins:-)

Ég er ofurkvendi
Ég þreif alla gluggana að utan áðan. Soldið erfitt þar sem þeir eru frekar hátt uppi. Það hafðist þó. Nú sé ég eitthvað út. Núna var ég að klára að bera sílilkon á fugusementið á milli flísanna í sturtunni. Þetta er víst voða sniðugt. Mér er reyndar hálf bumbult eftir þetta, lyktin er svo sterk. Eiginlega bara stónd. Eitthvað afbrigði af þessu eru sumar konur með í brjóstunum sínum, aldrei mun ég skilja það... Minnir mig á ritgerð sem ég skrifaði á fyrsta árinu mínu í mannfræði. Hún fjallaði um sjálfsmynd klæðskiptinga í Sao Paulo í Brasilíu. Þeir vildu allir halda typpunum en fylltu sig af sílikoni til að líta kvenlegri út. Þetta var ekkert venjulegt sílikon heldur iðnaðarsílikon eins og notað er í mælaborð í bílum. Mælieingarnar voru glös og svo var þessu sprautað inn, ekki í neinum pokum. Ímyndið ykkur eitrið. Svo var alltaf hætta á að sílikonið læki niður. Sumir voru hreinlega með brjóstin á maganum eða rassinn á hælunum:-/ Smá fróðleiksmoli:-)
Afmælisdagurinn var ljúfur. Mutti und Vati komu að hitta stelpuna sína í Rvk. Við elduðum góðan mat og borðuðum yfir okkur (sem er reyndar alveg í stíl við páskana mína. Lykilorð: ofát.). Svo fórum ég, Anna og Sigrún Dögg á Ölstofuna og drukkum rauðvín. Rún kom síðan og hitti okkur. Mjög gaman.
Í gær fann ég ekki kreditkortið mitt og fékk vægt nervasjokk (færeyska...). Snéri öllu á hvolf heima en fann ekki kortið. Áttaði mig síðan á því að ég hefði týnt því á sunnudagsnóttina (!) og fékk enn stærra sjokk. Fór nefnilega á ekki svo skemmtilegt ball í Stapa á páskadag og til að bæta gráu ofan á svart var ég búin að týna kortinu mínu. Svo fór ég að kortleggja í huganum gjörðir mínar er tengdust kortinu áður en það týndist og dró þá ályktun að það hlyti að vera í bílnum hjá pabba hennar Sigrúnar. Og viti menn! Kamilla spæjó (sem er reyndar það klár að hún týnir kortinu sínu og fattar það 2 dögum seinna...) hafði rétt fyrir sér. Þarna skall hurð nærri hælum.
Clueless er í imbanum í kvöld. Það verður annar hvor öfginn hjá mér í kvöld: límd fyrir framan sjónvarpið eða að gera gloríur í bænum í kvöld. Hvort ætli verði fyrir valinu?????

20.4.2003
Gleðilega páska. Ég er nú ekki það mikið fyrir páskaegg en soldið hrifin af málsháttunum þannig að ég fékk svona dvergaegg. Ég borða yfirleitt bara nammið innan úr egginu og læt svo aðra um súkkulaðið. Málshátturinn þessa páska er: Margur heldur mig sig. Mér finnst hann nú frekar mikið prump. Pabbi sagði að þetta væri bara bull. Ég er að spá í að fá mér bara annað svona dvergaegg og reyna aftur. Kannski fæ ég eitthvað betra.
Föstudagskvöldið var snilld. Partýið heppnaðist rosa vel. Sumir komu ekki. Skamm! Þið vitið hver þið eruð! Við vorum heima til svona 01.30 og þá lá leiðin á Þjóðleikhúskjallarann á Gullfoss og Geysi. Mjög gaman þar. Kíktum síðan á Kaffibarinn. Þar var KGB að spila. Þessi drengur mætti nú alveg spila oftar á Kaffibarnum, svoddan snilld er hann. Við kíktum líka aðeins á Ölstofuna og Vegamót. Svo ætluðum við (Ég, Sigrún Dögg og Hannes Óli) að fara á Hverfisbarinn (veit ekki alveg af hverju) en dyravörðurinn vildi ekki hleypa okkur inn á nóinu. Ég brást heldur illa við og við skulum bara segja að ég sé líklega í ævilöngu banni á Hverfisbarnum. Ég mun nú seint gráta það en róninn er hvort eð er að fara til útlanda þannig að Hverfisbarinn getur bara átt sig.
Í þynnkunni á laugardeginum sóttum ég og Sigrún Önnu í vinnunna og héldum á Makkarann. Ég var svo mygluð að ég gat varla labbað. Þegar ég stend við afgreiðsluborðið hringir síminn og það er Lalli bróðir. "Hæ, Lalli minn." "Hæ, veistu ekki að það er óhollt að borða á McDonald's?" Þið hefðuð átt að sjá viðbrögðin hjá. Ég breyttist hreinlega úr uppvakningi í eróbikkadrenalínfíkil. Kipptist til og leit í allar áttir. Þá sátu Lalli og Amal við eitt borðið og upphugsuðu þetta fína djók þegar þau horfðu á Kamillu litlu staulast inn á Makkarann.
Íbúðin mín var ruslahaugur þegar ég vaknaði á laugardaginn. Ég var örugglega í hálftíma að vaska upp og öll glösin mín voru óhrein. Svo ryksugaði ég og skúraði drulluna. Nú er alla vega fínt í höllinni. Svo var íbúðin mín ekki bara ruslahaugur heldur líkami minn líka. Ég hef aldrei kynnst slagsmálum en get ímyndað mér hvernig fólki líður daginn eftir duglega hnefaútreið.
Var að kenna pabba á msn. Ingi Þór, ef þú sérð þetta þá verður þú að fá þér msn líka. Þá getum við öll spjallað saman, ég, þú, pabbi og mamma. Pabbi er líka farinn að pikka heil sex orð á mínútu þannig að þetta er allt að koma:-)

18.4.2003
Það bergmálar í stofunni minni. Allt fína pilleríið komið í kassa og stutt í brottför. Ég ætla að halda afmælis- og kveðjupartý í kvöld fyrir nánustu kallana og kellurnar mínar. Þetta verður kannski bara að vera svona standandi partý, á ekki nógu marga stóla. Þetta reddast.
Fór í fermingarveislu í gær hjá Elvari Erni frænda mínum. Borðaði svo mikið að ég er eiginlega ennþá södd. Fór líka aðeins á djammið á miðvikudaginn með píunum í hagnýtri fjölmiðlun. Það var greinilega fullt tungl vegna þess að við lentum í bölvuðum skít. Sátum á Ölstofunni, ég, Anna og Freyja og einhver gaur labbar framhjá Önnu og hvíslar að henni að hún sé sætasta stelpan þar inni (frekar leim pikk öpp lína en Anna er samt voða sæt.). Hún pælir ekki mikið í honum og honum gremst það greinilega, endar með því að hann kallar hana snobbaða og gáfaða (hljómaði sem móðgun frá honum!) fyrir það eitt að verða ekki uppi með sér eftir þetta svaka hrós(!). Við bjuggum til kenningu um að drengurinn hreinlega þjáðist af lélegri sjálfsmynd og þyrfti að úthúða öðrum til að upphefja sjálfan sig. Svo ákváðum við bara að fara og þá flippar gaurinn. Öskrar á eftir Önnu: "Farðu bara með þessum hálfvitum." Þá varð ég ekkert allt of ánægð og sagði (þetta var reyndar meira öskur): "Fyrirgefðu! Þú ert að segja henni að fara með hálfvitum. Ertu að segja að ég sé hálfviti?" Nei, segir hann og fer eitthvað að öskra. Er svo nálægt mér að hann frussar framan í mig. Það var auðvitað fullt af fólki þarna inni og allir fóru að fylgjast með þessari sápu. Við stelpurnar fengum af og til svona áfram-stelpur-klapp-á-bakið. Málið er að við hefðum alveg getað jarðað þennan mann í rifrildi en hann bullaði bara tóma steypu. Sagði bara hluti sem voru út í hött þannig að maður varð eiginlega bara orðlaus. Að lokum fórum við bara út og gaurinn varð eftir inni öskrandi úr sér lungun. Þessi sena náði sem sagt að skemma kvöldið fyrir mér þannig að ég fór bara heim. There's a lot of wackos out there... (tilvísun í Bowling for Columbine. Sjáið hana!!)
Jæja, gleðilega páska, ljúfurnar. Skemmtið ykkur fallega og njótið lífsins. Borðið páskaegg, alla vega þið sem finnst þau góð (ég er reyndar ekki ein af þeim).

16.4.2003
Ég opnaði frystikistuna hennar mömmu áðan. Endalaust af flatkökum, hangikjöti, pylsum og pylsubrauði. Þannig er mál með vexti að hún og pabbi ætluðu auðvitað til N.Y.C. og keyptu þ.a.l. helling af íslensku góðgæti til að gefa íslensku vinafólki þeirra úti. Svo hættu þau við New York og fóru í staðinn til friðsælu Kaupmannahafnar þannig að mamma sat uppi með ársbirgðir af hangikjöti og solleis. Nú ætla ég að smakka, neibb, best að leyfa þessu að þiðna fyrst...
Ég fór á æfingu á Öfugum megin uppí í Borgarleikhúsinu. Þetta er farsi og ég var búin að gleyma því hversu heitt ég hata farsa. Þetta var algjör pína. Ég get bara ekki haft gaman af svona vitleysu þar sem fólk er alltaf að fara á mis við hvort annað, labba á hurðir og segja brandara sem hafa verið notaðir einum of oft. Á tímabili hélt ég að ég gæti þetta barasta ekki lengur, langaði að standa upp og öskra: Djöfull er þetta ömurlegt. Það eina sem hélt mér í sætinu var Eggert Þorleifsson. Hann er svooo fyndinn. Hann náði að krydda aðeins upp á annars mjög svo leiðinlegt leikrit. Ég er alla vega búin að lofa sjálfri mér að fara aldrei á farsa aftur en held ég hafi lofað sjálfri mér því sama þegar ég sá Sex í sveit. Maður er of fljótur að gleyma... Til að trappa mig niður eftir þennan pirring fórum við á Ölstofuna og fengum okkur einn kaldan, svo er ég líka að hita upp fyrir Köben en í dag eru 2 vikur þangað til ég fer... sæjitt!
Núna er ég stödd í Keflavíkinni góðu. Fór í klippingu og ætla í andlitsbað á eftir, sannkallað dekur. Veit reyndar ekki alveg hvað ég á af mér að gera. Sit ein heima hjá mor og far og bora í nefið...

15.4.2003
Ég ákvað að pakka niður einhverju af búslóðinni minni í gær. Þegar ég var búin að fylla tvo kassa af bókum og stofustássi rann það allt í einu upp fyrir mér að ég mun ekki vera á Íslandi út árið. Ég var einhvern veginn ekki alveg búin að átta mig fullkomnlega á því fyrr en þá. Soldið skrýtin tilfinning fyrir skipulagsfrík eins og mig að vera að henda sér svona út í óvissuna. Ég held að ég hafi samt meira en gott af því. Ein stelpa sem er með mér í hagnýtri var að benda mér á salatverksmiðju í Köben. Kannski að ég tékki á því, þá get ég alla vega bætt inn á cv-ið mitt framleiðslustarfi. Merkilegt hvað allir líta vel út á pappír. Það er í raun hægt að láta ómerkilegasta starf betur út. Salatverksmiðja=framleiðslustarf. Reyndar dettur mér ekkert meira í hug...
Ég fór aftur í dinner til Mörtu í gærkvöldi. Í takt við góða veðrið grilluðum við. Ljúft. Ég horfði á The importance of being Earnest á sunnudaginn. Mikið rosalega er þetta leiðinleg mynd. Það á greinilega að vera svona öðruvísi stíll á henni en hún er í raun bara hallærisleg og misheppnuð. Sem betur fer tók ég tékknesku myndina Kolya með þannig að það var ekki öll von úti þegar hin myndin floppaði í tækinu mínu. Mér finnst að maður eigi endrum og eins að taka gullmola eins og þennan sem maður hefur ekki séð í mörg ár. Ég var búin að gleyma hvað þetta er yndisleg mynd. Mæli með henni við þá sem eru svo óheppnir að hafa ekki séð hana. Reyndar get ég hreinlega sagst öfunda þá sem eiga eftir að njóta hennar;-)
Ég er alveg að treina það að byrja á verkefni sem ég á að skila í dag. Þetta er verkefni í fjölmiðlarétti og rosalega erfitt að koma sér í þennan gír. Nú er ég búin að hanga í klukkutíma á netinu og verð hreinlega að byrja á þessu...

14.4.2003
Ég var að koma úr munnlegu prófi í meðferð talaðs máls. Gekk svona svaka vel. Nú á ég bara eftir að gera tvö verkefni og þá no more school.
Kolaportið gekk nokkuð vel. Hefði samt viljað sjá fleiri vini mína þar!!!! Reyndar komu soldið margir. Vala B. mætti fyrst og keypti gasalega smart bol. Gugga keypti fullan poka af fötum og sömuleiðis Smári, bróðir hennar Öldu. Í enda dagsins kostaði allt 100 kr. hjá okkur. Þá flugu flíkurnar út. Samt sátum við uppi með 5 ruslapoka fulla af dóti sem við ætlum bara að gefa Rauða Krossinum. Fyrst að reyna að græða, svo gera góðverk:-)
Um kvöldið fór ég í matarboð til Mörtu. Marta, þetta var æði!!!! Svo djömmuðum við fram á nótt. Ég var svo búin eftir þennan sólarhring að ég svaf til kl. 5 í gærdag!! Ég er að breytast í Inga Þór. Svo var það bara spóla og haugur af nammi hjá mér og Sigrúnu. Guð, ég er enn mygluð. Verð að gera eitthvað. Ble...

11.4.2003
Það er kominn föstudagur. Sólin skín og lífið er ljúft. Seinasti skóladagur sem er auðvitað nokkuð ljúft líka. Ég á reyndar eftir að skila tveimur verkefnum og fara í eitt próf en það er bara munnlegt próf. Ég á fara með undirbúna ræðu og undirbúið ljóð og líka fréttatexta og annað ljóð. Ég býst við því að verða búin að massa þetta á þriðjudaginn. Þá verð ég frjáls og get farið að undirbúa för mína utan en í dag eru 19 dagar þangað til ég fer. Choo choo!!!
Ég er sjálfumglaður meistarakokkur. Maturinn í gær sló í gegn, algjör snilld. Ég leigist í veislur og rómantískan dinner gegn vægu verði og töfra fram dýrindis máltðíðir. Þið verðið ekki söm eftir heimsókn Kamillu Maestrokuch....

10.4.2003
Nokkuð góður kvenrembubrandari, hef alltaf gaman af þeim...
Once upon a time, there was a female brain cell which, by mistake, happened to end up in a man's head. She looked around nervously, but it was all empty and quiet. "Hello?" she cried... but no answer. "Is there anyone here?" she cried a little louder, but still no answer....
Now the female brain cell started to feel alone and scared and yelled, "HELLO, IS THERE ANYONE HERE?" Then she heard a voice from far, far away...
"Hello - we're all down here...."

Djöfull var That 70's Show ógeðslega fyndinn í gær. Besti þátturinn hingað til. Svona söngleikjastíll yfir þessu og Fez var aðalmaðurinn. Alveg hreint óborganlegt.
Ég er að bjóða Himu og Jóni Birni í mat í kvöld. Rósmarín sítrónukjúklingur í boði. Mjög ljúffengt. Þau eru búin að bjóða mér svo oft í mat að mér finnst ég skuldbundin að bjóða þeim í mat. Svo eru þau líka svo skemmtileg;-)
Hey, getiði hvað! Kamilla er að hlusta á Will Oldham núna. Reyndar er þetta bara fyrsta spilun í dag...
Ég hef voða lítið að segja núna. Er reyndar nokkuð ánægð með nýja teljarann minn. Rúmar 80 heimsóknir á innan við sólarhring. Er það ekki bara nokkuð gott??
Það er lokadajmm í hagnýtri fjölmiðlun á morgun. Vegmót, keila, Shalimar og partý. Ég er að spá í að vera félagsskítur og fara mjög snemma heim. Ég nenni ekki að vera mygluð í Koló. Það er örugglega EKKI skemmtilegt. Ég man þegar ég var að selja restina af útsöluvörunum úr Mangó eina helgina í Koló. Lengi á eftir fannst mér alltaf vera Kolaportslykt af mér. Ekki var það nú skárra þegar ég var að selja harðfisk og lax og svoleiðis með afa hennar Erlu. Þá smellaði maður big time. En ég er tilbúin að láta mig hafa þetta einn laugardag. Sérstaklega ef ég sé fram á að fá einhverja monninga út úr þessu. Ekki slæmt fyrir fátækan stúdent sem er að fara til Danmerkur!
Seinasti skóladagur á morgun. Mér finnst samt eins og ég hafi byrjað í skólanum í síðasta mánuði. Time sure flies when you're having fun...:-/
...Love me the way I love you... Fallegur texti hjá honum Will Oldham. Tökum hann öll til fyrirmyndar. Bletz!

9.4.2003
Jæja, sex mánuðum eftir að ég byrjaði að blibba er ég komin með teljara... Frekar mikið svekkelsi að drulla þessu upp svona seint en ég auðvitað forvitin stúlka og langar með eindæmum og fylgjast með umferðinni á blibbinu mína. Nú verð ég bara að fara inn á síðuna mína villt og galið...
Ég verð að uppljóstra því hér og nú að ég elska Will Oldham. Maðurinn er einfaldlega snillingur og nýjasti gripurinn hans meistaraverk. Þvílíkt ljúfsárir textar og konan sem syngur bakrödd hjá honum er með dáleiðandi rödd. Ég get hlustað á diskinn aftur og aftur. Pabba finnst soldið skrýtið að ég geti hlustað á suma diska á repeat í spilaranum mínum en þetta er víst eitthvað sem ég fæ frá mömmu. Frá pabba fæ ég aftur á móti þann galla að muna aldrei hvað Tom Waits heitir. Ég var í svona fimm mínútur að muna hvað hann heitir núna. Um daginn var ég í bíl með mömmu og pabba og fer eitthvað að tala um hann og mundi auðvitað ekki hvað hann heitir. Pabbi sagði hissa: "Ég man heldur aldrei hvað hann heitir." (Og pabbi sem er algjört tónlistargúrú í orðsins fyllstu). Þetta er alveg fáránlegt. Hver man ekki nafnið á Tom Waits?! Nafnið hans dettur bara alltaf út úr hausnum á okkur feðginunum. Um daginn fékk ég far hjá Guðlaugu frænku minni og kærastanum hennar úr fermingarveislu og var þá aftur að tala um Tom Waits. Og viti menn! Ég mundi auðvitað ekki hvað manngreyið heitir. Ég sá hann alveg fyrir mér og heyrði hann syngja í huganum en gat ómögulega munað nafnið hans. Þetta er bara eitthvað mental block, alveg furðulegt. Hvernig ætli standi á þessu??? Ég byrjaði að reyna að syngja eins og hann syngur (hljómaði ekki allt of vel hjá mér:-/) og þau kveiktu strax á því og horfðu undrunaraugum á mig yfir að muna ekki nafnið. Svona er heilinn í manni skrýtinn!
Jæja, ég ætla að fara í heilaleikfimi með því að glápa á imbann. Hahaha...

Sjáiði hvað hann Daníel frændi minn var að senda mér. Ég er alveg týpan í svona dagatöl. Miss April... hahaha. Hann er líka með svaka flotta heimasíðu, drengurinn, aðeins 16 ára gamall. Ekki það að aldur sé mælikvarði á góðar heimasíður. Ég er nú 23 ára gömul og á án efa ljótustu heimasíðu í heimi. Ekki segja neinum samt;-)
Gugga og Petra komu til mín í gærkvöldi og við borðuðum grillaðan kjúlíus úr Melabúðinni. Mjög ljúft. Gláptum síðan á imbann og gerðum ekki neitt...
Lífsspá næstu daga: Tíðindalaust fram eftir viku. Þó mun færast líf í tuskurnar er nálgast helgi. Þá kemur helgarpúkinn og tekur öll völd, aldrei þessu vant. Föstudagurinn mun að öllum líkindum verða rólegur. Hápunktar verða líklega þvottavélin og þurrkherbergið. Laugardagurinn mun verða helgaður Kolaportinu, lífsbjörg fátæka námsmannsins og laugardagskvöldið ber í skauti sér matarboð á hæstu hæðum í Kópavogi.

8.4.2003
Ég fór á forsýningu á Bowling for Columbine í gærkvöldi í boði lifandi.is. Þetta er alveg rosaleg mynd. Ekki skrýtið að maðurinn hafi fengið óskarinn. Ótrúlega vel gerð mynd. Snörp þjóðfélagsádeila án þess þó að snúast upp í vitleysu og leiðindi. Hann gerir þetta svo vel. Nær líka að koma ótrúlega miklum upplýsingum í þessa mynd og þetta kemst allt til skila. Mig langar liggur við að sjá hana aftur í kvöld. Þetta er auðvitað mjög óhugnalegur raunveruleiki. Fólk er nánast skilyrt til að hræðast og þó svo að glæpatíðni hafi lækkað í BNA hafa vopnakaup hækkað gífurlega. 6 ára börn farin að skjóta hvort annað og ég veit ekki hvað og hvað. Þið verðið að sjá þessa mynd. Ekki spurning.
Ég tók fyrstu skrefin í að pakka niður búslóðinni minni í gær. Þetta er svo mikið dót að það er eins og gott að byrja sem fyrst. Ég valdi músík til að taka með mér. Ég ákvað að gera það sem fyrst vegna þess að ég vissi hversu erfið ákvörðun það yrði. Ég gat valið 36 diska og það tók rúma þrjá tíma. Endaði með því að ég átti tvö laus pláss eftir. Þá tók ég mig bara til og skrifaði bestu lögin af hinum ýmsu diskum á tvo diska. Otis Redding, Bill Withers, Stevie Wonder, Sly and the Family Stone og fleiri góðir á einn og svo Yo la tengo, Red House Painters, Cowboy Junkies og solleis á hinn. Rosa sniðug stúlka. Nú er ég búin að taka fram öll 30 skópörin mín (þetta er ekkert grín!!) og ætla að pakka bróðurpartinum af þeim niður. Það verður svona fimm tíma verk;-)
Ég er að spá í að fara ekkert út úr húsi í dag. Nenni ekki að gera veðurguðunum, þeim óákveðnu aulum, það til geðs að fara út í þetta veður. Ég las um daginn að apríl sé kallaður mánuður vonbrigðanna hvað veðurfar varðar og er ég nokkuð sammála því. Samt er sumardagurinn fyrsti í apríl, hvaða grín er það?! Svo er líka afmælisdagurinn minn í apríl. Vona bara að það verði allir með sól í hjarta á þeim herrans degi og það skemmir ekki ef veðrið verður gott...

6.4.2003
Ég er að spá í að fá mér nýja Birgittu Haukdal veggfóðrið. Hún er hvort sem er alls staðar, alveg eins gott að hafa hana plasteraða á svefnherbergisveggjunum mínum. Rís, með Birgittu í bíó, Írafár, pepsi listinn, Eurovision, rokkað í fermingarveislunni þinni... Bloody everywhere! Þetta er voða sæt stelpa og virðist vera voða góð en fyrr má nú aldeilis fyrr vera...
Ég tók fermingarveislurnar með stæl í dag. 2 stykki. Át yfir mig og líður hálf illa núna. Fékk samt nýja diskinn með Bonnie prince billy í gær þannig að hann hjálpar mér í gegnum ofátið.
Hitti Guggu, Öldu (velkomin heim, elskan!!), Helgu og Petru í gærkvöldi. Það var ljúft. Hlógum og kjöftuðum saman og rifjuðum upp gamla sem nýja tíma.
Ég ætla að selja sálu mína í Kolaportinu næstu helgi. Reyndar ekki alveg sálu mína en fullt af drasli sem tengist minningum sálarinnar (Man sálin á annað borð...?). Ég verð þar á laugardaginn. Endilega komið og gerið þrusugóð kaup. Fullt af skemmtulegu dótaríi og fínum fötum.

5.4.2003
Ég er næstum því komin með herbergi í Köben. Ulla fór að skoða hjá einhverjum gaur í morgun og leist svona svaka vel á. Hringdi síðan í mig klukkan 8.30. Ég hélt ég yrði ekki eldri og ég sem var á djammi í gær. Hún: "Ooops, are you sleeping?? Ég: "YESSSSS, Zzzzzzzz..." Íbúðin er í einnar mínútu fjarlægð frá Ullu sem er fokking brilliant. Svalir og baðkar, já baðkar. Ég held bara að ég hafi aldrei séð baðkar í Danmörku. Þetta verður þá eitthvað annað en baðherbergið í íbúð Særúnar, Guggu og Petru seinasta sumar. Ég held að gólfflöturinn hafi verið um 2 m2, ef ekki minna. Klósett, vaskur og svo sturtuhaus sem var tengdur við blöndunartækin í vaskinum. Svo var það bara crying game í hvert einasta skipti sem maður fór í sturtu... Nóg um það. Gaurinn sem á íbúðina er 26 ára viðskiptafræðinemi og ég tók mig bara til og hringdi í hann. Ulla sagði mér nebbla að þegar hún var að labba út hafi önnur stelpa verið að koma og skoða. "I kind of wanted to push her down the stairs," sagði hún og hló. Ég hringdi þess vegna bara í hann og beitti öllum mínum persónutöfrum (sem eru gífurlegir;)) í gegnum símann og það virkaði líka svona vel. Hann eiginlega sagði bara við mig að ég myndi fá herbergið þannig að núna vantar mig bara vinnu:-/ Það getur samt ekki verið svo erfitt, ég sem er svo fjölhæf:-)
Gærkvöldið var ljúft. Lokadjamm Röskvu á 22. Við hittumst nokkur heima hjá Gunnhildi og fórum svo á 22, vel hífuð. Héldum áfram að drekka og fórum svo í drykkjukeppni. Ég, Vala og Hannes Óli vorum saman í liði. Markmiðið var að klára einn flöskubjór á mann á sem stystum tíma, einn byrjaði og svo mátti næsta byrja þegar sá fyrri væri búinn með flöskun. Vala var fyrst og ég horfði á þessa litlu títlu stúta flöskubjór á no time. Svo var röðin komin að mér og ég komst að því að þrátt fyrir háan lífaldur í sukki er ég ömurleg við svona aðstæður. Ég gat ekki einu sinni klárað bjórinn og við skíttöpuðum. Sorry gæs... Svo hélt sukkið bara áfram og við þræddum barina. Kaffibarinn,. Ölstofan, Felix (prump, bara Sportkaffi í uppadulargervi), Hverfisbarinn (Menntskælingar að syngja hástöfum Húsið er að gráta), Vegamót (bara plain old boring). Vala fékk kúlu á hausinn eftir að óprúttnir náungar höfðu numið hana á brott á Laugarveginum og slengt henni utan í húsvegg (allt í góðlátlegu gríni þó og vonandi alveg óvart). Hún sat þess vegna á Kaffibarnum með poka fullan af klökum við sárt ennið, mjög átakanleg sjón. Þetta stoppaði okkur reyndar ekkert í sukkinu og við, Vala, Alma og Hannes Óli (ásamt öllu hinu beautiful Röskvufólkinu) héldum áfram og sukkuðum með stæl eða kannski bara sucked with style (of líkt...hmmm)...
Hey, var að fá e-mail frá Martin sem er gaurinn sem ég mun búa með í sumar!!! Jibbý!!! Þetta er allt að reddast. Hann sendi mér myndir af íbúðinni. Stórt og fínt bað, huge svalir (grillveislur hverja helgi), risa eldhús og fín stofa. Djöfull verður þetta ljúft:-) Það liggur við að ég pakki niður núna...

2.4.2003
Hún Ulla dúlla hringdi í mig í dag. Haldiði að kellan sé ekki bara búin að finna e-ð pleis handa mér. Ef þetta stenst mun ég búa með einhverri stelpu í maí og júní og síðan ein í júlí. Þá flyt ég í íbúð sem er rétt hjá Kongens Nytorv (frábær staðsetning) og get þá tekið á móti elskulegum bróður mínum, þ.e.a.s. ef hann verður ekki orðinn það feitur að hann kemst ekki í flugvélina til Köben;-) Nei, nei...
Ég er að fara að elda núna í fyrsta skiptið í háa herrans tíð. I'm entertaining tonight. Sigrún Dögg ætlar að koma í dinner og kjaftaklúbb.
Dagurinn var tíðindalítill eins og undanfarna daga. Líf mitt lúið eins og gömul tuska... Tuskan mín undin eins og gamall svampur... Svampurinn myglaður eins og útrunninn ostur... Osturinn Húsavíkurhávarti eins og amma hennar Hilmu... Hilma sjúkleg eins og sukkað líferni mitt...
Grænmetissnitzel kallar...

Ég get ekki sagt að ég hafi orðið vör við 1. apríl. Það er samt einn maður sem á atbikarinn óáreittur í ár. Það er hann Jón Björn. Snillingurinn sá hringdi í fjóra vini sína 31. mars og bað þá alla að elta sig á bílaverkstæði í Kópavogi klukkan 8.15 daginn eftir til að hann kæmist aftur heim. Vinirnir, samviskusamir og góðir, mættu síðan allir heim til hans, hver á sínum bílnum og Jón Björn sat sallarólegur úti í bíl og helt á skilti sem stóð 1. apríl á. Mjög fyndið!!! Þeir tóku nú misvel í þetta en eru búnir að jafna sig. Þú ert snillingur, Jón Björn!
1.4.2003
Mig langar til að óska Hilmu og Sigrúnu Dögg til hamingju með að þekkja mig 100%. Þær fengu nebbla 10 á prófi sem ég bjó til fyrir vinkonur mínar. Reyndar fékk Marta næstum 10 en hún ýtti á vitlausan takka í hita leiksins. Þið hinar sem fenguð ekki 100%, ég elska ykkur samt!!
Ég er búin að vera ofurdugleg í dag. Kláraði tvo verkefni sem ég á að skila í vikunni. Hef ekki tekið svona almennilega rispu síðan... Vá, einhvern tímann fyrir áramót. Svo eru bara 10 dagar eftir af skólanum og 29 dagar þar til ég fer út. Vííí!
Ætlaði að fara að ljúga einhverju í tilefni dagsins en datt ekkert í hug. Ble...
Fór á Þjóðarbókhlöðuna áðan. Merkilegt hvað þessi staður er myglaður. Þungt loft, þurrt loft og dónalegt starfsfólk. Alla vega þessi sem ég lenti á. Hef reyndar lent í henni áður og ég þori næstum að fullyrða að hún hafi aldrei brosað í vinnunni, nema þá kannski í kaffipásu þegar hún getur látið járngrímuna falla. Æ, nenni ekki að fara meira út í þessa myglukellu, hún var alla vega þurrprumpa við mig í dag. Fjandans!
Ingi Þór fór til spákonu í gær og við töluðum saman tvisvar yfir daginn. Ætla reyndar ekki að segja hvað hún sagði en ég hef alla vega tekið ákvörðun um að fara aldrei til spákonu. Hvernig getur það verið að manneskja sem hefur aldrei hitt þig áður og þekkir þig ekki neitt geti sagt eitthvað um líf þitt og hvernig þér muni reiða af. Það er líka svo hættulegt með svona að fólk getur kannski farið að lifa eftir einhverju kjaftæði sem peningaplokkarar, sem þykjast vita allt um einhvern æðri sannleika, segja. Verst bara að símtal okkar Inga Þórs hafi farið í það að kjafta um þessa helv tarotdruslu...
Held ég hafi sjaldan blótað eins mikið í einni blibbfærslu:-/

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)