30.11.2002

Fór til Sigrúnar Daggar í gær með Mörtu. Hún var að flytja í litla og kósý íbúð á Baldursgötunni. Voða sætt hjá henni. Sigrún og Marta voru á leiðinni á djammið og ég dauðöfundaði þær. Ég fékk mér reyndar einn bjór en stoppaði eftir það. Þói og Hólmar. Bifrastarvinir Mörtu, komu til Sigrúnar líka og það var voða gaman að hitta þá. Hitti þá í fyrsta skiptið á hausthátíð Bifrastar, því rosalega sukki, og hef ekki séð þá síðan. Fólkið á Bifröst er allt búið í prófunum núna og er að vinna misserisverkefni og ég verð að segja að ég dauðöfunda það. Ég get þó huggað mig við það að ég er búin frekar snemma í prófunum. Ég öfunda ég fólk sem er búið 21. desember:-/

Ég fór niður í geymslu í gær og náði í allt jólaskrautið mitt, sem er reyndar ekki mikið. Ég er að spá í að skreyta pleisið á morgun. Ég held að það sé nauðsynlegt að fá smá jólastemmingu í íbúðina. Lífga aðeins upp á hana.

Ég hrökk upp í nótt við fólk sem var að hnakkrífast einhvers staðar nálægt húsinu mínu. Það var sko öskrað og blótað og ég veit ekki hvað. Ég bý auðvitað í gettói Íslands, morð á götum úti eru nánast daglegt brauð og innbrot tíð. Þetta minnir mig á óskemmtilegt atvik sem ég lenti í í sumar. Þá var einhver sækópatti að reyna að komast inn í húsið mitt og ég hringdi fjórum sinnum á lögguna. Fyrst var ég spurð hvort glæponinn væri nokkuð að berja í hurðina, svo var mér sagt að það væru nú svo fáir bílar inni og að ég ætti að hringja ef hann reyndi að brjótast inn (komm on, gaurinn var búinn að hringja á allar dyrabjöllur in da house). Í þriðja skiptið var mér sagt að löggan hefði komið en ekkert hefði virst ama að manninum, hefði ekki verið fullur eða neitt. Það var greinilega ekki nóg að hann væri hringjandi á dyrabjöllu fólks um miðja nótt. Svo var auðvitað greinlegt að hann þekkti engan í húsinu þar sem að hann sagði aldrei neitt þegar fólkið svaraði í dyrasímann. Ef hann hefði þekkt einhvern og þurft að komast inn hefði hann getað aumingjast til að segja frá því. Þegar ég heyrði hann reyna að opna gluggann á þvottahúsinu var mér síðan nóg boðið. Ég reif upp svalahurðina og hoppaði á náttfötunum út á svalir: „Hvað í andskotanum þykist þú vera að gera? Þú ferð sko ekki að brjótast hérna inn!“ Gaurinn stóð undir svölunum hjá mér og sagði ekki neitt. „Heldur þú að ég sjái þig ekki, fíflið þitt?! Ég sé skónna þína!“ Þá bakkaði hann aðeins þannig að ég sá ekki skónna hans lengur. Haha. Ég hringdi í lögguna í fjórða skiptið og sagði þeim að drulla sér til að fjarlægja manninn af lóðinni. Ég væri skíthrædd og hefði örugglega ekki roð í sköllóttan og vígalegan manninn. Löggan kom loksins og ég náði að sofna áhyggjulaus en klukkan var þá orðinn 8 um morguninn.
Þetta er ein af mörgum hræðilegum reynslusögum mínum úr gettóinu...

29.11.2002

Í dag eru 13 dagar þangað til ég kemst í jólafrí. Jibbí! Áður en ég veit af get ég farið að vaka lengi, sofa lengi, hanga, gera ekki neitt, gleyma því að þjóðarbókhlaðan er til og hlakka almennilega til jólanna.

Það gengur ágætlega að lesa fyrir þetta mannkynssögupróf, hægt en ágætlega. Tíminn líður bara allt of hratt sem er gott ef ég hugsa til þess að ég verð búin í prófunum bráðum en slæmt ef ég hugsa til alls þess sem ég á eftir að lesa:-/

Ég hitti Mörtu á hlöðunni í gær. Bifrastarpían bara komin í musteri menntunar að vinna hópverkefni. Eftir hádegismat kom ég að borðinu mínu og hún var búin að skilja eftir ástarbréf til mín. Reyndar byrjaði þetta sem ástarbréf en svo nennti Marta litla ekki að skrifa meir og benti mér á að heimsækja sig í hópvinnuherbergið á 4. hæð. Ég hljóp upp og kíkti aðeins á blessunina og þegar ég kom til baka að borðinu mínu beið mín annað bréf og mandarína í þokkabót. Þá hafði hún Hilma litla ætlað að gleðja hana Kamillu litlu en rétt missti af mér. Þetta mætti segja að hafi verið hápunktur annars viðburðalítils dags. Það þarf ekki mikið til að gleðja mig. Endilega haldið þessu áfram stúlkur mínar.

Ég verð bara að segja að hann Ingi Þór Ingibergsson er mesti letibloggari sem ég þekki. Sendir mér e-mail um að hann sé sko byrjaður að blogga til að svala frásagnarþörf sinni en hefur síðan bara bloggað einu sinni. Ekki beint spennandi að koma inn á þá síðu...annað en þessi síða sem er stútfull af viskumolum og juicy sögum um svaðilfarir mínar og sigra. Bla bla bla. Ég og allir hinir sem eru að lesa undir próf núna, erum örugglega mest óspennandi fólk í heimi...en í stað þessa þrældóms fæ ég kannski að vinna við eitthvað skemmtilegt í framtíðinni og fæ kannski bara monninga fyrir það líka (eitthvað sem ég veit varla hvernig lítur út þessa dagana).

28.11.2002

Ég er byrjuð að lesa fyrir prófið í mannkynssögu IV. Það er alveg með eindæmum hvað nútímasaga og eflaust öll saga er karllæg. Á þeim hundrað blaðsíðum sem ég las í dag er einu sinni minnst á konu og hún var byltingarsinni sem var myrt. Ég held að ég myndi hafa meira gaman af þessu ef öll mannkynssagan byggði ekki öll á því sem allir þessir karlar gerðu. Það er reyndar annað mál að saga 20 aldarinnar er talin öld stríð og blóðs og limlestinga og ógeðs. Það hefði örugglega verið annað ef konur hefðu verið við stjórnvölinn, þær eru svo miklir friðarsinnar...

Anyways, það eru 14 dagar þangað til ég er búin í prófunum. Sæjitt, hvað þetta er fljótt að líða.

Ég ætla að skella mér á lokasýninguna á Íbúð Soju hjá Stúdentaleikhúsinu á laugardaginn. Þetta er lokasýningin og það verður örugglega mjög gaman. Gunnhildur Eyja, Hilma og Ásdís, systir hans Jóns Björns, ætla með mér. Ég er svo þreytt eftir daginn að ég nenni ekki að skrifa meir. Sendið mér lærustrauma ef þið eigið einhverja til afnota. Ciao!

25.11.2002

Yes, siree bob, ég er búin með ritgerðirnar sem ég á að skila á morgun. Vei! Nú á ég bara eftir að gera lokaverkefnið í blaðamennsku og þá get ég byrjað að læra undir próf. Ég hlakka meira að segja svoldið til að byrja að lesa og hætta að gera ritgerðir og svoleiðis drasl.

Í kvöld er mér síðan boðið í mat heim til Hilmu eins og venjulega (Takk Hilma og Jón Björn! Án ykkur væri ég skin og bones). Reyndar ætlar mamma hennar Hilmu að elda í kvöld. Ummm....
Í dag eru „einungis“ 17 dagar þangað til ég kemst í jólafrí!
Hann litli bró er kominn með bloggsíðu. Reyndar er bara komin ein færsla inn en ég veit að hann á eftir að standa sig vel drengurinn.

23.11.2002

Það er sko stuð í Háskólabíó núna! Fullt af litlum, spenntum krökkum sem hafa beðið eftir Harry Potter langa lengi. Sumir mæta í búningum. Sá einn áðan sem var alveg í dressinu frá toppi til táar, með sprota og alles. Það hefur líka ýmislegt leiðinlegt gengið á. Til dæmis leið einu barni ekkert allt of vel, örugglega búið að borða allt of mikið nammi,og ældi út allt anddyrið. Hljóp síðan út, greyið, og hélt áfram að æla þar. Ekki góð leið til að enda bíóferðina. Sem betur fer er þetta ekki algengt hjá bíógestum.

Í kvöld mun ég missa af árlegu celeb partýi hjá Jóa B. og Allý. Frekar súrt. Gengur heldur ekki að vera að halda svona stórt partý rétt fyrir próf. Ég og Birta vorum Barbie og Cindy í fyrra. Þær eru svona nokkurs konar celebs þó þær séu ekki til í alvörunni. Við vorum svaka gellur, báðar í ljósbláum rjómatertukjólum...

22.11.2002

Í dag eru einungis 20 dagar þangað til ég kemst í jólafrí.
Oh my god! Ég horfði á „krýninguna“ á herra Íslandi í gær. Þetta var einfaldlega samansafn af tjokkógaurum með litað hár. Það var dágóður slatti af Suðurnesjamönnum þarna, þ.á.m. Ási tuskufýla. Ási hlaut viðurnefnið tuskufýla vegna þess að ónefnd vinkona mín var kærastan hans í grunnskóla og vildi helst ekki vanga við hann vegna þess að það var svo mikil tuskufýla af honum. Haha! Svo er það auðvitað Björn Vilberg. Hann er reyndar voða sætur og góður strákur og var nágranni minn til margra ára. Hann og Ingi Þór voru vinir og alltaf þegar Björn kom að spyrja eftir Inga Þór var hann svo lengi að koma orðunum út úr sér: „Er.......“ Ef Ingi Þór var ekki heima sagði ég alltaf nei og skellti hurðinni áður en hann náði að klára spurninguna. Ég var sem sagt ekki voða þolinmóð sem barn (er það reyndar líka sem fullorðin:-/). Þannig náði ég líka að skemma þann möguleika að eiga Björn sem kærasta einn daginn. Djö... Nei, annars, smá skilaboð til tilvonandi kærasta minna. EKKI fara í herra Ísland og ekki heldur í Djúpu laugina (skot á þig, Marta. Híhí). Strákarnir í herra Ísland eru samt örugglega bara hópur af gæjum sem hafa farið aðeins of oft í ljós og langar að prufa eitthvað nýtt...
Svo var hún Maríkó ekki alveg að gera sig sem kynnir, greyið stelpan. Rödd sem hennar á ekki heima í starfi kynnis. Því er nú ver og miður...

21.11.2002

Ég er búin að gleyma því hvað er erfitt að vinna í hóp:-S Við erum fimm saman að gera hópverkefni í Kynferði og hnattvæðingu og það gengur frekar hægt. Það er alveg með ólíkindum hvað getur reynst erfitt fyrir fimm manneskjur að reyna að samræma tíma sinn og hittast, sérstaklega þegar það er svona stutt í próf. Okkur tókst þó loks að ákveða tíma og erum að fara að hittast á eftir. Hryllilega mikið verk fyrir höndum og ég á eftir að búa til frétt fyrir morgundaginn og svo er Sexið í sjónvarpinu í kvöld. Líkaminn á mér stirðnar alveg upp við tilhugsunina um allt helvítið sem er framundan. Samt er bara 21 dagur þangað til ég kemst í jólafrí. Nú hefst niðurtalningin...
Hún Gunnhildur Eyja á afmæli í dag. Til hamingju!!!! Hún er orðin 23 ára gömul, velkomin í kellingaklúbbinn. Haha! Ég tók einmitt viðtal við hana og Fabri í gær. Ég ætla að nota það sem lokaverkefni í blaðamennsku. Þau skötuhjúin eru nebbla ansi spennandi. Hún nork/íslensk, hann ítalskur og þau búa á Íslandi. Mjög fjölmenningarlegt heimilislíf. Ég sat hjá þeim í gærkvöldi og við kjöftuðum um allt á milli himins og jarðar, mjög gaman. Núna er ég að gera ritgerð um alþjóðastjórnmál og hlutverk Sameinuðu þjóðanna. Mjög spennandi umfjöllunarefni. Best að halda áfram. Meira seinna.

20.11.2002

Alveg hryllilega fyndin síða sem mér var bent á á blogginu hennar Mörtu og co. Þetta er listi yfir sönglagatexta sem fólk hefur verið að syngja vitlaust í gegnum árin. Ógeðslega fyndið, sérstaklega Addicted to love með Robert Palmer. Tékk it át.
Ég átti frábært kvöld með mannfræðivinkonum mínum í gær. Við hittumst allar heima hjá Rún og borðuðum heimabakaða pizzu. Við átum auðvitað á okkur gat en pizzurnar voru svaka góðar og það var endalaust af áleggi á þeim. Svo sátum við og kjöftuðum fram á kvöld. Ótrúlega næs. Takk aftur, stelpur mínar. Þið eruð svo skemmtilegar og klárar og fallegar og frábærar og heppnar og lala og lílí...

Fór í mjög skemmtilegan tíma í blaðamennsku í morgun. Þetta var síðasti tími vetrarins en Guðbjörg, kennarinn okkar, er að fara að giftast Hilmari, ástinni í lífi hennar, á laugardaginn. Þar sem við erum svo góður bekkur ákváðum við að gera eitthvað fyrir Guðbjörgu í tilefni brúðkaupsins. Við keyptum kampavín handa brúðhjónunum og svo bakaði Dögg súkkulaðiköku sem við gæddum okkur á í morgun. Rosa súkkulaðibomba frá Betty Crocker í formi jólatrés og með m&m jólaskrauti:-) Ég verð nú samt að viðurkenna að það var svolítið erfitt að borða svona súkkulaðisprengju fyrir hádegi, held ég endurtaki ekki þann leik í bráð.

Ótrúlegar fréttir!! Melina McNeilly Campbell er að koma til Íslands í desember. Týndi skiptineminn sem ég hef ekki séð síðan '98!! Ekkert smá spennandi. Fékk e-mail frá henni áðan þar sem hún sagði mér frá þessu og spurði hvort ég vildi ekki „djamma like in the old days.“ Það verður frábært að hitta hana. Reyndar gæti hún ekki komið á verri tíma (5. - 9. des.) en ég verð á fullu í próflestri og að vinna í bíóinu þá helgi. Ég var einmitt að spá í því áðan hvernig hún líti út í dag. Guð, hvað ég hlakka til að sjá hana!! Þetta verður æði.
Smá upplýsingar fyrir þá sem vita ekki hver Melina er: Hún var skiptinemi í FS veturinn '97-'98 og við vinkonurnar tókum hana að okkur enda er hún alveg frábær stelpa. Hún er nýbúin að klára B.A. í einhverju arty dóti (man ekki alveg:-/) frá Wooster, Ohio. Dökkhærð með krullur, rosa sæt. Ég man að hún saumaði nánst allt sem hún gekk í sjálf og var alltaf að föndra eitthvað. Ég hef síðan verið international friend fyrir vinkonur hennar sem hafa komið til Íslands. Ein þeirra fékk að gista hjá mér og hin bauð mér til Færeyja á einkaflugvél en ég fokkings komst ekki vegna þess að ég þurfti að vinna hjá Flugleiðum aka Hundleiðum...Ekkert smá svekkelsi það!!!

19.11.2002

Ég varð ótrúlega ánægð að vera stödd á Íslandi áðan þegar ég labbaði á bókhlöðuna. Esjan var ekkert smá flott og allt í einu fannst mér ég ekki kunna að meta landið mitt nógu vel. Ulla sagði nefnilega við mig um daginn að henni fyndist svo magnað að vera í stórborg og samt geta séð sjóinn og fjöll í kring. Ég get alveg trúað því að þetta sé svaka upplifun fyrir hana þar sem hæsta „fjallið“ í Danmörku er 2 metrar eða eitthvað álíka. Þannig að núna er ég rosalega stolt af fallega landinu mínu!

Ég er að fara í Mandela klúbbinn í kvöld. Reyndar er þetta bara smá angi af honum en ég, Erla, Rún, Elva og Fanney ætlum allar að borða saman í kvöld. Rún ætlar að elda ofan í okkur dýrindispizzur og svo verður kjaftað fram á kvöld um mannfræðikenningar og kannski eitthvað smá um strákamál og svoleiðis ef það kemst að;-)
Það er best að ég útskýri aðeins með Danmörku þar sem enginn virðist vita að ég sé að fara þangað. Þannig er mál með vexti að hagnýt fjölmiðlun er eins árs nám auk þriggja mánaða starfþjálfunar. Ég hef ákveðið að í stað þess að vinna á Mogganum eða DV í þrjá mánuði sé mun sniðugara að fara í skiptinám en ég get fengið það metið sem starfsþjálfun. Ég held að ég muni græða mun meira á því að fara þangað út í alþjóðlegt prógramm í fjóra mánuði. Ég fer örugglega í byrjun ágúst á næsta ári til Danmerkur og verð í Árósum. Ég ætla að verða voða klár í dönsku og rúlla upp þessu námi (reyndar er það á ensku).

17.11.2002

Vá, ég vaknaði kl. 9 í morgun. Rosa dugleg. Reyndar var fjandi erfitt að sofna í gær vegna þess að fólkið í 2.h.v. var með svaka partý. Það voru engin smá læti í þessu liði. Það var eins og partýið væri inni í svefnherbergi hjá mér. Frekar pirrandi en samt nennti ég ekki að fara upp og kvarta. Vissi líka að ég myndi hvort eð er lognast út af á endanum. Enda gerðist það líka. Núna sit ég í Odda og er að gera ritgerð, eins og venjulega. Við hliðina á mér situr maður sem lyktar svo illa að ég veit eiginlega ekki hvað ég á að gera. Vona bara að hann ætli að stoppa stutt vegna þess að ég þarf að vera hér í allan dag:-( Annars pikka ég bara í hann og segi: Hey you. You smell! Go home and take a long shower. Ég er nefnilega nokkuð viss um að hann sé útlendingur, eiginlega er ég bara handviss!

16.11.2002

Ég endaði á djammi í gær. Kom ekki heim fyrr en klukkan hálffimm í morgun:-/ Er samt á bókhlöðunni núna og ótrúlega hress miðað við aðstæður. Ég fékk mér bara verkjatöflur áður en ég fór að sofa í nótt og voila...Kamilla hressa. Það var mjög gaman í gær. Var að vinna til 11 og fór síðan að hitta Ullu og vini hennar á Kaffibarnum. Hitti Jóa B. líka og hann lofar mér, Birtu, Guðrúnu og Addú humarveislu á milli jóla og nýárs. Heyrið þið það stelpur?! Ég er á fullu að plana tímann ykkar á Íslandi;-) Ég kíkti líka aðeins á 22 í gær og dansaði smá. Ég hef reyndar ekki komið þangað inn síðan staðnum var breytt og ég verð að segja að þessi strobe ljós, eða hvað sem þetta er kallað, eru ekki að gera það fyrir mig. Það verða allir svo ljótir í svona ljósi. Ljóshært fólk lítur út fyrir að vera gulhært og allir virðast vera með ljótar tennur! Á 22 hitti ég alla litlu pollana úr Keflavík sem eru orðnir stórir núna sem þýðir að ég er að verða gömul. Annars stoppaði ég stutt þar og ákvað að fara á Celtic Cross að hitta Guggu, Thelmu, Brynhildi, Rúnar og Andrés. Ég stoppaði þar í hálfa nanósekúndu enda algjör prumpstaður og dreif mig bara heim. Núna sit ég og þykist vera að gera ritgerð. Reyndar gengur mér vel með hana en ég er búin að vera að skoða heimasíðuna hjá Danmarks Journalist Höjskole sem ég er að fara í næsta haust. Oh, hvað það verður gaman. Ég get varla beðið. Jæja, nú verð ég að vera dugleg. Ten, four, over and out!

15.11.2002

Ég held að það standi á enninu á mér: Segðu mér þín mestu leyndarmál! Það er maður búin að sitja fyrir framan klefann minn í heillangan tíma og segja mér frá ævi sinni. Ég hef n.b. aldrei séð manninn áður. Hann þurfti að hætta að vinna þegar hann var 52 ára vegna heilsumissis. Hann er búin að fara í tvær heilaskurðsaðgerðir sem eru víst stærstu aðgerðirnar sem hafa verið framkvæmdar á Íslandi að hans sögn. Honum finnst ísinn í Álfheimum besti ísinn í bænum og fer þangað á hverju kvöldi og fær sér einn í brauðformi. Reyndar finnst honum líka bíópoppið voða gott og hann kom einmitt í kvöld til þess eins að fá sér popp. Honum finnst hundleiðinlegt að vera hættur að vinna og hefur eiginlega ekkert að gera... Ef ykkur liggur eitthvað á hjarta getið þið sent mér tölvupóst eða skrifað í kommentakerfið:-) Kamilla Sáli
Jæja, enn fleiri góðar fréttir af the Monster. Það voru tveir gæjar að labba út af henni. Þeirra orð voru: Hvaða hálfviti borgaði fyrir að láta búa til þess mynd?! Hahaha!
Ég get ekki ímyndað mér að the Monster eigi eftir að verða boxoffice hit. Það var boðssýning núna kl. 6 og það mættu örfáar hræður. Þá er það slæmt ef fólk mætir ekki í einu sinni í bíó þegar því er boðið. Ég held að málið sé plakatið, það er allt of hallærislegt. Íslenska Kvikmyndasamsteypan hefði átt að hafa samband við mig við gerð plakatsins, ég er svo smekkleg!!
Stúdentaleikhúsið er að fara að frumsýna Íbúð Zoju eftir Bulgakov í kvöld í Vesturporti. Ég hvet alla til að fara og sjá. Örugglega rosa flott hjá þeim. Anna sem er með mér í hagnýtri er einmitt að leika með Stúdentaleikhúsinu. Rosa klár stelpa! Ég ætlaði mér alltaf að slást í hópinn með þessu fólki en hef verið að bíða eftir að sólarhringurinn verði framlengdur í 48 tíma. Hvenær ætli það gerist??

Ég er að spá í að fá mér jólatré í desember. Ég er búin að búa í þessari íbúð í næstum 2 ár og það er tími til kominn að leyfa jólunum að flæða inn í hana á ný!! Reyndar á ég ekkert af jólaskrauti en það er bara smart að hafa seríur og kannski 2 kúlur á trénu. Svo kemur skrautið bara með árunum og verður alltaf flottara og flottara. Sorry samt að ég sé að skrifa um jólin þegar nóvember er bara hálfnaður en jólin eru jú það sem mun halda mér gangandi í próflestri...

14.11.2002

Ég neyðist til að fara út á morgun:-/ Reyndar á mér ekki eftir að finnast leiðinlegt en ég hreinlega hef ekki tíma til að fara út að skemmta mér núna. En þar sem ég er svo mikill international friend get ég ekki annað. Vinur hennar Ullu, dönsku stelpunnar sem bjó hjá mér í sumar, er í heimsókn hjá henni á Íslandi og ég var búin að lofa að fara með þeim í einn drykk (kannski tvo) annað kvöld. Svona er lífið. Maður þarf bara alltaf að vera á djamminu. Hahaha. Nei, annars, þetta verður alls ekkert brutal. Ég þarf nefnilega að nýta laugardaginn í ritgerðarsmíði. Mjög gaman. Svo er líka bara tæpur mánuður eftir af þessum þrældómi sem kallast skóli. Þá verð ég frjáls í heilan mánuð. Ekki dónalegt það!
Ég er að fara að vinna í bíóinu á morgun. Það er verið að frumsýna þessa nýju mynd Friðriks Þór og Coppola sem heitir the Monster. Ég sá auglýsingu um hana í Mogganum í morgun og þetta virðist með eindæmum hallærisleg mynd. Samt ætla ég ekki að slá neinu á fast fyrr en ég hef séð myndina sjálf en eitt er víst að auglýsingin í Mogganum hvetur mig ekki til þess. Talandi um Moggann. Það er alltaf verið að stela Mogganum mínum! Við erum fjögur af átta sem erum áskrifendur í stigaganginum og það er einhver að gera okkur lífið leitt með að stela frá okkur blaðinu. Mínu var einmitt stolið í morgun þannig að ég hringdi, eins og góðum áskrifanda sæmir, í kvörtunardeildina og ég fékk bara sendan nýjan Mogga pronto! Þetta var nefnilega í fjórða sinn sem þetta gerðist. Það er eins og þjófurinn hugsi: Tja, fyrst hún sækir ekki Moggann fram klukkan sjö á morgnana vill hún örugglega ekki lesa hann. Einmitt!! Ég var meira að segja orðin svo pirruð á þessu að ég setti upp smá orðsendingu við póstkassana: Kæri nágranni. Ég hef orðið fyrir því að Mogganum mínum er stolið. Ef þú ert að fá hann lánaðan, vinsamlegast hættu því! Kveðja, Kamilla 1.h.h. Þetta virðist ekki hafa virkað nógu vel hjá mér.
Ég lenti í mjög óskemmtilegri lífsreynslu í hádeginu. Ég ætlaði að fá mér Finn crisp hrökkbrauð og tók fram óopinn pakka. Þegar ég opnaði hann blasti við mér ófögur sjón. PÖDDUR!!!!! Já, það var sko ættarmót ljótu paddanna í hrökkbrauðinu mínu. Ég stökk upp öskrandi (oj, ég fæ alveg hroll þegar ég hugsa um þetta) og vissi ekki hvað ég átti að gera. Endaði með því að ég kramdi þær og henti í ruslið. Pælið í ógeði!! Ég hringdi síðan í Hilmu skelfingu lostin og spurði hana hvort hún væri að reyna að drepa mig vegna þess að hún gaf mér pakkann. Hún sagði ekkert nema oj og gat síðan ekki talað við mig lengur vegna þess að hún ætlaði að fara að henda út öllu úr sínum skápum. Þetta verður sko seinasta tilraun mín að borða Finn crisp sem mér finnst undir eðlilegum kringumstæðum mjög gott.

13.11.2002

Ég er búin að vera letibloggari í dag. Sorry, kæru aðdáendur. Hahaha! Er búin að eyða deginum í skólavesen. Það mun halda áfram alveg þar til 12. dsember. Þá er ég búin í prófunum! Vei! Hilma og Jón Björn buðu mér í spaghetti í kvöld. Mamma, heyrir þú það?! Dóttir þín var að borða spaghetti í kvöld. Mamma eldaði nefnilega svo mikið af spaghetti og lasagne þegar ég var krakki að ég fékk ógeð og gat ekki borðað svoleiðis í mörg. Við vorum einmitt að hlæja að þessu í frænkuboðinu um helgina. Ég var algjör matarlögga þegar ég var krakki. Mamma mátti til dæmis ekki vera með Maggi pakkakartöflumús heldur varð hún að búa til músina sjálf. Einu sinni reyndi hún að plata mig og ég varð alveg kex. Það tekst sko engum að blekkja matarlögguna!!! Svo ef ég vildi ekki borða það sem var í matinn sagði mamma mér að ég gæti barasta setið við borðið þangað til ég kláraði matinn. Þá sat ég bara við eldhúsborðið fram á kvöld. Ótrúlega þrjósk. Endaði alltaf með að mamma tók diskinn af borðinu fussandi og sveiandi og ég hrósaði sigri mínum í hljóði. Þetta var smá biti af æskuminningum mínum. Er að spá í að gefa út ævisögu. Það er líka svo móðins að gefa út ævisögu þegar ævin er ekki einu sinni hálfnuð. Þessar poppstjörnur úti í heimi eru alla vega að keppast um það. Mín bók á að heita Matarlöggan snýr aftur: Enga Maggi mús, takk!!

12.11.2002

Oh, núna er ég pirruð. Var að rífa mig á fætur til að fara í tíma. Mæti síðan í aðalbyggingu og þá er kennarinn veikur. Það var svo erfitt að vakna. Ég ætla samt ekki heim núna vegna þess að þá sofna ég bara:-( Gleymdi að segja ykkur frá fáránlegasta barnaefni ever. Á sunnudaginn kíkti ég aðeins á einhvern barnaþátt á RÚV. Þetta var leikið barnaefni um strák sem var að taka þátt í hæfileikakeppni. Hæfileiki stráksins var sá að hann gat prumpað hin ýmsu lög. Hann stóð uppi á sviði með rassinn framan í áhorfendur (var reyndar fullklæddur) og prumpaði lag. Meira að segja við píanóundirleik. Alveg út úr kú. Ég held meira að segja að hann hafi unnið keppnina. Hvað er eiginlega verið að framleiða fyrir börn?! Barn sem prumpar fyrir áhorfendur er ekki beint uppbyggjandi sjónvarpsefni!

11.11.2002

Það er víst eitthvað vesen með gestabókina mína. Bæði Særún og Marta hafa skrifað í hana og það sem þær skrifuðu hvarf bara. Hafa fleiri lent í þessu hjá mér? Kannski er gestabókin bara ritskoðuð af Bloggguðinum. Mér finnst það hundfúlt. Þið verðið að skrifa aftur...
Ó, djísus. Ég fór aftur á djammið á laugardaginn. Er með heimsins stærsta samviskubit. Reyndar var alveg ótrúlega gaman. Fór og hitti Krissa, Óla Frey og Jón Heiðar á Tapas. Ég er alltaf eftirsótt á svona karlakvöld;-) Haha. Fór reyndar ekki að hitta strákana fyrr en um miðnætti og þá voru Krissi og Óli svo fullir að þeir þurftu að fara í vatnið. Jón Heiðar kom seinna og ég og hann vorum ekki eins skrautleg og þeir fullu. Síðan komu Ósk og Áslaug frá ársfundi Kvenfélagsins Stjörnunnar (mig minnir að félagið heitir það). Þær voru með bleikar grifflur og nafnspjald sem minnti á kosningaáróður stjórnmálaflokkanna. Þær voru alveg jafn fullar og Krissi og Óli og þau ákváðu öll að fá sér bara kaffi til að hressa sig aðeins við. Svo skelltum við okkur á Hverfisbarinn þar sem Kvenfélagið Stjarnan var með hópdans. Mjög fyndið. Ég nennti eiginlega ekki að vera á Hverfisbarnum þannig að ég, Rún, Björk og Þóra fórum á Næsta Bar í stuðið þar:-/ Ég mun aldrei leggja blessun mína yfir stað þar sem ekki er spiluð nein tónlist. Mér finnst það bara ekki passa. Á Næsta Bar sagði Rún mér að ég væri fyndnasta manneskja í heimi og að ég yrði að koma í Kvenfélagið Stjörnuna. Ég varð svo uppi með mér að ég varð bara að fara heim og kvaddi kvenfélagspíurnar skælandi. Á leiðinni heim hitti ég hins vegar Addú og vinkonu hennar og ákvað að skella mér með þeim á Kaffibarinn. Það var rosa gaman. Hitti fullt af fólki sem ég hef ekki séð lengi. Þegar klukkan var orðin 5 var ég orðin svolítið þreytt og ákvað því að skella mér heim og í það skiptið tókst það. Svo dreymdi mig bara endalaust um skólann og eitthvað svoleiðis vesen. Sunnudagurinn fór í að horfa á alla dagskránna á Skjá einum eða þar til ég þurfti að fara að vinna í bíóinu. Ble, ble, ble...
Ok, þið verðið að lesa kommentið frá Inga Þór bróður um jólamatinn hér neðar á síðunni. Alveg brjálæðislega fyndið.

8.11.2002

Eitt enn. Særún yndislega á afmæli í dag. Til hamingju með afmælið, elsku stelpan mín. Við söknum þín rosalega mikið. Hafðu það gott í Danmörku á þessum merkisdegi!!
Ég er þunn í dag. Mjög þunn. Rosalega þunn. Fór á bjórkvöldið í gærkvöldi og drakk allt of mikinn bjór. Fékk reyndar kampavín í vinnunni. Það voru sinfó tónleikar og afgangskampavín. Drakk eitt glas og ég er svo mikill kettlingur að ég varð tipsy af því. Labbaði hlæjandi heim. Svo fór ég á Stúdentakjallarann. Þar var troðið af fólki. Ég skal segja ykkur það, ólofuðu stelpur, að skiptinemarnir í HÍ eru ósnert auðlind. Það var allt morandi í sætum gæjum þarna. Sjaldan lent í öðru eins og ég dressaði mig ekki einu sinni upp. Fór reyndar í nýju gellugallabuxunum og blikkaði nokkra gæja. Haha. Í dag er ég búin að hanga með Hilmunni minni. Við fórum í Smáralind og ég keypti mér nýja diskinn með Aimee Mann, Lost in Space. Ég er einmitt að hlusta á hann núna og hann er alveg frábær. Svo er það átveisla í Keflavík í kvöld. Ég er að fara í frænkuboð og ég held það verði alveg fínt svona í þynnkunni. Guð, ég get varla hugsað núna. Skrifa meira á morgun.

7.11.2002

Jæja, ég ætla að hætta að vera félagsskítur í hagnýtri fjölmiðlun og skella mér á bjórkvöld á Stúdentakjallarnum í kvöld. Það er reyndar líka alþjóðakvöld þar á bæ þannig að við verðum ekki bara þarna stelpurnar (Það eru bara tveir karlar (+40) í hagnýtri og einn þeirra ætlar að reyna að mæta!). Það er kannski að maður slái þessu bara í kæruleysi og fá sér nokkra bjóra. Ég ætla bara að feta í fótspor Bifrestinga (skrifar maður þetta ekki svona?) og tjútta smá á fimmtudagskvöldi. Reyndar þarf ég að vinna í bíóinu í kvöld en bara á meðan sinfóníutónleikarnir eru. Svo verð ég reyndar líka að horfa á sex and the city en svo fer ég á bjórkvöld!!!
Æ, ég var svolítð vond rétt í þessu. Ég sit við tölvu á bókhlöðunni og það er franskt par fyrir framan mig. Eins og allir vita sem hafa komið inn á hlöðunna er bannað að tala hátt. Það truflar aðra. Franska parið var ekki að taka tillit til annarra og talaði mjög hátt. Það endaði með því að ég stóð upp og sagði: Excuse me. This is a library and you are supposed to keep quiet. Please whisper! Þau urðu bæði frekar vandræðaleg og sögðu sorry. Þau eru búin að þegja síðan þannig að þetta virkaði. Var þetta nokkuð yfir strikið hjá mér?
Mjög fyndið! Ingi Þór var á æfingu hjá LK og Viddi sem er að leika í stykkinu núna spurði hvað væri nú að frétta af Kamillu. Ingi Þór sagði: „Ja, hún er í Hí ennþá og er að vinna smá í Háskólabíó með skólanum. Svo er hún líka byrjuð að blibba.“ Ha, er hún byrjuð að blibba. Hvað er það? „Æ, hún heldur svona dagbók á netinu og skrifar í hana á hverjum degi.“ Já, blogga, meinar þú? „Uuu, já, það, einmitt.“ Bróðir minn er fyndnasti snillingur í heimi. Love you, babe!!
Ég veit hvað mig langar í jólagjöf. Mig langar í ljóshærða leikarann í Sweet home Alabama. Hann er sjúklegur! Í hvert einasta skipti sem hann birtist á tjaldinu tók hjarta mitt kipp. Er ekki alveg hægt að redda þessu fyrir jólin? Ég er búin að vera rosalega góð stelpa!
Jæja, fór í LÍN í morgun með bréfið frá besta vini mínum og ég fæ monninga í næstu viku. Jess!!! Ég er búin að vera að bíða eftir þessu síðan í júní. Veit reyndar ekki hversu mikið ég fæ en það verður eitthvað.

6.11.2002

Hann Ingi Þór bróðir er nýji ljósamaðurinn hjá LK. Þau eru að fara að frumsýna revíu á föstudaginn og ég hvet alla til að fara og sjá þessa sýningu. Helga Braga leikstýrir og þá er nú örugglega von á góðu!
Góður dagur í dag. Skellti mér í Kef eina ferðina enn með Hilmu. Mamma hringdi í mig þegar ég var nýkomin í Kef og stödd í Mangó og sagði mér að hunskast heim það væri nefnilega starfsmaður póstsins heima með ábyrgðarbréf handa mér og vildi ekki leyfa mömmu að taka við því. Ég og Hilma hlupum út í bíl og brunuðum til mútter. Ég fékk bréfið og opnaði það fullæst. Og viti menn! Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi er besti vinur minn núna. Það er nú löng saga á bak við þennnan nýja vinskap. Nenni ekki að segja hana alla en þetta hófst allt þegar ég fékk námslánin mín í sumar og hjartaáfall í kaupbæti. Ég fékk nebbla þó nokkuð minna en ég hafði reiknað með. Ég sat í vinnunni þegar ég komst að þessu og var eiginlega farin að grenja. Guðný samstarfskona mín tók eftir því og sagði mér að maðurinn hennar væri endurskoðandi og að hann skyldi bara redda þessu fyrir mig. Og hann gerði það!! Ég ætla að baka handa honum köku í þakklætisskyni. Nú kemst ég upp úr hyldýpi yfirdráttarheimildarinnar. Nú er ég ekki lengur með samviskubit yfir að hafa keypt mér gallabuxur í gær:-)
Heyrðu, ég verð að fá aðstoð í þessum teljaramálum. Ég er búin að reyna allt og ekkert gengur. Brynja hefur ekki staðið sig í kennsluhlutverkinu enda bara upptekin af pólitík þessa dagana;-) Nennir einhver að aðstoða unga dömu í neyð? S.O.S.
Frábært! Björk, læknanemagella í Köben, var að skrifa í gestabókina. Ég er farin að ná til fjöldans. M.a.s. fjöldans í útlöndum;-) Mig langar líka að draga til baka orð mín um bæjarstjórnarfundinn. Hann var ekkert svo rosalega leiðinlegur:-/ Mér finnst samt að þessir fundir eigi að vera haldnir oftar en á 2 vikna fresti. Bæjarfulltrúar, þá sérstaklega fulltrúar minnihlutans, hafa svo margt að segja að það þyrfti að hafa fundi oftar. Annars stefnir hver fundur í fimm tíma og ekki mun það hvetja mig til að stunda þá...

5.11.2002

Jæja, ég er búin að setja inn gestabók. Þetta gat ég, svei mér þá. Verið nú dugleg að skrifa í hana:-)
Hey, já. Eitt enn. Ég þarf hjálp við að koma Frikka hennar Helgu fyrir kattarnef. Hann þykist allt í einu vera orðinn Londonfélaginn hennar Helgu. Ég hélt að ég ætti einkarétt á því. Þau ætla sem sagt að stinga af til London án mín!! Frekar asnalegt:-Þ P.S. Helga, það er gestabók á leiðinni. Þú getur samt alveg kommentað í þar til gerða dálka.
Guð minn góður, ég var að koma af bæjarstjórnarfundi í kef. Ótrúlega skemmtilegt eða þannig! Ég þurfti nefnilega að gera frétt um þetta fyrirbæri og oh boy hvað það var boring. Reyndar byrjaði hann ágætlega og ég var mjög áhugasöm. Þegar klukkan var orðin 9 (fundurinn byrjaði kl. 5!) var ég alveg að deyja þarna inni. Mig langaði svo að standa upp og öskra: hættið þessu helvítis röfli!!!!!!! Ég ákvað samt að gera það ekki:-) Ég meikaði ekki einu sinni allan fundinn. Varð að fara heim til mor og far og fá eitthvað að borða. Settist svo fyrir framan tölvuna og skrifaði frétt um herlegheitin. Núna er ég svoþreytt og mamma er á fullu að kjafta við mig og ég segi bara: Ha? Já,nei. Bíddu, hvað varstu að segja? Held að ég fari bara að hrjóta bráðum. ZZZzzzzz....

4.11.2002

Ég held að fjölskyldan mín sé að smitast af þessu jólaæði sem kaupmenn landsins þjást af. Mamma er strax farin að spá í jólamatnum! Síðustu jól borðuðum við hamborgarhrygg og fjölskyldan drapst næstum. Saltað og reykt kjöt er of mikið fyrir okkur. Ég man bara að Ingi Þór lá á gólfinu og stundi og við vorum alveg búin á því kl. 10 eða eitthvað. Svona sena er auðvitað ekki eftirsóknarverð þannig að mamma stakk upp á að við hefðum bara kalkún í matinn. Ég og pabbi erum alveg meira en til í það enda langar okkur að lifa eftir aðfangadag. Svo er það herra lá-á-gólfinu-seinustu-jól, hann er barasta ekkert til í kalkún. Kallar þetta meira að segja kjúkling og segir að allt fuglakjöt sé eins. Ég segi samt þrír á móti einum. Drengurinn verður bara að lúffa. Hvað finnst ykkur? Ef ég kynni að gera svona könnum myndi ég gera könnun sem héti: Hvað á að vera í matinn á Vallargötu 22 á jólunum? Það verður framhald af þessu fjölskyldudrama:-)
Rosalega er erfitt að einbeita sér að því að gera ritgerð þegar mann langar til að vera að gera eitthvað annað. Mér finnst erfitt að pikka inn eina línu hvað þá 3000-4000 orð. Langar helst bara að leggja mig en það er víst ekki hægt:-(

3.11.2002

Á laugardaginn fékk ég far með Ósk í Rvk. Áður en við lögðum af stað fórum við í sjoppu að kaupa lottó því við ætluðum sko að vinna stóra pottinn. Vorum búnar að ákveða að fara saman til útlanda og svoleiðis. Svo unnum við ekki neitt. Ég fékk heila eina tölu rétta! Frekar mikið svekkelsi. Þegar við vorum loks komnar í höfuðstaðinn ákváðum við að fara í heimsókn til Rúnar og Daða í nýju íbúðina. Hún er æði!!! Til hamingju aftur, Rún mín. Reyndar stoppuðum við bara stutt hjá Rún því þau voru að fara í matarboð. Ég og Ósk ákváðum hins vegar að fresta matarboðinu hjá Óla og Jóni um óákveðinn tíma. Við eigum nefnilega að elda og við ætlum bara að gera þetta grand þegar við erum komnar í jólafrí. Þess vegna var bara horft á vídeó í gærkvöldi og í dag er ég líka fersk að gera ritgerð!
Þá er helgin afstaðin. Hápunktur helgarinnar er sá að Brynja Magnúsdóttir var kosinn formaður Ungra jafnaðarmanna í suðurkjördæmi. Rosa flott. Fór á stofnfundinn í Keflavík á föstudaginn og við Gugga mættum aðeins of seint. Ég vissi ekki alveg hvar við áttum að fara inn í húsið og fórum inn um vitlausa hurð. Við vorum komnar inn á einhverja skrifstofu og ég ákvað þá að opna hurð sem ég taldi líklegast að myndi leiða okkur upp á aðra hæðina. Þá var hurðin bara harðlæst og þjófavarnarkerfið fór að væla. Ég og Gugga litum á hvor aðra og fórum að skellihlæja og Gugga hljóp beinustu leið út. Ég ákvað að standa þarna og útskýra allt fyrir löggunni þegar hún kæmi. Svo kom löggan bara ekkert og það endaði með að ég fór réttu leiðina og komst upp á aðra hæð. Við rétt náðum restinni af fundinum og alltaf beið ég eftir að tveir lögreglumenn kæmu til að handtaka mig:-/ Þeir komu aldrei og þá fékk ég mér bara bollu. Rauða bollu! Hljómsveitin Gangsters without a trace (einnig þekkt sem Í þröngum buxum) spilaði fyrir gesti og það var rosa gaman. Petra átti afmæli og kleinur voru í boði. Reyndar þurfti ég að yfirgefa partýið frekar snemma þar sem ég þurfti að vakna morgunin eftir til að fara í klippingu. Ósk og Lassa tókst þó að draga mig á Kaffi Duus og ég fékk mér eitt rauðvínsglas þar. Reyndar drakk Ósk það eiginlega allt. Hún er orðin svoddan rauðvínssvelgur eftir Spánardvölina. Svo fór ég bara heim að hrjóta...

1.11.2002

Ég var að fá póst frá Birtu Ósk Spánardrottningu. Hún var að segja að ég horfi of mikið á sjónvarp og fari ekki nóg út. Það er líklega satt hjá henni og ég ætla að gera mitt besta til að breyta þessu. Framvegis verða bara rónasögur hér og ég mun vinna að því að ná nýjum hæðum í rónamennsku! Nei, ekki alveg kannski en ég ætla að bæta mig:-) Ég er m.a.s. að fara út í kvöld og svo er matarboð á morgun hjá Óla og Jóni. Reyndar er það nú þannig á okkar ástkæra landi að það er mjög oft leiðinlegt veður sem gerir það að verkum að það er girnilegra að hanga heima í hlýjunni en að þvælast eitthvað út. Svo er ég líka í námi dauðans og því ógeðslega mikið að gera í skólanum. Ég er einmitt núna að byrja á ritgerð um aðskilnaðarstefnuna í S-Afríku, ætla að klára hana fyrir þriðjudaginn.