Sit núna með Guggu og Rósu inni í stofu. Við erum frekar þunnar núna eftir svaka djamm í gær og erum búnar að hafa það næs í allt kvöld. Pizza, nammi og allt tilheyrandi.
Við héldum risa jólapartýið í gærkvöldi. Svaka stuð og yndislegt að hitta alla yndislegu vini sína. Reyndar ældi einhver á gólfið og Brynja greyið þurfti að þrífa það upp. Ælupúkinn er enn ófundinn en leit stendur yfir á öllum helstu skemmtistöðum landsins. Ef einhver hefur vísbendingar er sá hinn sami beðinn um að hafa samband við lögregluna í Reykjanesbæ.
Ulla kom með í partýið og hafði gaman af öllum fyllibyttuvinum mínum. Híhíhí. Er þreytt núna og við erum að starta Sex and the city maraþoni. Ciao!!
29.12.2002
23.12.2002
Jæja, jólin eru á morgun og mig langar bara að óska öllum gleðilegra jóla. Hafið það sem allra allra best yfir hátíðarnar.
Ég fór í bæinn í kvöld. Við Hilma röltum í búðir og fengum okkur að borða á Sólon, rosa gott. Svo fórum við heim til hennar og horfðum á Kissing Jessica Stein. Frábær mynd og rosalega vel leikin. Mæli með henni:-)
Mig langar að minna á risa jólapartý okkar stelpnanna. Það verður haldið föstudaginn 27. desember í Sjálfsbjargarhúsinu í Njarðvík. Allir vinir okkar eru hjartanlega velkomnir og ég get ábyrgst góða skemmtun. Jibbí!!!
Ég ætla að halda áfram að jólast og sofa síðan værum svefni og láta mig dreyma um hreindýr og rjómabossa...

19.12.2002
Jæja, ég er öll að braggast. Ég er farin að geta hugsað um mat án þess að hlaupa á klóið og æla. Ég held að það teljist mikil framför. Ég er líka orðin hundleið á að hanga í veikindum endalaust. Það er komin vika síðan ég kláraði prófin og ég er búin að vera slöpp allan tímann. Hvað á það að þýða?!
Ingi Þór kom og náði í mig í gær til að ég gæti verið veik hjá múttu og pabba. Við rifumst reyndar eiginlega alla leiðina, frekar skrýtið. Við höfum nebbla ekki rifist í rosalega langan tíma og svo vorum við bara eins og vitleysingar í gær, alveg fáránlegt. Rifumst bara út af ekki neinu. Ég held að stór ástæða þess sé sú að við vorum bæði veik og alveg ógeðslega pirruð á því að vera veik og létum það bara bitna á hvort öðru. Meikuðum það samt heim og þá fór ég bara beint að sofa. Erum sátt núna:-)
Pabbi minn yndislegi átti afmæli í gær. Til hamingju, daddy cool!!! Ég gaf honum dvd disk í afmælisgjöf, Sexy beast (rosa góð, sjáið hana ef þið hafið ekki gert það!). Við borðuðum öll saman og ég sló met í áti. Gat borðað heila pítu og meira að segja haldið henni niðri. Ég veit að ég er ógeð að segja frá þessu en þetta var gleðistund í mínu veikindaferli. Anyways, Ingi Þór Ingibergsson var ekkert að tvínóna við hlutina og gaf pabba fokkings viðarsneril í afmælisgjöf. Pabbi sagði ekki annað "en ertu ekki að djóka????" á meðan hann var að opna pakkann og svo hoppuðu þeir og skoppuðu eins og litlir strákar og föðmuðust, mjög sætt. Ég ætti kannski að útskýra að viðsnerill er hluti af trommusetti og kostar rúmar 50.000 kr. Drengurinn þjáist greinilega af hlutaveiki á háu stigi. Eitthvað sem ég þekkti eitt sinn;-) Svo fór nánast öll fjölskyldan á forsýningu á Two Towers. Ég gat auðvitað ekki farið neitt út í mínu ásigkomulagi þannig að Sveinn fór bara í minn stað. Ég og Ingi Þór pældum reyndar í því að ég færi og tæki bara með mér einn tóman popppoka og ældi í hann. Það myndi enginn taka eftir því, híhí, og svo myndu bara fara smá slettur á fólkið fyrir framan mig í þétt setnum bíósalnum. Ákvað samt að sleppa því...
Ég er að fara í klippingu á eftir. Ákvað að drulla mér í sturtu svo ég myndi ekki hræða líftórunu úr klippikonunum með útliti mínu. Ég er búin að spasla mig í framan og er bara í lagi núna. Þetta er allt að koma. Svo verð ég bara sjúklega sæt á eftir með nýja klippingu. Jibbí!

16.12.2002
Ég er komin aftur!!! Búin að vera veik og er reyndar aftur orðin veik:-( Góðu fréttirnar eru þó þær að ég er að skrifa þetta á nýju fartölvuna mína!!! Já, ég keypti mér eitt stykki fartölvu í dag í Expert. Rosa gella!!!
Auk þess að afreka það að verða veik í dag og kaupa tölvu þreif ég íbúðina. Það ar orðið alveg ógeðslegt hjá okkur Guggu. Baðherbergið okkar var farið að líta út eins og almenningssalerni, ekki girnó:-/ Núna er samt allt voða fínt á Hringbrautinni. Ekki fleiri rykhnoðrar á gólfunum.
Ég held að djammið á laugardaginn hafi gert út af við mig. Ég er að verða gömul... Ég verð samt að ná mér upp út þessari flensu ASAP. Gengur ekki að vera í jólafríi og vera bara veik! Ég ætla að fara í Kef á miðvikudaginn. Þá á daddy cool afmæli. VIð familían ætlum að sjá Lord of the rings saman. Rosa gaman.
Hverjir í andsk... eru Kiðlingarnir???!! Það er alltaf verið að auglýsa í sjónvarpinu myndband um Kiðlingana í Norðurlandaferð sinni og ég hef barasta aldrei heyrt um þessa barnahljómsveit áður.
Ég er hryllilega mygluð núna. Nenni ekki að blibba meir en ég er samt komin aftur. Vei!!!!

12.12.2002
Þá hef ég loks heimt líf mitt úr helju lærdóms...þrældóms. Ég er búin í prófunum!!!!!!!!!!! Vei!!! Reyndar er einn hængur á:-( Ég er veik... Ég vaknaði með þvílíka hálsbólgu á þriðjudaginn, fór í próf og kom heim alveg búin á því. Svaf allan daginn og varð fárveik. Gat þess vegna ekkert lært á þriðjudaginn og ekki heldur í gær. Svo mætti ég bara galvösk í prófið og gekk svona líka vel. Very good. Drullaði mér síðan heim og lagði mig smá. Eyddi síðan deginum í að gera ekki neitt. Alveg yndislegt. Hlustaði á Stevie Wonder og komst í smá fíling. Ætla samt að láta mér batna áður en ég fer að koma mér í rónastuðið.
Ég talaði við pabba minn í dag. Hann gaf það í skyn að það væri skemmtilegra að fylgjast með lífi mínu í gegnum netið en að tala við mig í persónu. Hann sagði að ég væri ekkert voðalega málglöð þegar foreldrar mínir ættu í hlut: Hvað er að frétta? ...Bara allt gott. Hvað gerðir þú um helgina? ...Æ, bara mest lítið.
Hilma kom til mín í kvöld. Eldaði fyrir mig spínatpasta og lagaði buxur fyrir mig. Mamma, ég er komin með nýja mömmu! Þessi mamma er líka svo þægileg. Hún á heima svo nálægt mér:-) Hún á reyndar nokkra daga eftir í próflestri, greyið. Gaf sér samt frí í kvöld til að hanga með veiku jólafrísstelpunni. Hilma besta!!!

7.12.2002
Jæja, ég hitti Melinu í gærkvöldi. Það var ekkert smá gaman að hitta hana. Hún hefur breyst helling og er komin með stutt hár og er ekki með krullur lengur. Við fórum á Vegamót með Hilmu, Rún og Ullu og kjöftuðum. Rosa gaman. Svo fórum við heim til mín og skoðuðum gamlar myndir.
Melina er nýkomin frá Englandi. Hún var að kenna listfræði í skóla í bæ sem heitir Dorking (!). Pínkulítill bær og hún sagði að hann væri eins og Vogar. Þegar fer aftur heim ætlar hún að flytja til Chicago og fara að vinna sem kennari.
Ég er bara búin að sofa í nokkra tíma í nótt. Ég ætla samt að vera dugleg að læra og fara síðan að vinna í kvöld:-(

6.12.2002
Ekki fer þessi dagur skánandi... Ég var að skoða blibbið mitt og mamma var að segja í kommenti að ég þurfi að elda jólamatinn!!!!!! Þá er bara eins gott að hafa pylsur í matinn eða öllu heldur að snæða bara kjúklinginn sjálfan en ekki bróðir hans. Sæjitt, ég fæ bara hnút í mallann við tilhugsunina:-/ Reyndar verð ég að segja að ef ég þekki hana móður mína rétt mun hún gera þetta mjög auðvelt fyrir mig og örugglega sjá til þess að þetta geti ekki mistekist. Svo er líka annað mál að köllunum á heimilinu er sko ekki treystandi fyrir neinu, hvað þá jólamatnum. Einu sinni eldaði Ingi Þór fyrir familíuna. Við vorum öll mjög spennt þegar við mættum í matinn. Þá hafði drengurinn sett paprikuost og appelsínugult doritos á brauð og skellt því inn í ofn!!!!!! Ég spurði hann hvort hann væri alveg genginn af göflunum og hann sagði að þetta hefði bragðast mun betur í minningunni í fyllerísferð uppi í bústað helgina á undan. Ég benti honum á það að allt bragðaðist allt vel í fyllerísferð í sumarbústað. Ég man þegar ég og Stebbi borðuðum ritz kex með barbeque sósu uppi í bústað á meðan við skrifuðum innkaupalista fyrir daginn eftir. Okkur fannst það sjúklega gott! Maður er auðvitað ekki í lagi þegar maður er drukkinn og svangur og enginn búð eða neitt nálægt. Enda var innkaupalistinn okkar Stebba mjög langur og nákvæmur og við hlógum mikið að honum daginn eftir:-D
Ég hata LÍN!!!! Ég fékk ógeðslega harðort bréf frá þeim áðan í ábyrgðarpósti. Þú skuldar okkur pening og verður að borga annars er okkur að mæta, auli! Ég fékk alveg áfall og hugsaði með mér að nú væru jólin sko ónýt. Kamilla bara í skuldasúpu og færi í jólaköttinn og bara disaster út í gegn. Svo fór ég að skoða bréfið betur og sá að helvítis fíflin voru að gera mistök. Ég skulda þeim ekki jack (reyndar öll námslánin en ekki þetta)!!! Ég fór beinustu leið niður í LÍN og lét þau lagfæra þetta. Fyrst var kellingin ekkert að skilja þetta og sagði að þeim hefði ekki borist bréf frá skattinum og eitthvað bla. Ég hreytti út úr mér að ég hefði sko komið með fokkings bréfið frá skattinum í eigin persónu (bréfið sem gerði mig og skattinn að bestu vinum). Þá skoðaði hún aðeins betur í tölvuna og „ó, já...“ Fór síðan eitthvað á bakvið og kom til baka og sagði að þetta væri rétt hjá mér. Gat samt ekki drullast til að segja að þetta hefði verið LÍN að kenna, reyndi bara að koma þessu út úr sér á mjög passívan hátt. Ég var svo brjáluð og er enn. Að þessi skítastofnun skuli dirfast að senda svona harðort bréf til fólks án þess að tryggja að þetta sé alveg pottþétt. Ég vorkenni nú bara fólkinu sem fær svona bréf og það eru ekki mistök. Ekki beint skemmtilegur pakki svona í miðju prófstressi. Og talandi um prófstress, ég er búin að standa í þessu fokki frá því hádeginu og hef misst dýrmætan lestrartíma. Nú get ég ekki einbeitt mér og er ennþá alveg geðveikt upptjúnuð. Djöfulsins fokk. Ég er alveg tjúll hérna.
On the bright side... Haldiði að hún Melina hafi ekki hringt í mig í morgun. Talaði meira að segja íslensku við mig og allt. Reyndar bara nokkur orð en samt. Hún kom til landsins í gær og við ætlum að hittast í kvöld. Vei!! Frekar skítt að maður skuli vera í prófum á meðan hún er í heimsókn og líka að vinna í bíóinu um helgina. Við verðum þá bara að nýta tímann vel í kvöld. Það var svo fyndið að heyra í henni röddina. Ég var eiginlega alveg búin að gleyma hvernig hún hljómaði. Við erum auðvitað bara búnar að vera í e-mail bandi síðan '98 þannig að það er kannski ekki furða. Það verðu æði að hitta hana. Segi frá því seinna. Over and out!

5.12.2002
Það er nú meira hvað það er mikill twister úti. Ég heim við hliðina á bókhlöðunni en varð samt hundblaut eftir að hafa labbað þangað í morgun. Húfan fauk meira að segja af mér á miðri leið og beinustu leið í stóran poll. Bölvuð óheppni:-(
Upplifði svolítið fyndið í hádeginu. Ég og Hilma ákváðum að fara með Guggu og Mörtu á hundraðkrónu fatamarkað á elliheimilinu Grund. Hver flík á hundrað kall. Bjóst við því að finna kannski eitthvað sætt veski eða trefil eða eitthvað. Hilma kom til mín í hádegismat og síðan ætluðum við að hitta Guggu og Mörtu og fara á Grund. Ég reyndi að hringja í Guggu en hún varð alltaf batteríslaus þannig að við náðum aldrei að tala almennilega saman. Ég var því ekki viss hvort hún ætlaði að koma við hjá okkur áður en farið væri á Grund. Ég og Hilma ákváðum því að skella okkur bara á Grund og hitta stelpurnar þar. Við reiknuðum bara ekki með því að það væru svona margir inngangar á einu húsi þannig að við löbbuðum hringinn í kringum húsið án þess finna markaðinn. Við vorum orðnar rennandi blautar og ákváðum bara að fara heim til mín aftur. Þá sáum við Guggu og Mörtu fyrir utan húsið mitt og við mættumst á miðri leið og skelltum okkur á hundrað krónu markaðinn. Þetta var nú meiri markaðurinn. Fullt af gömlu fólki og svo gat ég eiginlega ekki verið þarna inni, það var svo mikil veikindalykt þar. Við höfum líka sterkan grun um að þarna hafi verið seldur fatnaður af dánu fólki...spooky. Strax og við komum inn greip Hilma eitthvað sætt box sem hún hefði viljað kaupa. Þá kom kona og benti henni á að þetta væri eiginlega búðarkassi markaðarins og bað hana um að skila honum. Þetta box var líklega það mest spennandi sem við sáum á þessum markaði:-/ Við flýttum okkur út og ég fór heim og skipti um buxur þar sem hinar voru farnar að límast við mig af bleytu. Svo rétt náðum við upp á bókhlöðu áður en við fukum út í buskann. Ég hefði alveg eins getað sleppt því að fara í aðrar buxur vegna þess að ég varð gegnvot á leiðinni. Sit núna skítköld og er að reyna að lesa. Gengur ekki allt of vel, held ég fari snemma heim.

4.12.2002
Kalkúnaæðið virðist vera að heltaka landann. Var að fá hjálparbeiðni í gestabókinni minni frá Gunnhildi B. (Mörtu-systir). Mamma hennar ætlar víst að snæða bróðir kjúklingsins á aðfangadagskvöld. Gunnhildur er alveg miður sín og bað mig um að hringja í mömmu mína og láta hana redda þessu. Ég held að hún sé búin að gleyma að ég er mikil talskona kalkúnsins og tek ákvörðunum mæðra okkar beggja fagnandi. Hún ætti frekar að tala við hann Inga Þór, bróður minn og helsta andstæðing í jólamatsvali, en hann hefur þótt mikið fyrir svínið í gegnum tíðina. Ég myndi benda henni á bloggið hans en hún gæti nú lítið tjáð sig þar. Vantar allt inn á síðuna hans;-) Það verður örugglega orðið of seint þegar hann loksins kemur upp kommentakerfi eða gestabók. Þá verðið kalkúnajólin miklu liðin án þess að Ingi Þór og Gunnhildur hafi náð sínu fram (sem er reyndar gott fyrir mig, er á prósentum hjá kalkúnabændum landsins). Ég segir bara: Sættið ykkur við það sem er borið á borð fyrir ykkur um jólin, sérstaklega ef það er kalkúnn. Múhahahaha!!!!!
Jæja, búin með heimaprófið í blaðamennsku. Reyndar var prófið óvenjulega auðvelt, ég kláraði það á einum degi en hafði tvo. Fólkið með mér í blaðamennsku var ekki visst hvort það væri að misskilja þetta hjá henni Guðbjörgu eða að hún væri bara svona easy peasy á lokaprófum. Alla vega kvarta ég ekki yfir auðveldum prófum. Byrja seint á því:-)
Fór á Íbúð Soju seinust helgi. Þetta var seinasta sýningin og þeir sem sáu þetta ekki misstu af miklu. Þetta var rosa flott hjá þeim. Fullt af frábærum leikurum og svo er leikritið alveg rosalega fyndið. Það var gott að hlæja dátt í miðri prófageðveikinni og einbeita sér að einhverju öðru en skólabók. Eftir sýninguna var öllum boðið að sitja áfram því leikararnir ætluðu að reyna að flytja leikritið aftur og þá á aðeins 10 mínútum. Auðvitað sátum við áfram og hlógum eins og brjálæðingar meðan liðið hljóp um sviðið á harðaspani og öskraði eitthvað samhengislaust og þvældist fyrir hvert öðru. Mjög fyndið.

2.12.2002
Ég er komin með leið á því að sitja á hlöðunni og lesa með tappa í eyrunum. Maður heyrir nánast bara sín eigin búkhljóð og smá í fólkinu í kring. Ég held barasta að ég hafi ekki sagt meira en 5 orð í allan dag.
Reyndar ákvað ég í gær að hætta öllu þessu kvabbi. Ég var að horfa á heimildarmynd um HIV (sem hefði getað verið mun betri) og ég fattaði það að ég er bara rosalega heppin að vera að lesa undir próf núna:-)
Ég ætla heim núna að spísa. Er að fara í heimapróf í blaðamennsku á morgun og nenni ekki að hanga í þessu god for saken house. Peace out:-)

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)