31.10.2002

Jæja, ég var rétt í þessu að uppgötva að ég er ekki tölvusnillingur:-/ Ég hef í nokkur skipti reynt að setja upp teljara en það virðist aldrei virka hjá mér. Frekar pirrandi. Kannski er mér ekki ætlað að vera með teljara. Kannski ætlaði Bloggguðinn mér það ekki. Kæri Bloggguð, getur þú hjálpað mér? Ég skil ekkert í þessu.
ó, jess. Ég er búin með ritgerðina frá helvíti. Það var mikið! Ég er meira að segja alveg að verða búin með frétt sem ég á að skila í fyrramálið. Það verður sem sagt sex and the city í kvöld án samviskubits.
Af einhverjun óútskýranlegum ástæðum er VH1 óruglað heima, mér til mikillar ánægju. Ég horfði á heimildarþátt um Bob Marley í gærkvöldi. Ekki vissi ég að hann hefði dáið úr krabbameini sem byrjaði í tánni. Vissuð þið það? Ég ætla samt að segja ykkur frá því. Þannig er mál með vexti að hann Bob var að spila fótbolta með einhverjum Þjóðverjum og var ekki í nógu góðum skóm. Einn Þjóðverjanna sparkaði óvart í hann og þannig rifnaði upp tánögl eða eitthvað álíka. Svo fór hann ekkert til læknis langalengi þangað til sárið var virkilega farið að angra hann og vildi ekki gróa. Þá var bara kominn einhvers konar húðkrabbi í tánna. Honum var ráðlagt að láta taka tánna af en samkvæmt Rastafari trúnni sem hann aðhylltist var bannað að skerða nokkuð af líkamanum (útskýrir massívu dreddana) og hann tók það ekki mál. Stuttu seinna ákvað hann þó að fara í minniháttar aðgerð til að fixa þetta og allt gekk vel. Svo gleymdi hann þessu bara og hélt áfram að djamma og búa til músík. Þremur árum seinna, nánar tiltekið í maí '81, hneig hann svo niður í Central Park í N.Y.C. Þá var krabbameinið búið að breiðast út í lungun og heilann og hann dó stuttu seinna:-( Finnst ykkur þetta ekki sorglegt? Snillingurinn var bara 36 ára gamall og enn að springa úr músíkgáfu. Gugga sagði líka svekkt: Af hverju drullaðist hann bara ekki til að láta taka af sér tánna?!

30.10.2002

Ég kláraði Hobbit í gær. Nú verður pabbi stoltur af stelpunni sinni:-) Nú verður samt bannað að lesa sér til yndis fram að jólum, bara skólabækur núna. Þær geta svo sem verið skemmtilegar...Ætli ég nái að lesa fyrstu tvö bindin í Hringadróttinssögu áður en Two Towers verður frumsýnd? Kannski ég geri þetta bara að sérstöku mission-i. Geri ekkert nema að lesa, dag og nótt. Ætli það nokkuð...
Það er greinilega óðum að styttast í próf. Það er varla hægt að fá borð á bókhlöðunni. Hilma greyið er búin að labba nokkra hringi og fann ekkert borð, endaði bara inni í hópvinnuherbergi. 30% aukning á stúdentum í HÍ á síðustu sex árum en ekki hefur bókhlaðan eða önnur lesaðstaða fitnað! Hvað á það að þýða?! Erum við ekki að mennta þingmenn og stjórnendur framtíðarinnar? Á þetta fólk ekki að fá sæti undir bossann sinn og borð undir bækurnar?

29.10.2002

Brynja og Kristín voru að koma með þá snilldarhugmynd að halda jólaboð 27. eða 28. desember. Þar sem við erum svo stór vinahópur á barasta að leigja sal. Svo setjum við bara smá í púkk og þá er peningamálunum reddað. Svo hittast bara allir og þá þurfum við ekki einu sinni að senda jólakort. Þið eruð snillingar, stelpur!!




Ég, Petra og Gugga horfðum á myndina Life as a house í gærkvöldi. Myndin er ekki eins ömurleg og titillinn endurspeglar. Þetta var algjör vasaklútamynd, reyndar með nokkrum yfirmáta hallærislegum atriðum en við náðum allar að tárast, held ég. Gugga hélt því reyndar fram að hana klæjaði bara í augað en ég er nokkuð viss um að hún var að ljúga. Ég get hins vegar hiklaust mælt með annarri mynd sem heitir Mad about Harry. Það er brjálæðislega fyndin mynd sem enginn virðist hafa séð nema ég.
Frábærar fréttir. BA verkefni okkar Erlu ætlar loks að fara að bera eitthvern ávöxt eftir allan þrældóminn. Fræðslufulltrúi Rauða krossins var að hafa samband við okkur og vill endilega fá að sjá það sem við höfum verið að gera. Rauði krossinn er nefnilega að fara að búa til námsefni fyrir leikskólana. Þetta á að vera blanda af nokkrum atriðum, s.s. skyndihjálp, upplýsingum um Rauða krossinn, markmið hans. Þessu á að flétta inn í fjölmenningarlegt samhengi. Þetta á að ná til 6 ára barna. Spennó, ekki satt?



28.10.2002

Maturinn var bara alls ekki slæmur hjá Guggulíusi. Eiginlega bara frábær. Það er reyndar svolítið mikil steikingarlykt af okkur en Gugga segir að það sé bara stöðutákn. Þú ert ekki alvöru húsmóðir nema það sé steikingarlykt af þér. Núna ætlum við steikingarsystur að fá okkur videóspólu. Við erum að þykjast ekki vera í háskóla...
Heyrðu, maður. Ég hringdi í Guggu eðalkokk áðan og spurði hvenær maturinn yrði til. Það var fátt um svör hjá henni Guggu minni. Hún ætlaði að gera linsubaunabuff en veit greinilega ekki hvernig linsubaunir líta út vegna þess að hún er að sjóða sojabaunir núna. Ég veit að þetta virðist ekki vera mikið mál en sojabaunir þurfa að liggja í bleyti yfir nótt áður en þær eru soðnar. Kannski að ég kaupi mér bara pulsu í kvöldmat:-/
Heyrðu, þetta er alls ekki nógu gott. Ég er búin að vera að fikta í þessu bloggi og klukkan bara allt í einu að verða 5 og ég sem á að vera að gera ritgerð. Ég býst þá við að ég sitji sveitt við skriftir fram á kvöld en ég á að skila ritgerðinni á morgun:-/ Gugga, meðleigjandi, er heima núna að búa til linsubuff þannig að ég fæ hollan og góðan kvöldmat, aldrei þessu vant:-)

Jæja, nú þarf ég að testa þetta.

Háskólabío hefur verið iðandi af klámmyndaleikurum alla helgina og í vinnuni í gær sá ég einn klámmyndaleikara. Hann er mjög líkur Sean Connery, bara ljót og shabby útgáfa af manninum. Er víst gamall í hettunni og orðin góðvinur dyravarðanna í Háskólabíó. Ég held að hann geri út á það að líkjast hr. Connery. Þá getur hann verið stjarna í vafasömum myndum eins og The Cock (the Rock), Binding Forrester og fleiri góðum...
Mig dreymdi rosalega mikið brauð um helgina. Skrýtið!! Maja vinkona kom til mín með fullt af brauði sem hún sagði að væri gjöf frá mömmu sinni til mín. Þetta voru alls konar gerðir af brauði og ég man bara eftir að hafa hugsað: Hvernig á ég að borða þetta allt saman?! Það er ekki neitt pláss í frystinum hjá mér. Venjulega man ég ekki drauma en þennan man ég svona líka vel. Ætli þetta þýði eitthvað eða er þetta bara kjaftæði?

23.10.2002

Jæja, fór að vinna á DV í dag. Þetta er liður í náminu mínu, hagnýtri fjölmiðlun, og ég eyddi deginum þar. Ég fékk m.a.s. að skrifa nokkrar fréttir, voða spennó. DV er mjög líbó vinnustaður. Ég veit samt ekki alveg hvort ég gæti unnið þar eða á nokkru dagblaði. Ég held að þetta sé mjög stressmikið starf. Alltaf deadline og nauðsynlegt að fylla blaðið. Svo er líka alltaf svo mikið neikvætt og ljótt í fréttunum að ég yrði bara þunglynd á endanum og væntanlega með vöðvabólgu dauðans í þokkabót! Nú er ég í Kef. að slaka á hjá múttu. Var að taka viðtal við konu sem bjó í S-Afríku '91 um aðskilnaðarstefnuna. Alveg rosalegt! Það er bara rúm 10 ár síðan hún bjó þarna en sögurnar eru ótrúlegar. Maður trúir ekki hversu kynþáttamisrétti var/er útbreitt.

19.10.2002

Oh...ég kann ekki rassgat á þetta dæmi. Verð að finna einhvern til að hjálpa mér með þetta.
Jæja, sæl veriði. Tími til kominn að slást í hóp allra þeirra sem blogga nú til dags. Þetta er víst voða móðins í dag og ágætis leið til að halda utan um það sem gerist hjá manni. Svo er bara að sjá hvort maður nenni þessu...