Hún Hilma á afmæli í dag. Vei! Til hamingju með afmælið, yndislega kona!
Það var sko piggað út í gær hjá Rúnsu (sem á svona líka fína íbúð;-)). Við gerðum heitan rétt, vorum með osta og vínber og snakk og nammi... og við vorum bara þrjár:-/ Reyndar hjálpaði Daði okkur aðeins þegar við lágum afvelta á sófanum klukkan 20.30... Reyndar kom soldið fyrir. Þegar ég var að taka heita réttinn úr ofninum þá skaðbrenndi ég á mér puttann. Það var alveg hryllilega vont. Við kældum í puttann í ca klukkutíma og svo sagði mamma hennar Óskar okkur að setja kartöflu á blöðruna. Ósk skar niður lífrænt ræktaða kartöflu (aðeins það besta á mínar blöðrur) og svo vöfðum við klósettpappír utan um puttann og festum síðan með hárteygju. Við þurftum bara að nýta það sem til var. Ég var nú frekar efins fyrst um sinn í sambandi við þessa kartöflu en svo virkaði hún ofsalega vel. Ég svaf til að mynda með kartöflu á puttanum í nótt og líður ágætlega í honum í dag.
Það er nú meira hvað íslenski veturinn (loksins þegar hann lét sjá sig) er að gera mig klikkaða. Í svona veðri vil ég helst ekki fara út. Raunar vil ég helst ekkert fara fram úr. Ég væri til í að vera björn. Leggjast bara í dvala á veturna og vera síðan hress og spræk (en ekki skræk) á sumrin.
Ég verð að segja ykkur frábæra sögu. Ég var að fá e-mail frá Ullu þar sem hún sagði mér að hún væri búin að vera rosa dugleg að passa litla frænda sinn síðan hún kom heim. Innifalið í þessari barnapössun eru auðvitað bleyjuskiptingar (vantar bara svona bleyjuljós á ennið á barninu til að láta vita hvenær er tími til að skipta;-)). Þið vitið þegar sumir hlutir koma ómeltir út um hinn endann eins og til dæmis gulkorn? Anyways, Ulla var að skipta á litla prinsinum og með stykkinu kom rúsína, alveg heil rúsína. Svo þegar Ulla lyfti upp bleyjunni og ætlaði að henda henni datt rúsínan út og á mallann á stráknum... Og áður en Ulla vissi af var litli rúsínuprinsinn búinn að borða rúsínuna. Hahahaha. Ulla sagðist vorkenna honum á mannamótum í framtíðinni þegar stóra frænka er búin að fá sér aðeins í annan fótinn og er farinn að segja rúsínusöguna fyrir framan vini og vandamenn...
31.1.2003
30.1.2003
Jæja, þá er það dinner með Ósk og Rún í kvöld. Ég rétt næ að skvísa þeim inn fyrir Sex and the city... hahaha. Nei, við stöllur ætlum að elda saman heima hjá henni Rúnsu. Vorum að spá í að fá okkur kjúkling en svo þegar ég hugsa út í það þá fékk ég mér kjúkling í hádeginu í dag, í kvöldmat í gær og í fyrrakvöld. Ég held ég sé ekki alveg að meika kjúllann aftur í kvöld:-/
Ég var að halda ræðu áðan... Voða spennó. Ég er nefnilega í kúrs sem heitir Meðferð talaðs máls og við erum að læra á röddina okkar og svoleiðis. Ég fékk skriflega umsögn og apparently er ég með frekar ráma rödd. Ég er ekki að samþykkja það! Er ég með ráma rödd?
Ég ætla að fara og gera eitthvað... Ble

29.1.2003
Ég seldi tvær peysur, bol og pils í gær. Þessi fatnaður flýgur út eins og heitar lummur og bílskúrssalan ekki byrjuð. Þeim sem sjá sér ekki fært að mæta í Njarðvík 8. febrúar er velkomið að kíkja við hjá mér og skoða.
Ég náði að drösla mér í skólann í dag og þá var kennarinn minn veikur. Reyndar er það alveg ágætt vegna þess að ég var ekki alveg að nenna í þennan tíma. Í staðinn dreif ég mig bara heim og gerði leiðinlegustu ritgerð sem ég hef nokkurn tímann gert. Hún fjallaði um hlutverk hins opinbera, ríkisafskipti, fyrirtækjarekstur hins opinbera og eitthvað svona helv.. kjaftæði. Alveg drepleiðinlegt verð ég að segja.
Stelpurnar og kallarnir tveir í hagnýtri fjölmiðlun eru að plana námsferð og ég er soldið abbó vegna þess að ég fer ekki með. Reyndar hef ég farið í svona námsferð og það var alveg æði. Við fórum til Washington D.C. og New York árið 2001. Svaka gaman. Ég væri samt alveg til í að fara með þessum góða hóp eitthvert til útlanda en ég kúka því miður ekki peningum. Ég get þó huggað mig við það að ég fer út í júlí og verð í heila fimm mánuði. Það er sko eitthvað til að hlakka til. Dúddírú!
Hún Anna Alberts var að byrja að blogga blessunin. Bráðum þarf maður ekkert að hitta vinkonur sínar neitt... Nei, aldrei skal það verða þannig!!!!!

28.1.2003
Það var rosa gaman um helgina. Tók bæði föstudags- og laugardagskvöld með stæl og dýfu. Var meira að segja ennþá að jafna mig á mánudaginn. Mamma skilur ekkert í því hvernig ég geti sukkað svona mikið. Ég held að þetta sé vegna þess að ég er ekki með hálskirtla en reyndar var ég svona áður en þeir voru skornir burt.
Ég og Hilma ætlum að halda bílskúrssölu 8. febrúar. Fullt af fatnaði og skóm og alls kyns dótaríi á mjög svo lágu verði. Ég myndi segja ykkur heimilisfangið en ég gleymi því alltaf. Þetta er alla vega hjá mömmu hennar Hilmu í Njarðvík og ég læt ykkur fá meiri upplýsingar þegar nær dregur.

What's your Inner European?
brought to you by Quizilla
You are a Dubliner
Hvernig líst ykkur á það??
24.1.2003
Ég er að fara í vísindaferð á eftir. Vei! Ferðinni er heitið á auglýsingastofuna Hvíta húsið. Spennó. Svo ætlum við allar að borða saman á Vegamótum og fara síðan í partý til einnar í hópnum. Ég held að dagurinn og kvöldið lofi góðu.
Ég er ennþá að vinna í því að koma uppskriftinni af jógúrtkökunum á netið en það gæti tekið smá tíma. Á meðan ætla ég að setja inn aðra uppskrift sem er alveg sjúklega góð. Ef ég gæti borðað svona köku á hverjum degi væri ég algjör feitabolla. Ummmm...
Frönsk súkkulaðikaka
200 gr suðusúkkulaði
200 gr smjör
4 egg
3 dl sykur
100 gr saxaðar heslihnetur
1 dl hveiti
flórsykur
fersk jarðaber (skorin í tvennt)
Bræðið súkkulaðið og smjör saman í vatnsbaði. Kælið svolítið en ekki svo lengi að blandan fari að storkna. Þeytið egg og sykur mjög vel samna þannig að það verði létt og ljóst. Blandið súkkulaðismjörinu saman við og þeytið aðeins. Setjið hneturnar út í hveitið og hrærið þessu varlega í eggjablönduna. Hellið í vel smurt 28-30 cm form og bakið við 180°C í um 40 mínútur. Athugið að tertan á að vera svolítið blaut (klesst). Látið hana kólna alveg áður hún er losuð úr forminu. Skreytið með jarðaberjum rétt áður hún er borin fram og stráið flórsykri yfir. Það er líka rosa gott að hafa þeyttan rjóma með.
Þessa kaka er reyndar svolítið mikið óhollari en döðlukakan en alveg himnesk engu að síður enda er yfirleitt það sem er óhollt og fitandi alltaf langbest;-)
Eru ekki allir komnir með vatn í munninn?

22.1.2003
Eftir að hafa tekið til í eldhússkápunum hjá mér í dag bakaði ég eitt stykki köku! Þegar ég hafði fjarlægt rakettuna úr rassinum á mér settist ég síðan niður með Hilmu og fór í fótabað og horfði á vídeó. Við horfðum á mynd sem heitir The man from Elysian (sic) Field. Nokkuð góð mynd. Mick Jagger er í henni og stendur sig bara nokkuð vel gamli kallinn. Við borðuðum köku og höfðum það náðugt. Kakan var algjört æði þó ég segi nú sjálf frá og þess vegna ætla ég að skella uppskriftinni inn a blibbið svo ég geti spread the joy;-)
Dásamleg döðlukaka
500 gr döðlur
2 msk smjörvi
100 gr valhnetur (malaðar)
100 gr möndlur (malaðar)
1 tsk lyftiduft
1 banani (stappaður)
1 tsk vanilludropar
1 tsk kanilduft
salt af hnífsoddi
1 1/2 dl hveiti
Döðlurnar eru látnar vera í bleyti í vatni í ca 1 klst (láta vatnið rétt fljóta yfir þær). Síðan eru þær skornar í litla bita og settar í hrærivél ásamt smjörva. Restinni af uppskriftinni bætt út í og öllu hrært létt saman. Sett í smurt bökuform og bakað við ca 180° hita í 20-25 mínútur.
Alveg einstaklega ljúffeng kaka. Verður reyndar að vera sprauturjómi með til að fullkomna hana. Þetta minnir mig á þá tíð er ég var í 4. bekk. Þá gerði bekkurinn svona uppskriftarbók og hver nemandi átti að koma með eina uppskrift. Allir sinntu sínu hlutverki vel nema einn sem var soldið latur. Hann Robbi nennti greinilega ekki að finna uppskrift og ákvað þess vegna að búa bara til eina slíka. Ég man alla vega að í kökuna áttu að fara 2 bollar af lyftidufti og 3 af sultu og svo eitthvað meira sull!! 2 bollar af lyftidufti! Það myndi örugglega duga til að sprengja upp heilt eldhús og jafnvel bara heilt hús líka.

20.1.2003
Þá er fyrsti skóladagurinn afstaðinn og mér líst bara nokkuð vel á þetta allt saman. Fór reyndar bara í tvo tíma í dag þannig að ég hef ekki enn fengið reynslu af þessu öllu saman. Meðferð talaðs máls er þó kúrs sem ég veit ekki alveg hvað mér finnst um. Ég hlustaði alla vega á kennarann minn, sem er talmeinafræðingur, tala um talmein og ýmsa kvilla sem fólk getur fengið í raddböndin allan tímann í dag. Ekki nóg með að hún talaði um þetta heldur sýndi hún myndir sem voru ekki mikið augnayndi. Þær fengu mig nú samt til að prísa mig sæla yfir að vera hætt að reykja. Reyndar verð ég að viðurkenna að ég tók smá feilspor í hætta-að-reykja-ferlinu um helgina en ég ætla bara að reyna að gleyma því og halda ótrauð áfram. Þetta kemur allt á endanum!
16.1.2003
Ég fer heim í dag. Alveg orðin tilbúin til þess. Búin að vera á Séstvallagötunni í heila viku. Hilma ætlar að vera svo góð að passa mig í kvöld og svo er helgin laus. Sjálfboðaliðar óskast. Ég þarf að taka mér frí í vinnunni um helgina. Ekki alveg nógu gott þar sem ég þarf á peningunum að halda en ég held ég geti ekki farið að vinna. Ég var nefnilega í hálskirtlatöku ef enginn var búinn að taka eftir því. Hahahaha. Ég þarf að pakka saman föggum mínum og undirbúa mig fyrir ferðalagið. Au revoir!
15.1.2003
Which female sex symbol are you?
brought to you by Quizilla
You're a BOMBSHELL. You're kitten-like and sexy. You don't need expensive rocks, you're so classy you overpower your gems. You tend to put glamour before comfort, but it doesn't take much for you to look glamourous anyhow. Men beg for a chance with you, and you can take your pick because, frankly, you're too good for almost all of them.
Já, það hlaut barasta að vera. Hahaha...
Í nótt dreymdi mig að ég væri ólétt! Ekki nóg með það að ég væri ólétt heldur var ég ólétt á skemmtistað. Bara tjillandi með bumbuna út í loftið með vinkonunum. Hvað ætli þetta þýði (ef það þýðir þá eitthvað...)? Ég ákvað að tékka í draumaráðningarbókinni hennar mömmu þar sem ég hef aðeins of mikinn frítíma í þessum veikindum. Og viti menn, það er ekki rassgat í þessari bók. Hvorki ólétta, veisla né Geir Ólafs. Svo dreymdi mig rosalega mikið af tómötum um daginn en en ekkert bólaði á þeim í bókinni "góðu" og ekki heldur sælgætinu sem mig dreymdi líka. Ég held ég reyni bara að ráða draumana sjálf. Samt má ég ekki gera of mikið úr þessu þar sem ég er búin að vera stónd á læknadópi í heila viku. Sá einmitt í fréttunum í gær að læknar eru alveg að ganga af göflunum í ávísun lyfja. Ég get alveg tekið undir það. Ég fékk lyfseðla upp á endalaust mikið af lyfjum sem hefðu líklega getað dugað mér í nokkurra vikna "veislu." Það endaði meira að segja með því að mamma ákvað að taka bara helminginn af öllum lyfjunum og ég skal segja ykkur það að ég er ekki einu sinni hálfnuð með skammtinn sem ég fékk! Þetta er auðvitað bara skömm og svo er það líka skömm hversu rándýrt þetta er. Upphaflegi skammturinn (sem hefði líklega tekist að gera mig að fíkli) átti að kosta um 16.000 kr. en mamma ákvað að kaupa nú bara dóp fyrir um 8000 kr. Svo er ekki einu sinni hægt að skila þessu drasli. Kannski maður fari bara að skoða betur undirheima Reykjavíkur með afganginn af lyfjunum. Ég þarf nú pening fyrir skólabókum...
Anyways... Í sambandi við draumana. Ég held að tjaldpartýið sé tákn um skemmtilega tíma framundan í hópi tónelskra vina. Geir Ólafs í dragi að selja pylsur er líklega tákn fyrir fölnandi frægðarsól þessa mikla og hæfileikaríka söngvara með gula hárið (Newsflash everyone!!!!). Óléttan er hiklaust merki um mikið líf og sköpunargáfu sem býr innra með mér og skemmtistaðurinn er vísbending um að þar nái ég að virkja (sem virðist bannorð á Íslandi þessa dagana) þessa orku best. Ef þið þurfið hjálp við að ráða drauma sem ykkur virðast torskildir endilega sendið mér póst. Aðeins 999 kr. draumurinn!! Útsöluverð í janúarmánuði...

14.1.2003
Það er svo gaman hjá mér núna:-/ Ég er að horfa á heimildarmynd um Hitler og Þýskalandi nasismans. Helvítis ógeð og ofsóknir gegn saklausu fólki.
Ég er hætt á verkjalyfjum. Ég þoli ekki að vera svona dofin daginn út og inn. Reyndar verð ég að taka inn bólgueyðandi svo ég geti nú borðað eitthvað. No more drugs, please! Svo hlýtur þetta nú að fara að taka enda, annars missi eg hreinlega vitið!

Mig dreymdi svo mikið rugl í nótt. Þrír mismunandi draumar og ég ætla að segja ykkur frá einum þeirra. Ég var að halda svaka stórt partý í tjaldi á planinu fyrir framan Sparisjóðinn í Keflavík. Gamli pylsuvagninn var þar og Geir Ólafs átti hann. Geir var orðinn dragdrottning og sat í pylsuvagninum sínum og seldi pylsur. Allir vinir mínir mættu í partýið og það var tónlist á fullu blasti (ágætt að ég hitti fólk á einhverju stigi núna. Hef ekki hitt neinn nema fjölskylduna í heila viku.) Svo var eitthvað stórt svið við hliðina á partýtjaldinu mínu og þar var SSSól að spila. Ég er nú ekki alveg nógu ánægð með hljómsveitarvalið en kannski er ég bara aðdáandi inn við beinið...
13.1.2003
Ég gleymdi að segja frá því að ég er hætt að reykja! Jibbí! Dagur nr. 5. Ég reyni að leiða það hjá mér að ég gæti hvort eð er ekki reykt núna þótt ég reyndi það:-/ Mjög sniðugt að nota tækifærið í svona veikindum. Ég kvíði helst fyrir því þegar ég fæ mér fyrsta reyklausa bjórinn eða fer reyklaus á kaffihús. Það verður fjandi erfitt!
Ég ætti kannski að breyta nafninu á þessu bloggi í sjúkrasögu Kamillu. Þessi veikindi eru að gera mig vitlausa. Núna er búið að taka úr mér hálskirtlana. Reyndar er það alveg vel þess virði vegna þess að þessir kirtlar virðast vera rót alls ills. Ég fór á spítalann á fimmtudaginn. Ég var svo ótrúlega stressuð að ég bara vissi varla hvað ég heiti. Ég var sett á róandi og alles. Svo var ég svo mikill lúði að ég fékk mér hálfa jógúrt í morgunmat og þess vegna þurfti að seinka aðgerðinni um nokkra tíma. Það datt samt engum í hug að segja ´mér að borða ekki neitt. Ég hef aldrei farið í aðgerð, hef aldrei verið svæfð og mér finnst ER leiðinlegir þættir. Þess vegna er ég ekkert fróð um svæfingar og svoleiðis kjaftæði. Svo er það nú líka þannig, eins og flestir vinir mínir vita, að ég er skíthrædd við sjúkrahús og sprautur og svoleiðis. Enda var ég sett á róandi á fimmtudaginn vegna þess að ég var svo gjörsamlega ekki að meika þetta. Ég held að það hafi bara verið gott að ég borðaði um morguninn vegna þess að annars hefði ég fríkað út. Í staðinn var ég bara látin sofa og svo var mér rúllað upp á skurðstofuna og vara bara að grínast í hjúkkunum, spurði hvort ég væri nú ekki alveg að fara í fótaaflimunaraðgerð. Þegar ég hugsa um þetta núna er ég ekki alveg að fatta sjálfa mig en þetta hafa líklega verið lyfin að tjá sig. Svo var ég bara svæfð og þegar ég var vakin var allt búið en eftir stóð gífurlegur sársauki, ekki ljúft. Ég var svo rugluð að þegar læknirinn sagði mér að þetta væri búið gleymdi ég því strax og spurði hann hvort þetta væri ekki alveg búið. Svo kom mútta góða og sat yfir mér. Þó svo að ég hafi verið útútrugluð tók ég strax eftir því að hún var í nýjum jakka. Pælið í lúða!!
Svo var ég látin gista á spítalanum. Mér var troðið inn í eitthvað undirbúningsherbergi. Þar inni var klósett og vaskur og pláss fyrir rúmið. Þegar mér var rúllað á staðinn var einhver gamall kall inni á klósettinu í leyfisleysi og hjúkrunarfræðingurinn sem var með mér varð alveg kex, gaf greyið manninum alveg morðaugað. Hann staulaðist inn á sína stofa á nærunum og sjúkrahúsbol, mjög skömmustulegur. Svo var sett inn í þetta herbergi þar sem ég svaf í heilan sólarhring, alveg búin á því.
Á föstudaginn fór ég síðan í Kef og hef verið þar síðan og mun vera þar næstu daga. Mataræði mitt samanstendur af vatni, frostpinnum og jógúrti. Reyndar fékk ég smá súpu í gær og það var kærkomin tilbreyting. Í dag er ég rétt að meika að gera eitthvað, er bara búin að liggja og horfa á videó og sofa síðan á föstudaginn. Svo verð ég alltaf að drekka 2 lítra af vatni á dag svo ég verði hress sem fyrst. Mamma er alltaf að hrósa mér eftir hvert vatnsglas: Dugleg stelpa!:-) Ég verð samt að segja að ég er komin með ógeð af þessu helvíti og læt mig dreyma um pizzu og nammi og svoleiðis drasl. Ég held meira að segja að mig hafi dreymt rosalega girnilegan mat í nótt. Ummmmm...
Núna er orkan mín alveg búin, verð að leggjast. Peace out!

7.1.2003
Ég og Hilma tókum maraþon í búðunum í gær. 5 tímar streit. Alveg met. Fórum í Kringluna og Smáralindina. Versluðum alveg kvótann fyrir árið. Peysa, skór, belti, leðurhanskar, eyrnalokkar og Imagine með Evu Cassidy (yndisleg músík) eru afrakstur gærdagsins hjá Millunni. Við vorum reyndar orðnar hálfruglaðar eftir daginn enda er búðarráp mest þreytandi í heimi og ég er að eldast:-(
Svo dressuðum við okkur upp og fórum í smá kveðjuhóf fyrir hana Ullu. Hún er að fara heim til Danaveldis á miðvikudaginn eftir 5 mánaða dvöl on ðe kleik. Hófið var haldið á Sirkús og við vorum nokkur þarna sem gátum tjáð okkur á hinu ástkæra ylhýra þannig að enskan var í hávegum höfð. Við drukkum aðeins of marga bjóra en það er bara í stíl við helgina sem leið:-/
Núna er Hilma farin til Húsavíkur að heimsækja ömmu sína. Hún er svo gott ömmubarn;-) Við fórum í prjónaleiðangur fyrir ömmuna í gær. Mjög kelló. Stóðum í Hagkaup og völdum garn eftir einstakri smekkvísi. Komst að því að ein rúlla af garni kallast dokka. Þetta var fyrsta skref mitt inn í kellingalífið. Við toppuðum það þegar við settumst á bekk í Smáralindinni og fórum að rifja upp hverja við hefðum hitt í Kringlunni og mundum ekki einu sinni eftir öllum. Kalkaðar kellingar í þokkabót. Reyndar urðum við frekar drukknar á virkum degi og það mundi ekta kelling ekki gera þannig að enn er einhver von eftir. Vei!
Helgin sem leið einkenndist líka af maraþonfíling. Þetta var seinasta helgin hennar Birtu hér á Íslandi þannig að við nýttum hana vel. Ég var reyndar að vinna í bíóinu þannig að helgin fór bókstaflega bara í djamm, vinnu og svefn. Það var samt mjög gaman og við eyddum báðum kvöldunum á Kaffibarnum með smá viðkomu á Hverfisbarnum og Sirkús. Ég skil reyndar ekki af hverju við fórum á Hverfisbarinn. Þetta er eins og að vera á skólaballi og það er bara gaman þegar maður er sjálfur í framhaldsskóla. Svo syngja allir saman:"Húsið er að gráta..." og þá er það alveg búið. Ég fór reyndar bara þangað inn í 5 mínútur og fór síðan með einhverjum gaurum sem ég hitti á Sirkús. Þar hitti ég Ullu og stalkerinn með yfirvaraskeggið, ekki nógu gott... Endaði með því að ég hljóp út af staðnum til að sleppa og náði mér í leigubíl og fór beinustu leið heim.
Ég er komin með nýjan leigjanda! Hún heitir Hanna og er finnsk. Hún er voða indæl grænmetisæta sem spilar á víólu og ætlar að búa hjá mér eitthvað fram á sumar. Frábært!

3.1.2003
Gleðilegt nýtt ár! Eyddi gamlárskveldi í faðmi fjölskyldunnar og keflvískra vina. Kvöldið var frábært framan af. Það var blúsað og trallað á Vallargötunni eða Séstvallagötunni eins og pabbi kýs að kalla hana. Þegar klukkan var orðin 4 var komið að mér að koma fólkinu úr húsinu og það var sko meira en að segja það. Ég þurfti á endanum að umbreyta mér í harðstjóra og gjörsamlega henda fólkinu út á afturendanum. Þá loksins hófst það. Leiðin lá síðan í partý hjá Rúnari og á nokkra ónefnda skemmtistaði í Keflavík. Þá dó stemmningin algjörlega og ég ákvað því bara að fara heim að hrjóta. Ekki svo góður endir á annars frábæru kvöldi.
Ég er að fara í hálskirtlatöku eftir tæpa viku og er að farast úr stressi. Ég hef aldrei farið í aðgerð áður og aldrei verið svæfð:-/ Ég er búin að heyra margar hryllingssögur af +20 ára fólki sem hefur farið í svona aðgerð og orðið blóðbað er mér ofarlega í huga.. Shitttt! Svo var mér líka sagt að vikurnar á eftir myndi ég tala eins og Halldór Ásgrímsson, algjörlega eintóna. Þess vegna hef ég ákveðið að tala bara ekki neitt í nokkrar vikur eftir aðgerðina. Það gæti samt reynst svolítið erfitt þar sem ég er að fara í kúrs sem heitir Meðferð talaðs máls og eins og nafnið gefur til kynna mun vera svolítið erfitt að geta ekki talað...
Var að kíkja á nýju stundatöfluna mína áðan og ég verð að segja að mér var ekki skemmt. Ég verð í skólanum alla virka daga og alltaf um miðjan daginn. Hryllilega óhentugur tími, brýtur svo upp daginn.
Gugga var að flytja út í dag og nú hefst leit að nýjum leigjanda. Þið látið mig vita ef þið vitið um einhvern.
Carrie í Sex and the city olli mér miklum vonbrigðum í gær. Hún hætti með Aidan:-( Ég er alveg hreint í rusli yfir þessu. Maðurinn er auðvitað ekkert annað en draumaprins í alla staði og ég myndi ekki hika við að giftast honum. Sveiattann!!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)